Sameiningin - 01.03.1910, Side 17
13
hvert það á að stefna. Sú breyting verðr á, að það veit
tipp á liár, í liverri átt rétta leiðin er. Sá, sem gengr
Jesú Kristi á hönd, er eins og skip, sem náð hefir réttri
stefnu. Skipið nemr ekki staðar við það. Barátta þess
við vindinn og sjóinn heldr áfram, og áframhald barátt-
unnar er einbeittara en áðr, því að fullvissa er fengin
um það, hvert takmarkið er og hvernig því á að ná.
Eins er því varið fyrir þeim, sem verðr í hjartans alvöru
lærisveinn Jesú. Hann hættir ekki að stríða, en hann
stríðir betr en áðr, og hann stríðir eins og sá, sem veit,
hvert stefna skúli og hvernig hinni eilífu liöfn verði náð.
Hið fegrsta samrœmi er því í því, er Jesús talar
undir eins um hvíld og starf. Það er friðsælt starf, sem
hann talar um cg' býðr oss, er hann segir: „Komið til
mín!“
Framfylgi þá allir boði hans. Noti allir það. Láti
enginn það vera eins og bréf ó póstliúsi, sem enginn
hirðir, af því að enginn telr sig eiganda. Sérhver maðr
á jörðu er, þá er um þetta er að rœða, réttr eigandi.
Komi alli til Jesú:
1, til þess að fá grnndvallaða lífsstefnu;
2, til þess að starfa í anda hans og eftir þeirri fvr-
irmynd, sem hann hefir gefið oss;
3, til þess að eignast með honum sælluríkt samfélag
við guð hið innra í sálinni.
Þett.) nær augsýnilega út yfir allan kristindóminn,
því þegar Jesús segir: „Komið til mín!“—þá er hann
að bjóða alla þá blessan og alla þá hjálp, sem lifandi trú
hefir í sér fólgna.
„Því að ok mitt er indælt og byrði mín létt“—segir
frelsarinn. Óteljandi eru þeir menn, sem síðan liafa
borið vitni um sannleik þessarra orða, cg verið sann-
fo'rðir um, að kristindómrinn er dýrmætasti boðskapr
inn, sem heyrzt hefir Iiér á jarðríki. Af öllu sorglegu,
sem til er, er því ekkert eins sorglegt og það, er menn
kasta þessu frá sér svo sem það væri einskisvirði. Allt,
sem gott er, er því miðr fótum troðið af einhverjum
Láti enginn það villa sér sjónir. TTlustum heldr allir á
það, sem þeir menn segja, er verulega reynslu hafa af