Sameiningin - 01.07.1910, Síða 1
amcimitgm.
Mánaðarrit til stuðnings Jcirkju og kristindómi ísleadinga.
gefið út af hinu ev. lút. kirkjuféLagi Isl. í Vestrheimi
KITSTJÓRI JÖN BJÁJiNASON.
XXV. árg. WINNIPEG. JÚLÍ 1910. Nr. 5
Gegnum hættur, gegnum neyö-
JÚBÍL-RŒÐA
á aldarfjórðungs afmæli kirkjufélagsins ísl. lút., flutt
sd. 19. Júní í Fyrstu lút. kirkju í Winnipeg
af ritst. „Sam.“ (J. Bj.).
En nóttina eftir stóð drottinn hjá honum og
sagði: Vertu hughraustur, því eins og þú hefir vitn-
að um mig í Jersúalem, eins her þér að vitna um
mig í Róm.
Þegar dagaði, gjörðu Gyðingar samtök og heit-
strengdu með dýrum eiði, að þeir skyldi ekki eta né
drekka fyrr en þeir hefði Pál af dögum ráðið.
Pg. 23, n. 12.
Löngu áðr en mér varð um það kunnugt, að hlutverk
mitt myndi verða að prédika við þetta stórhátíðar-tœki-
fœri, var mér svo að kalla fenginn texti þessi úr guðs
orði í hendr. Hann kom, mér ósjálfrátt, fljúgandi upp
í faðminn á mér, einsog fugl frá guði í eilífðinni. Eg
var að eiga við söguna um kristniboðsstarf Páls postula,
húa mig undir að skýra hana í sunnudagsskólanum hér
í kirkjunni. Og er eg var þarna staddr í sögu þeirri,
iyftust þessi tvö samstœðu vers í 23. kap. Gjörðabókar-
innar, hið 11. og 12., upp í huga mínum, tóku sig einsog
út úr sögumálinu hinu öllu, og eg fann, að hér mátti ekki
lauslega fara yfir eða framhjá. ■ Hér er vissulega á-