Litli Bergþór - 01.03.1992, Blaðsíða 18
Með 17 klyfjahesta á Kjöl..... frh.
þrír, niður með gilinu þegar við máttum fara
frá og náðum fljótlega dýnuböggunum en
timburbagginn ætlaði aldrei að koma að landi.
Samt tókst okkur að ná til hans niður undir
Hvítá. Var það mikill músarburður að koma
honum aftur uppeftir.
Þegar við komum aftur til hinna vorum þeir
búnir að taka ofan af öllum hestunum, og
þarna biðum við sunnan við gilið í þrjá tíma
unsfjaraði þaðaðfærtþótti. Hestarnirhímdu
í þúst en við tjölduðum og hituðum okkur kaffi,
sem kom sér vel, því við vorum orðnirtöluvert
blautir.
Eftir þrjátíma lögðum við svo af stað. Þávar
minnkuð rigningin en gilið illfært, en allt
slampaðist þó yfir það, og ferðin gekk vel inn
í Hvítárnes. Þangað komum við kl. hálf níu
um kvöldið og náttuðum okkur. Þá var komið
besta veður. Mikið var af ísjökum um vatnið
og þeir alltignarlegir, sumir marga metra upp
út vatninu og tóku á sig ýmsar myndir. Sumir
líktustskepnum,aðrirhúsumeðafjallstindum.
Fannst mér mjög hrikalegt og tilkomumikið í
Hvítárnesi þetta kvöld.
Við vöknuðum snemma næsta morgun,
hressir og hvíldir. Töluverðan tíma tók alltaf
að beisla alla hestana, leggja á og láta upp á
þá. Við lögðum af stað þennan morgun kl.
9.15. Þá var besta verður, hæg norðan gola
og bjartviðri.
Við áðum sunnan undir Kjalfelli, borðuðum
og hituðum okkur kaffi. Þar voru komnar
hagasnapirog nú varkominn breiskjuhitisem
hélst fram undir kvöld.
Ferðin gekk hægt norður Kjalhraunið, því
þar var víða ógreitt fyrir áburðarhestana og
töluverður snjór. Um sexleytið komum við á
Hveravelli og stönsuðum þar. Dálítill gróður
var kominn meðfram hveralæknum og
volgrunum, og var hann vel þeginn næring
fyrir svanga hestana.
Enn var látið upp og lagt af stað, nú í síðasta
áfangann. Við fórum beinustu leið norður
ölduna frá Hveravöllum og yfir Þegjanda þar
norðuraf. Þegjandi varnú allstórtvatnsfall og
kolmórautt, því svo mikið hafði hlánað úr
fjöllunum í hitanum um daginn. Jón leitaði
fyrir að sem grynnstu vaði. Svo kallaði hann:
Hagkvæm lausn
Allar nánari upplýsingar og pantanir
||H||PBB?sírnal?8^6675CrB,BIITBB
LÍMTRÉ HF
FLÚÐUM, HRUNAMANNAHREPPI
801 SELFOSS • SÍMI 98-66750
Litli - Bergþór 18