Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.06.1911, Page 9

Sameiningin - 01.06.1911, Page 9
101 standa í lionum sem lifandi og' starfandi líerisveinn Jesú Krists. Eg grœdi ekleert á því — segir þú. Það er nokkuð eftir því, við livað þú átt. Ef þú ert að tala um pen- inga, tel eg víst, að þú tapir á því. í söfnuði er það skylda ])ín að styðja málefni safnaðarins með fjár- framlögum eftir því, sem drottinn hefir gefið þér efni; en málefninu andlega tilheyrir nokkur hluti efna þinna livort sem er; svo við það að ganga í söfnuð og stvrkja hann með fé þinu ert þú aðeins að gjöria það, sem þú áttir að gjöra áðr. Það er vilji guðs, að ])ú gefir kirkju lians sanngjarnan hluta af eigum þínum; svo þegar þú gjörir þetta, er ekki verið að beita þig neinni rangs- leitni, heldr ert þú að beita drottin rangsleitni, ef þú gjörir’ það ekki. En áttu annars í öllu, sem þú g’jörir á lífsleiðinni, að vera að hugsa um það, hvort þú grœð- ir? Ef þú réttir blásnauðum aumingja hálfan dal, ertu þá að hugsa um, hvort ]m grœðir nokkuð á því ? Ef þú gjörir það til þess að grœða á því, hve mikils virði er þá slíkt góðverk ? Auðvitað dettr þér ekki gróði í liug, ef þú ert að gjöra sannarlegt góðverk. Þú spyr aðeins, hvort þörf sé á hjálp og hvort þú getir veitt liana. Satt er það þó, að einhver gróði fylgir öllu því góða, sem vér gjörum; en ávöxtr góðverkanna hverfr algjörlega, ef gróðahugsun blandast saman við tilgang vorn með þeim. í raun og veru er það sannast góðverk, sem oss kemr ekki í hug að sé góðverk. Því sagði Jesús: ,,Nær þú vilt gefa ölmusu, þá viti ekki hönd þín hin vinstri, hvað sú hœgri gjörir“ (Matt. 6, 3). í því að gjöra rétt er ætíð gróði—, sá gróði einmitt, sem mölr eða ryð getr ekki grandað og þjófar fá ekki eftir grafið eða stolið. (Meira.)

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.