Sameiningin - 01.03.1910, Qupperneq 23
J9
niðjum Kains, þar til hin vaxandi spilling heimsins leið-
ir vfir hann refsidóm guðs í syndaflóðinu. Ný byrjun
•er gjör með sáttmála drottins við Nóa; jörðin byggist
aftr, og fólkið skiftist í kynkvíslir. En við vaxandi guð
leysi og fráfall þjóðanna til lijáguðadýrkunar kemr
fram næsti þáttrinn í opinberun liins guðlega tilgangs,
er köllunin frá guði kom til Abrahams og fyrirlieitin
voru gefin honum og niðjum lians. Loforðið uin bless-
an, sem fyrst var gefið í Eden og síðar ánafnað niðjum
Sems, er nú f sáttmála drottins við Abraham með á-
kveðnum orðum tileinkað þeim ættföður og niðjum lians.
Ekki er þó tilgangrinn sá, að einni ])jóð sé veitt sérstök
vildarkjör, heldr á allr heimr að njóta blesisunar af að
lokum. (Sjá 1, Mós. 12, 3: „Af þér skulu allar ættkvíslir
jarðarinnar blessun hljóta“). Þegar í þessuin fyrstu
þáttum söguunar kemr útvalningar-lögmálið í ljós, er
guð af náð sinni lætr vfsi til víðtœkrar blessunar þróast
hjá sérstökum ættlegg, og helzt þetta markverða einkenni
sögunnar fiá upphafi til enda. Ættin, sem erfir fyrir-
heitið, dregst enn saman, ])ví að allt er undir ]>ví komið,
að reitrinn sé smár og merkjalínur glöggar. Af sonuin
Abrahams er ísak valinn, en ekki ísmael, iif sonum ís-
aks Jakob, t n ekki Esaú, og meðal sona Jakobs verðr
Júda f'yrir sérstöku vali, er konungdœmið er lieitið niðj-
um hans. Ættfeðra-öldin, með sinni merku sögu um
marg-ítrekaðan sáttmála drottins, um dásamlegar ráð-
stafanir forsjónarinnar, og undirbúninginn — með uj)})-
hefð Jósefs — undir dvölina í Egyptalandi, endar með
því, að Jakob flvzt þangað með sonum sínum. Þar
fjölgar fólkinu óðum, því landrými er mikið og önnur
skilyrði góð, unz konungaskifti leiða það í eldraun þá, er
bræðir það að lokum saman í sérstaka þjóðarheild.
Næsta tímabil, öld Mósis, er nátengd ættfeðra-öld-
inni, því að á henni eru loforð efnd, sem gefin voru feðr-
unum. óþarft er að orðlengja fœðingarsögu þjóðarinn-
ar — söguna urn fœðing og köllun Mósis, burtförina úr
Egvptalandi, Sínaí-sáttmálann, agann í eyðimörkinni,
landnámið í Kanaan, landinu, sem guð hafði áðr heitið
Abraham. Skakkaföll og þjóðfélagsleysi á dómara-Öld-