Litli Bergþór - 01.07.1992, Page 25
Umhverfis jörðina..frh.
Tim og Bruce,
ferðafélagaar mínir til Perth
við dæmigert ástraiskt vegaskilti.
Það tók tvo daga að keyra suður til Adelaide þar sem
við stoppuðum í 3 daga áður en við héldum áfram
næstu 3000 kílómetrana til Perth. Sluppum rétt
mátulega við að sjá skógarelda, sem kviknuðu fyrir
utan Adelaide daginn eftir að við fórum. En þeir náðu
sem betur fer aldrei inn í borgina.
Við náðum til PERTH á tveimur og hálfum degi, með
því að keyra alla aðra nóttina. - Og allan tímann var
ekkert að sjá nema óravíða flatneskju með lágum
lyng- eða runnagróðri, og veginn, þráðbeinan hundrað
eftir hundruð km, hverfa út við sjóndeildarhringinn. Á
stöku stað hafði þó verið sett sikk-sakk beygja á
veginn, svona til að vekja bílstjórana! Við urðum
reyndar vitni að því að bílstjórar eiga það til að sofna
undirstýriásvonavegum.Tókum eftir að trukkur, sem
við höfðum keyrt á eftir drjúga stund var ansi reikull í
rásinni og allt í einu hvarf hann í rykmekki út af
veginum. Sem beturferer hvergi hátt útaf og trukkurinn
skrölti aftur upp á veg. En við vorum heppin og
sluppum slysalaust, ef frá er talin lítil kengúra sem varð
fyrir bílnum eina nóttin.
Upphaflega ætlaði ég að ferðast um vesturströnd
Ástralíu í mánuð og aðeins búa nokkra daga hjá
kunningjum mínum í Perth. En hvort tveggja var að
mér veitti ekki af hvíld eftir vinnutörnina í Alice, og svo
fór svo vel um mig þarna, að það endaði með því að ég
varallantímann í Perth. Fóraðeinsstuttadagstúraum
nágrennið og notaði tímann mest til að skrifa bréf,
framkalla og flokka myndir, liggja á ströndinni og
yfirleitt bara slappa af. Enda hafði ég heilt einbýlishús
til umráða meiri hluta dags, meðan húsráðendur voru
í vinnunni.
Frá Pert fór ég um miðjan mars, tók rútu í þetta sinn til
Melbourne. Par heimsótti ég aðra fjölskylduna, sem
við kynntumst í Kingoonya á leiðinni til Alice, þar sem
við Anna naglhreinsuðum timbur sællar minningar.
Þautóku méreinsogég væri ein úrfjölskyldunni, buðu
mér að gista og útveguðu mér svo far með trukk áfram
til Sydney.
í Sydney hitti ég aftur Önnu eftir rúmlega þriggja
mánaða viðskilnað og við flugum saman til eyjarinnar
NÝJU CALIDÓNÍU þann 24. mars. Þar varð ég eftir í
hálfan mánuð, en Anna hélt beint áfram til Nýja Sjálands
og til borgarinnar Invercargill (þar sem Gauja vann) og
fékk þarvinnu sem hjúkka.
Kortið sýnir ferðir mínar hingað til. Nvia Calidónia og Nýja Sjáland verða næst á dagskrá.
Litli - Bergþór 25