Litli Bergþór - 01.03.1992, Blaðsíða 11

Litli Bergþór - 01.03.1992, Blaðsíða 11
Jónas sannfærði mig og ég valdi kirkjutónlistina. FóríTónskólaÞjóðkirkjunnar, þar sem ég lærði hjá Hauki Guðlaugssyni og GlúmiGylfasyni. EftirútskriftúrTónskólanum fór ég til Þorlákshafnar, reyndar í gegnum Jónas Ingimundarson, til að leysa af sem organisti, þegar faðir Jónasar, Ingimundur dó. Við áttum tvö góð ár í Þorlákshöfn og þar eigum við enn mikið af góðum vinum. Ég var með kirkjukórinn, eða söngfélag Þorlákshafnareinsog kórinn heitir. Viðfórum m.a. saman í söngferðalag til Norðurlanda. Svo var ég líka með skólakór og barnakirkjukór auk tónlistarskólans. Það var gaman að finna hve mikið tónlistaráhuginn jókst baraá þessum tveimurárum. Það mátti segja að það væri komið píanó inn á hvert heimili. Aðstæður voru auðvitað svolítið öðruvísi þar en hér, þar bjuggum við inni í miðjum bæ, og börnin voru heimagangar hjá okkur allan daginn. Ég gat kallað á börnin hvenær sem var og við gerðum margt sprell saman, t.d. gáfum við út kasettu með Barnakór Þorlákshafnar. Hérvalda vegalengdirnar því að allt verður að miðast við skólann og skólabílana. Hvað með þig Hólmfríður, hvað gerðir þú eftir gagnfræðaskóiann? Hólmfríður: Ég lærði hárgreiðslu í 3 ár í Iðnskólanum og var í verknámi á Hótel Loftleiðum hjá Sigríði Finnbjörnsdóttur. Eftir námið vann ég áfram í 2 ár á sömu hárgreiðslustofu, og síðan var ég með hárgreiðslustofu þau tvö ár sem við bjuggum í Þorlákshöfn. Þarvarég líkameðdanshópa í grunnskólanum, en ég sótti danstíma sem barn, frá 8 til 16 ára aldurs. Og svo fóruð þið til Þýskalands. Hvað voruð þið lengi þar? Hilmar: Við vorum í 6 .ár í Hamborg í Þýskalandi. Tilviljuninersvoundarleg. Þetta byrjaði allt með því að Haukur Guðlaugsson sendi mig til gamals skólabróðursíns, Gerhart Dickels, sem er organisti í St.Michaelis kirkjunni í Hamborg og prófessor við virtan tónlistarháskóla þar, "Hochschule fur Musik und darstellende Kunst". Ég var hjá honum í eitt ár, og hann undirbjó mig undir háskólanámið. Þarna æfði ég mig í kirkjunni hans, sem er gömul barrokk kirkja með þremur orgelum. Ég gat ekki verið heppnari með stað. Þýskaland er svo mikið tónlistarland, land Bachs og barrokksins og Beethovens, og tónlist er allsstaðar á mjög háu plani. Jafnvel litlir sveitakórar flytja flókin kórverk eins og ekkert sé og það er vegna þess að fólk er alið upp við þessa tónlist frá blautu barnsbeini. Svo er Hamborg líka mikil menningarborg með sína frægu óperu og tónlistarlíf allsstaðar. Maður kemur ekki samur heim eftir að hafa búið þar. Barnakór Reykholtsskóla á söngæfingu. Hjá Dickel var ég að skoða kirkjutónlist og klassískatónlistogeftiráriðtókéginntökupróf inn í kirkjumúsikdeildina í háskólanum, með orgel og kórstjórn sem aðalfög. Þar var ég áfram hjá Dickel fyrstu árin, en skipti svo um kennara og fór að læra á orgel hjá Rose Kirn, sem er einn frægasti sérfræðingur þjóðverja í gamalli barrokktónlist. Ég lærði líka á önnur hljóðfæri, svo sem píanó og sembal, ferðaðist með skólanum um þýskaland og skoðaði gömul barrokk hljóðfæri og fékk mikinn áhuga á guðfræði. Ég útskrifaðist svo úr orgeldeildinni síðastliðið vor, aðundanteknum lokatónleikum, sem ég er að undirbúa hér Litli - Bergþór 11

x

Litli Bergþór

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.