Litli Bergþór - 01.03.1992, Blaðsíða 24

Litli Bergþór - 01.03.1992, Blaðsíða 24
Umhverfis jörðina..frh. Byrjað með morgunkaffi kl 7, síðan morgunmat, formiðdagskaffi, sem hún færði okkur á vinnuvöllinn, hádegismat, síðdegiskaffi, kvöldmat og bjór eftir matinn. Og vel var það útilátið. Lambakjöt í hádegis- og kvöldmat, steiktar kartöflur, grænmeti og ís með ávöxtum í eftirrétt, eða heimabakaða "passions"-ávaxta kakan hennar. Og að sjálfsögðu voru allar kökur og smákökur með kaffinu heimabakaðar. - Mér datt auðvitað strax í hug íslensk húsmóðir! - Eins gott að við stoppuðum ekki lengur en þessa 3-4 daga, annars hefðum við endað í sama ásigkomulagi og karlpeningurinn í fjölskyldunni. Hún þvoði líka allan galla af liðinu í höndunum, - í baðkarinu, - og kom svo og dútlaði á niðurrifsvellinum í frístundum. Og svo sagðist hún ekkert geta gert! - Eldhúsverk væri það eina sem hún kynni, og því væri best að hún sæi um þau. Vildi enga hjálp, jafnvel þó í boði væri. - Dálaglegt að ala synina svona upp! - Á hverju kvöldi eftir vinnu fórum við og syntum í vatnstank nokkra km frá þorpinu. Þetta var járntankur, ekki meira en 5 m í þvermál, með drullulagi á botninum. Vatninu pumpað upp með vindmyllu. En eftir 10 tíma vinnu í steikjandi hita í þurru eyðimerkurloftslagi, var okkur nokkuð sama hvernig vatnið leit út, baraef það rann. Yfirleitt voru hópar af kengúrum og kindum í kringum vatnsbólið þegar við komum. Því miður var kengúruskyttan í fríi, svo við Anna fengum aldrei kengúrukjötið, sem Margaretavarbúin að lofa okkur. Sjálfir éta Ástralir ekki kengúrukjöt, nota það í mesta lagi sem hundafóður. Þeir voru þó staðnir að því árið áður að selja það til USA (minnir mig) sem 1. flokks nautakjöt og þótti mikið hneykslismál. Frá Kingoonya fórum við á puttanum til opalnámubæjarinsCooper Pedy, sem er u.þ.b. miðja vegu á leiðinni til Alice Springs. Þar er ekkert nema rauður sandur og væntanlega ópalar í jörð. En þarna lifa samt um 3000 manns. Flestir búa í jarðhýsum, oft gömlum námum, vegna hitans á daginn, en hann getur farið upp í 50° C. Á nóttunni er svalt. í jarðhýsunum er hinsvegar þægilegur hiti, 22 - 24° C allan sólarhringinn og allan ársins hring. Kirkjan í Cooper Pedy. Hún er í gamalli opalnámu eins og flestir bústaðir aðrir. Á tjaldstæðinu í Cooper Pedy hittum við þjóðverja, sem höfðu gefist upp á ópalnámugreftri og voru á förum til "Ayers Rock". Við fengum far með þeim, í tveim bílum. Diethard, sá sem við Clint fengum far með var hálfgerður furðufugl, en besta sál. Bíllinn hans var að hruni kominn, og ekki skánaði hann á þvottabrettum áströlsku malarveganna. Það sprakk og það sauð á bílnum. Diethard var ekki mikill ökuþór. Svo var hann líka mjög áhugasamur um umhverfið og stansaði í hvert sinn sem hann sá eitthvað hreyfast nálægt veginum, eða merkilegt tré eða stein bar fyrir augu. Þá þreif hann upp kíkinn og grandskoðaði umhverfið í einar 10 mínunturáðurenhaldiðvaráfram. Fyrirvikið vorum við nokkuð lengi á leiðinni, en sáum margt sem við hefðum annars ekki tekið eftir á þessari annars tilbreytingalausu 1000 km leið. Svosem eldrauðeyðimerkurblóm, fugla, kengúrur og kanínur og jafnvel dingóhund í fjarska. (Dingóar eru viltir Ástralíuhundar, sem stundum eru í slagtogi með frumbyggjunum.) Ayers Rock, - eða Uluru eins og frumbyggjarnirkallaklettinn,-ereinmanalegur klettur, nokkrir kílómetrar að ummáli og 358 m hár, sem rís upp úrflatneskju mið-Ástralíu. Innsti kjarni ævagamalla fellingafjalla, það eina sem staðist hefur veðrunina. Kletturinn Litli - Bergþór 24

x

Litli Bergþór

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.