Sameiningin - 01.03.1910, Síða 10
6
til ;ið Jeggja út af, enda var hún eitt af því fyrsta, sem
eg hafði fyrir prédikunartexta. Og oftar en einu sinni
hefi eg notað liana til hins sama. Aftr verða nú þessi
indælu orð fyrir mér til umhugsunar Eg ætla ekki að
segja, live mikið af nýju gulli sannleikans eg hefi fundið
í lienni fram yfir það, sem eg áðr fann þar; en það skal
tekið fram, að þessi orð frelsarans eru mér enn að nýju
hugnæmt umhugsunarefni, og að eg lít á bau nú frá
nolckuð öðru sjónarmiði Hfsreynslunnar en þá er eg
fyrst prédikaði út af þeim.
Flestum, sem orðin lesa, finnst víst að þau sé fögr.
Hví eru þau fögr? Fæstir geta gefið vísindalega skýr-
ing á því. Jafnaðarlega vitum vér ekki, hvernig því
víkr við, að eitt eða annað er fagrt. Fegrðin snertir
vanalega miklu meir tilfinninguna en skynsemina; því
er og sú sálargáfa, sem metr fegrðina, nefnd fegrðartil-
finning. Mennirnir eiga í djúpi sálarlífs síns ein-
hverjar hugmyndir um samrœmi, einhverja smekk-
vísi, einhverja fegrð. Ef hin ytri fegrð finnr
samrcemi í sálinni, þá verðr hún metin, annars ekki. Ef
hin ytri fegrð getr ekki lireyft neina strengi í mannlegri
sál, sem eru henni samróma, þá getr hún ekki fengið
viðrkenning.
Oss finnst ritningargrein þessi fögr af því að hvin
hrevfir svo vel strengi þess, sem göfugast er í sál \Torri.
Vér þurfum engan lieimspeking til þess að liða hana í
sundr og á þann hátt gjöra oss grein fyrir fegrðinni, sem
í henni felst. Vér vitum, að hún er fögr. Hvað eftir
annað liefir fegrð hennar gagntekið innra mann vorn.
Vér höfum teygað hugsanir hennar eins og þyrstr maðr
vatn, og yndislegast hefir verið að láta hana hvíla í sál
vorri, þegar vér áttum bágast.
Vér höfum litið á þennan ritningarstað frá sjónar-
miði tilfinninganna. Ekki getum vér látið þar staðar
numið. Augað er ljós líkamans, og skynsemin er ljós
sálarinnar. Vér erum ekki ánœgðir með það að eins, að
finna til; vér viljum einnig sjá. Eins og auga líkamans
dvelr við fagrt útsýni, til þess að virða fyrir sér hvern
einn smáhluta þess, eins viljum vér beita sjón sálarinnar