Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.07.1910, Side 31

Sameiningin - 01.07.1910, Side 31
!59 a’ðist aS kenningum Swedenborgs-lærisveina, en var þó lútersku kirkjunni ávallt vinveittr. Margrét Óldfía Ólafsdóttir, eiginkona Bjarna SigurSssonar aö Stony Mountain ffrá Arnarstapa í Mýrasýsluj, andáSist í Winnipeg 4. Júní, sjötíu ára gömul, margra barna móSir og mikilsvirt kona. Frá Argyle-byggð. 28. Janúar síSastl. andaSist á heimili Páls sonar síns aS Brú Andrés Jóhanncsson. Hann var fœddr í HéSinshöfSa á Tjörnesi 10. Okt. 1844. Gekk 1869 aS eiga ekkjuna ValgerSi Björnsdóttur. Þau bjuggu tuttugu fyrstu hjúskaparárin heima á íslandi, en fluttust 1889 hingaS til lands, og settust þá aS hér í byggSinni; hér dvöldú þau á vegum barna sinna þaS, sem eftir var æfinnar. Andrés heitinn var reglumaSr mikill í öllu, bókelskr mjög, fremr fáskiftinn, en vinr vina sinna. HeilsubilaSr var hann síSustu árin, en ekki varS þó banalega hans nema tveir dagar. Hann var meSlimr FríkirkjusafnaSar, og var jarSsettr í grafreit þess safnaSar 1. Febr. Sex vikum tæpum síSar (10. MarzJ andaSist kona hans Valgerðr Björnsdóttir. Hún veiktist sama daginn sem hann dó, og reis ekki úr rekkju eftir þaS. Hún var fœdd á MeiSavöllum í Kelduhverfi 11. Ágúst 1835. Átján ára gömul giftist hún Sigvalda Magnússyni, og voru þau átta ár í hjónabandi. Þeim varS fimm barna auSiS; tvö þeirra dóu ung, en þau, sem lifa, eru: Björn Walterson, Jósef Walter og Halldóra, kona Brynjólfs Gunnlaugssonr hér í byggSinni. Átta árum síSar giftist hún aftr, Andrési Jóhannessyni. Börn þeirra voru fimm; tvö misstu þau ung heima á íslandi, en hin þrjú, sem hingaS fluttust meS þeim og öll eiga heima hér í byggSinni, eru: Karólína Rannveig, kona Þorfinns Jóhannessonar, og þeir brœSr Jóhannes og Páll. ValgerSr heitin naut alla æfi góSrar heilsu og var mesta dugnaSarkona; IjósmóSurstörfum gegndi hún lengi, bæSi heima á íslandi og hér, og fórst henni þaS mjög vel; hjartagóS var hún og sá ekki í þaS aS leggja eigin hagsmuni í sölurnar, þegar aSrir þurftu aSstoSar hennar viS. Hún var jarSsett í grafreit Frí- kirkjusafnaSar 13. Marz síSastl. GuSmundr Halldór Björnsson, sonr Björns bónda Björnssonar á Grashóli, andaSist 23. Febr. síSastl., 26 ára gamall. Hann var mestan hluta æfinnar'mjög bilaSr á heilsu, en bar þjáningar sínar meS stakri þolinmœSi. Hann vari greindr vel, mjög gefinn fyrir bœkr og hljómlist og skrifari góSr; af trúuSum foreldrum lærSi hann í œsku aS leita huggunar fagnaSarerindisins í mótlæti sínu. Hann tilheyrSi FríkirkjusöfnuSi. Jón Þorsteinsson frá Hólmi og kona hans urSu fyrir þeirri sáru sorg aS missa 16. Febrúar síSastl. einkadóttur sína, Láru, tæplega hálfs árs gamla Kirkja FríkirkjusafnaSar er nú komin undir þak.

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.