Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.06.1911, Page 8

Sameiningin - 01.06.1911, Page 8
IOO fœrt að vera í kristnum söfnuði. Og skal eg nú athuga orðrétt það, sem þú segir: Eg verð ekkert betri maðr, þó eg gangi í söfnuð — segir þú. All-örðugt finnst mér það sé fyrir þig að staðliœfa þetta. Það er enganveginn svo hœgt sem þér rétt á þessu augnabliki sýnist, að leggja gœði sálar þinn- ar á metaskálar og mæla nákvæmlega, live þung þau eru. Ekki lieldr er það neinn liœgðarleikr að greína sundr gœði sálarinnar til að vita, hve mikið hefir runnið þang- að inn af einhverri sérstakri orsök. Vér þurfum ekki ætíð að ver,a að liugsa um, live mikið gott vér sjálfír höfum af því, sem fyrir oss liggr að gjöra. Vér þurf- um að vita, hvort það er rétt, með öðrum orðum: hvort það er vilji guðs. Ef vér sannfœrumst um það, þurfum vér ekki eftir neinu framar að spyrja. Sértu ráðvandr maðr og vel kristinn, og búist ekki við, að þú takir nein- uni framförum við að ganga í söfnuð, má vera, að þú með því að vera lifandi, starfandi meðlimr kristins safnaðar getir stutt að því, að einhver annar verði að betra manni. Annars er eg hræddr um, að ef þú verðr ekkert betri maðr við það að vera í söfnuði, þá sé það þér sjálfum að kenna, en ekki söfnuðinum. Eg hefi það fyrir satt, að öll andleg viðleitni manns til að gjöra það, sem rétt er, hljóti að efla hið góða í sálum þeirra. Kœmir þú inní aldingarð, auðugan af ágætum ávöxtum, og þér væri boðið að njóta ávaxtanna, en þú vildir ekki snerta neinn þeirra, þá mættir þú ekki kenna aldingarð- inum um það, heldr sjálfum þér. Hver einasti kristinn söfnuðr er aldingarðr, og aldini hans eru tœkifœrin, sem þar veitast mönnum til jiess að láta gott af sér leiða. Hættu, vinr! að vera alltaf að hugsa um sjálfan þig. Það kemr jafnvel stundum fyrir, að menn liugsa of mikið um svndir sínar. Láttu þér koma í hug, að þú getir gjört eitthvað öðrum til góðs. Fylgdu dœmi lausnara þíns, sem ekki kom hingað á jörð til þess að láta ]ijóna sér, lieldr til þess að þjóna öðrum og láta líf sitt tií lausnargjalds fvrir marga. Yertu þess vís, að það er rétt fyrir þig að ganga í kristinn söfnuð og L

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.