Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.07.1910, Qupperneq 23

Sameiningin - 01.07.1910, Qupperneq 23
hann ekki tekið gilda úrsögn Foam Lake safnaSar, ekki heldr Pem- bina-safn. og r>ingvallasafn. fEyford'J, því aö áliti forseta voru þær úrgöngur móti lögum sjálfra þeirra safnaöa. — Söfnuöir kirkjufé- lagsins teljast nú 40. Viö þaö, er Garöar-söfnuör hafði þaö fram í fvrra sumar að ganga út úr kirkjufélaginu, sleit hópr manna sig frá þeim söfnuöi og myndaði sérstakan söfnuö—Lúterssöfnuð; sókti söfnuðr sá nú um inngöngu í kirkjufélagið, og var honum veitt inn- ganga, og erindsrekum þeim tveim, er þaðan komu, full þingréttindi. Prestar kirkjufélagsins eru nú þrettán. En einn þeirra, séra Pétr Hjáímsson, gat þó ekki komið. Hann býr sem kunnugt er afar langt frá Winnipeg—að Markerville í Islendinga-byggðinni í Alberta. Tveir trúboðar, frá prestaskólanum lúterska í Chicago, sem nú einsog áðr starfa fyrir kirkjufélagið, hr. Haraldr Sigmar og hr. Carl J. Ólson, sátu á kirkjuþingi þessu auk prestanna með úillum þingréttindum. Þótt Pembina-söfn. og Þingvallasöfn. hefði með atkvæðafjölda samþykkt að segja skilið við kirkjufélagið, sendu þó minni hlutar þeirra safnaða erindsreka á þing, og fengu þeir erindsrekar viðr- kenning. Þeir, sem sendu þá brœðr, kröfðust þess, að við hóp þeirra yrði kannazt sem hinn rétta söfnuð. Að því er Þingvallasöfn- uð snertir veitti þingið þá viðrkenning. En þingið fól forseta kirkjufélagsins og skrifara að rannsaka, hvernig stœði á úrgöngu- samþykktinni í Pembina-söfnuði, því skilríki þóttu þar ekki nœgi- leg fyrir hendi. Erindsrekarnir frá söfnuðunum, sem sæti var veitt á þinginu,- voru 43 alls. Forseti kirkjufélagsins, séra Björn B. Jónsson, var endrkosinn í einu hljóði, eins skrifari, séra Friðrik Hallgrímsson; féhirðir var hr. Jón J. Vopni kosinn einnig í einu hljóði. Áðr gegndi þvi em- bætti hr. Elis Thorwaldson, forseti hins úrgengna Víkrsafnaðar. Vara-embættismenn eru: séra N. Steingr. Þorláksson, v.-fors., séra Kristinn K. Ólafsson, v.-skr. fþeir báðir áðr), og hr. Friðjón Frið- riksson, v.-féh. - Helztu mál á dagskrá þessa þings voru: heima-trúboð, heiðL ingja-trúboð, skólamál, tímarit kirkjufélagsins; auk þess lokið við endrskoðan grundvallarlaganna og safnaðarlaga (til leiðbeiningar nýjum og gömlum söfnuðum félagsinsj. Annan þingdaginn, laugardag, að kvöldi var guðsþjónusta sér- stök helguð heimatrúboðinu; prédikaði þá séra Jóhann Bjarnason og hafði fyrir texta þessi orð í Pg. 16, 30. 31: ,,Hvað á eg að gjöra til þess eg verði hólpinn? — Trúðu á drottin Jesúm Krist; þá verðr þú hólpinn og þitt hús Heima-trúboði kirkjufélagsins verðr hagað einsog að undan- förnu undir umsjón sérstakrar þriggja manna nefndar. 1 hana var nú—að nýju—kosinn séra Rúnólfr Marteinsson, en kjörtíð hinna

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.