Litli Bergþór - 01.07.1992, Side 3
Ritstjómargrein
Þetta blað er í umsjá ritnefndar með endurnýjuðu umboði. Aðalfundur Umf.
Bisk. sýndi henni það traust að endurkjósa hana, og þakkar hún það.
Hvað sem um árangur hennar má segja við að koma út áhugaverðu blaði
fyrir alla, liggur þó fyrir að henni tókst að koma út þremur blöðum á
starfsárinu með ýmiskonar efni á einum 70 síðum. Útgáfan hefur verið
kostuð með áskriftargjöldum og auglýsingum.
Nóg um það.
Þegar þetta er ritað er sumarið komið. Væntanlega vona allir að það verði
gott, en ekki er víst að mælikvarðinn sé allsstaðar sá sami. Nú er sumarið
oftast metið eftir sólfari. Flestir vilja fá marga góða daga til að spóka sig og
liggja í sólskini. Ekki er endilega víst að svoddan veðurfar sé það besta fyrir
gróðurinn. Hann þarf auk birtunnar bæði hita og raka. Hitifylgirað
sjálfsögðu oftast sólskini.
Veðurfræðingar eru að vísu stundum að spá því að sumarið verði kalt, þar
sem gosmistur í háloftunum yfir okkur frá eldgosi á Filippseyjum muni draga
úr hita. Regnið' veldur oft mörgum ama en er ein af forsendum mikillar
sprettu, þar sem ekki er unnt að vökva.
Þó margir hér í sveit byggi afkomu sína á öðru en vexti jarðargróðurs eiga
aðrir mikið „undir sól og regni“. í vissu tilliti á þetta frekar við í sumar en
áður, þar sem nú er verið að sá korni hér í meiri mæli en áður. Einir sjö
bændur ætla að reyna kornrækt. Þetta mun að vísu ekki vera í stórum stíl
og er litið á þetta fyrst og fremst sem tilraun. Er það mjög lofsvert að þessir
bændur skuli leggja fram fjármuni og erfiði til að reyna að komast að því
hvort korn nær hér þroska. Til skamms tíma mun það hafa verið talið
næstum vonlaust. Þessi ræktun byggist annars vegar á því að mögulegt sé
að sá nokkuð snemma vors og hins vegar að sumarhiti sé sæmilega hár.
Ýmislegt bendir til þess að veðurfar sé hér betra til þessa en áður var talið.
Má í því sambandi benda á góðan vöxt trjáa á ýmsum stöðum hér í sveit.
Einnig hefur komið í Ijós eftir að veðurathugunarstöðin kom í Hjarðarlandi að
dagshiti er þar oft meiri en annars staðar á landinu.
Hætt er við að í köldum árum verði þessi ræktun fyrir áföllum a.m.k. til að
byrja með, og vilja þá ef til vill sumir slá því föstu að þetta gangi ekki. í því
sambandi er hollt að minnast þess að íslenskir bændur hafa alltaf þurft að
glíma við sveiflur í veðurfari og alveg fram á þessa öld féll hér búfé í
hörðustu vorum. Samt var haldíð áfram og reynt að búa sig undir næsta
harðindakafla.
Með bjartsýni og þrautseigju næst árangur. Ef til vill fáum við að sjá
byggakra bylgjast hér í sveit þegar líður á þetta sumar. Þökk sé
frumherjunum sjö.
A.K.
Litli - Bergþór 3