Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.03.1910, Side 5

Sameiningin - 01.03.1910, Side 5
líúnaðarrit til stuffnings kirkju og kristindómi íslendingcr. gefiff út af hinu ev. lút. kirkjufélagi fsl. í Vestrheimi RITSTJÓRI JÓN BJAIiNASON. XXV. ÁRG. WINNIPEG, MARZ 1910. Nr. 1. Upprisan. „Ef Kristr er ekki upp risinn—ritar Páll postuli í 1. Kor. 15—, „þá er prédikan vor ónýt og trú yðar líka ónýt. En vér reynwmst þá og Ijúgvottar um guð, þar sem vér höfum viinað um guð, að hann hafi upp vakið Krist, sem hann ekki hefir vakið upp, svo framarlega sem dauðir ekki upp rísa.----Ef Kristr er ekki upp risinn“ — postulinn endrtekr það—, „þá er trú yðar ó- nýt, þér eruð þá enn í syndum yðar, og þeir einnig glat- aðir, sem í Kristi eru sofnaðir. Ef vér einungis í þessu lífi höfum sett von vora til Krists, þá erum vér aumkun- arverðastir allra manna.“ Svo sem kunnugt er tók Páll ekki trú á frelsara vorn Jesúm Krist fyrr en œði-löngu eftir að hann var frá dauðum upp risinn og til himins upp stiginn. En eftir að hann er genginn Jesú á hönd, verðr hann svona sterkr vottr upprisu drottins, að liann getr liátíðlega lýst yfir því, að ef páskadagsundrið einstaklega hefði aldrei komið fyrir, þá væri kristindómrinn ekki annað en gabb og tál. Má þá nærri geta, hve ömurleg og óskapleg eyði- mörk dauðans heimstilveran liefði orðið í huga þess manns, ef hann hefði aftr misst úr sálu sinni trúna á Jesúm frá dauðum upp risinn. Vissulega getr það nú aldrei komið fyrir, að nokkur sá maðr, sem á sama hátt og Páll liefir náð eignarhaldi trúarinnar á upprisu Jesíi, missi þá trú aftr. Hins veg- ar hafði það þó áðr komið fyrir, að mannssálir elskuðu

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.