Litli Bergþór - 01.03.1992, Blaðsíða 19
Með 17 klyfjahesta á Kjöl.... frh.
„Líttá sjáðu, komið þið hérna.“ Þar var vatnið
í kvið og grýtt í botninn svo klárarnir voru að
hnjóta og hálf detta, sem varð til þess að silar
slitnuðu á tveimur böggum. Annar var
strásykurbagginn, sem
var í þéttum strigapoka
og ódrýgðist því all
verulega. Hinn var
náðhúsefnið á Jarpnasa,
sá bagginn sem ekki lenti
í Sniðbjargagili. Okkur
tókst að bjarga þessu upp
úren blotnuðum rækilega
og erfitt fannst okkur
náðhúsefnið verða okkur
íferðinni. Enaðtignarlegu
húsi var það orðið þegar
ráðskonan þurfti að nota
það. Þetta vað á Þegjanda nefndum við
Sykurvað upp frá því.
Klukkan hálf tíu um kvöldið komum við svo
á áfangastað að Ármótum. Voru víst bæði
menn og hestar fegnir að ferðin var á enda.
Ég man að um mig fór einhver innri
sælukennd, eins og ég væri að koma heim úr
langri og erfiðri ferð. Þó var þarna ekkert sem
minnti á mannabústað, aðeins lítill
hesthúskofi. En umhverfið, lækirnir, fjöllin,
jöklarnir og öræfin var allt
eins og sumarið áður.
Mér fannst það allt jafn
heillandi og bjóða mig
velkominn á ný.
Læt ég nú þessum
ferðaþætti lokið, hef ég
sleppt ýmsum
smáatriðum til að verða
ekki alltof langorður.
Þetta munu vera rúmir
100 km og voru nógu
stífar þrjár dagleiðir með
baggahestana, sem báru
byrðar sínar vel þessa leið og sýndu eins og
fyrr þrautseigju íslenska hestsins. í þessari
ferð fyrir aðeins 40 árum var okkur áreiðanlega
hesturinn þarfasti þjónninn.
tjaldbúðirnar á Kili og
Þegjandi í baksýn.
SUNNLENDINGAR ATHUGIÐ!
Mikið úrval af vörum til
fermingargjafa á frábæru verði
SRÁRKOMATIC
KENWOOD
INNO'HIT
AIWA
ALTAl
Viðgerðir á öllum gerðum rafeindatækja. Verslið hjá
fagmönnum, það tryggir gæði og þjónustu.
GAGNHEIÐI 40 - 800 SELFOSSI
SÍMI 98-22853
Litli - Bergþór 19