Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.03.1910, Side 12

Sameiningin - 01.03.1910, Side 12
vera sölumaör í verzlunarbúð; en allir þeir, sem unnið bafa það verk, vita, að það hefir valdið þeim líkamlegri þreytu. Jafnvel það að lesa í bók, sem sýnist í sjálfn sér algjör líkams-hvíld, eingöngu sálar-vinna, er þó lík- ainlega þreytandi. Þegar Jesús talar hér um þá, sem erviða, hlýtr hann að eiga við alla þá, sem finna til ein- hverrar þreytu; enda eru næstu orðin svo skýr, að um ekkert getr í þessu efni verið að villast. Hann býðr öllum þeim, sem einhverjum þunga eru hlaðnir. Þeir menn eru til, sem ekkert þurfa að starfa, en iíta með fyrirlitning til hinna, sem óhjákvæmilega þurfa að vinna sér inn daglegt brauð. Ætli Jesús einnig bjóði þeim að koma til sín? Vafalaust. Sumir þeir, sem ekki eru neyddir til að vinna til að hafa ofan af fyrir sér, vinna samt og liafa þannig sína þreytu-byrði eins og aðrir. En sumir eru þeir, sem alls ekki vinna í neinum vanalegum skilningi. Líf þeirra er tilgangs- laust, nema að því ieyti, sem það má tilgang að kalla, að hita líf sitt stjórnast af lægstu eigingirni, eintómri skemmtanafýsn. Líf þeirra gengr í það að finna upp einliver ráð til þess að eyða tímanum. Sjálfsagt er þá að kornast í kynni við allar þær skemmtanir, sem fyrir hendi eru; en er í þær hefir verið náð, livernig fer ]iá ? Einatt liefir oss fundizt byrði fátœktarinnar þurg; en óhætt er að fullyrða, að byrði iðjuleysisins er þyngri. Eru þá ekki þeir aumingjar — iðjuleysingjarnir — þunga hlaðnir f Því er þegar svarað. Einnig þeim býðr Jesús að koma til sín. Fleiri byrðar eru líka til en þær, sem nefndar hafa verið, t. d. byrðar allskonar sorga, ástvinamissir, sjúk- dómar, ranglæti, óyfirstíganlegir örðugleikar. öllum þeim, sem erviða og þunga eru hlaðnir, býðr Jesús til sín. Byrðarnar eru margvíslegar; þreytan stafar af mjög breytilegum orsökum; en hvernig svo sem á henni stendr, þá býðr Jesús henni til sín. Hann býðr þreytt- um mannheiminum öllum til sín, og minnir þetta á liin fögru orð Agústíns kirkjuföður: ,,Þú hefir gjört oss handa þér, og sál vor er hvíldarlaus þangað til hún hvílist í þér.“

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.