Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.03.1910, Síða 14

Sameiningin - 01.03.1910, Síða 14
IO ert getr betr átt við. Orðin: „munuð þér hugsvölun finna“ eru sama eðlis sem hin um hvíldina. Fyrri orð- in benda á hvíld bæði fyrir líkama og sál, liin síðari á andlega hvíld sérstaklega. En inn á milli þessarra orða er Jesús að tala um ok, býðr oss að taka á oss ok hans. IJenry Drummond hefir heppilega bent á þann sannleil:, að ok sé ekki til þess að gjöra vinnu erviðari lieldr þvert á mót.i léttari. Ok var sett á uxa í sama tilgangi eins og aktygi nú, í þeim tilgangi, að uxarnir gæti beitt kröftum sínum sem bezt við vinnuna, og á sem léttastan hátt fyrir þa sjalfa. Þ6 að þetta sé óneitanlega satt, þá bendir þó okið á vinnu, og það er það, sem hér er sérstaklega eft- irtektarvert, að desús virðist telja okið hvíld. Hann sameinar starf og livíld í eina hugmynd. Þetta tvennt, sem vanalega er talið gagnstœtt hvort öðru, verðr í Iiuga hans ekki einungis samrímanlegt, heldr sameinað. Útskýring á þessu atriði fáum vér að nokkru leyti frá Jesií um leið; ])ví að svo farast honum orð: ,.Ok mitt er indælt og l>vrði mín létt.“ Þau orð eru þó ekki svo Ijós, að vér getum fyrirhafnarlaust af þeim skilið sam band hvíldarinnar og oksins. „Mitt orð er líf og andi“ —sagði Jesús. En líf og andi getr ekkert orð verið, svo framarlega sem ekkert þarf um það að hugsa. Ekkert orð er líf og andi í nokkurri sál eingöngu fyrir andlega áreynslu annarra. Ekkert orð er líf og andi í nokk- urri sál nema að því leyti, sem sálin sjálf hefir fundið sannleikann í því orði. Aldrei verðr þetta framkvæmt fyrirhafnarlaust, og kristindómrinn lifir aldrei í mann- legri sál fyrirhafnarlaust. Það er guðleg tilhögun, að svo skuli vera, enda. sjáum vér það allsstaðar f lífstil- verunni, að viðhald lífsins er fólgið í áreynslu. Krist- indómrinn er ekki lagakerfi, sem ekkert þarf fvrir að hafa og ekkert við að gjöra annað en fara eftir því bók- staflega og hugsunarlaust, heldr er hann í því fólginn, að orð og verk frelsara vors Jesú verði lifandi í mann- legri sál. Verk heilags anda er í raun og veru þetta: að vekja sálina og alla þá hœfileika, sem í henni búa, til þess að hún láti hinn eilífa sannleik verða lijá sér lif- andi. Guð gefi oss hinn góða anda sinn, sál vorri til

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.