Sameiningin - 01.06.1911, Qupperneq 21
H3
frá dauðum. En sá, sem liefir vald yfir lífi og dauða,
er guð.
Upprisa Jesú saunar því guðdóm Jesú liverjum
þeim manni, sem ekki vill lieldr treysta eigin ímyndun
en sannsögli heimildarrits þess, sem verið hefir um-
talsefni mitt um liríð.
Komið hefir það fyrir, að Jóhannesi hefir verið
borin vitfirring á brýn. Ingersoll og' hans fylgifiskar
sumir hverjir halda því fram. Til að frainsetja aðra
eins staðliœfing í alvöru virðist þurfa að loka. bæði aug-
um og eyrum. Höfundr fjórða guðspjallsins framsetr
þá dýpstu speki, sem nokkursstaðar er til á prenti, en
liann gjörir það á einföldu barnamáli. Öll þau ein-
kenni, sem benda á veiklaða geðsmuni, eru þeirri ritsmíð
jafn-fjarri. Kósemi höfundarins og skarpskyggni hans
eru tvíbura-systr.
Hér læt eg staðar numið. Persónulega er eg' sann-
fœrðr um ritvissu guðspjallsins og sa.nnsögli höfundar-
ins, — og þá um leið um það, sem guðspjallið sérstak-
lega rœðir um: guðdóm Jesú, frelsara mannanna. Ekki
get eg fyrir guði eða mönnum ásakað sjálfan mig um
það, a.ð eg hafi að þessu leyti leitazt við að þagga niðr
rödd skvnsemi minnar; miklu fremr liefi eg leitazt við
að hagnýta ljós hennar eftir föngum. Trú mín og
skynsemi bera um jietta aðal-atriði kristindcn s'i s som-
hljóða vitni, og fœra mér frið og rósemi í bardaga lífs-
ins og fullvissa mig um frið að stríðinu loknu. En
honum, sem af náð sinni veitir bæði trú og skynsemi,
sé þökk fyrir allt.
Minnisvaröinn.
Þótt minning Jóns SigurSssonar, sem nú réttum hurídraS árum
frá fœöing hans er hátíðlega haldiS á lofti af þjóö vorri í heild
sinni, sé ekki kirkjulegt mál, vill „Sameiningin" þó sýna, aS hún
er hjartanlega hlynnt því hátiöarhaldi. í því skyni birtir hún
mynd hans í þessu blaSi. En samfara myndinni er bréf, sem fyrir
skemmstu var sent héöan til íslands. Þaö er frá nefndinni, sem
gekkst fvrir fjársamskotum meöal íslenzks almennings í Canada og