Litli Bergþór - 01.03.1994, Qupperneq 6
Hrepp snefndarfréttir
Hérfer á eftir úrdráttur úr bókunum hreppsnefndarfunda en aðeins er stiklað á stóru og valið úr
það sem að talið er forvitnilegt íbúum sveitarinnar og það sem á við í dag en forsendur fyrir málum
eru oft fljótar að breytast.
Fundur 14. desember 1993.
4. Skipulagsteikningar sumarhúsa í Helludal og
Brekkuskógi.
Lesið bréf, dags. 9. des. '93, undirritað af Narfa
Hjörleifssyni og meðfylgjandi tillögur að
sumarhúsabyggð í landi Brekkuskógar 16 lóðir,
hver um sig 5.000 m2 að stærð.
Lesið bréf, dags. 9. des. '93, undirritað af Narfa
Hjörleifssyni, með tillögu að sumarhúsabyggð í
landi Helludals, 11 lóðir, hver um sig 5.000 m2 að
stærð.
Hreppsnefnd samþykkir erindin fyrir sitt leyti, enda
verði teikningar gerðar samkvæmt skipulagslögum.
Oddvita falið að senda erindið til umsagnaraðila.
5. Fundargerð aðalfundar Laugaráshéraðs.
Lesin fundargerð aðalfundar Laugaráshéraðs, frá 2.
des. '93.
Hreppsnefnd samþykkir áætlun oddivtanefndar um
uppbyggingu heilsugæslustöðvar í Laugarási.
Einnig að stjórnarformanni verði veitt umboð til að
standa að samningagerð við ríkið um bygginguna
og umboð til lántöku til að hraða
byggingarframkvæmdum.
7. Uppsögn hundaeftirlitsmanns.
Lesið bréf dags. 18. nóv. '93, undirritað af Agli
Jónassyni, þar sem hann segir upp starfi sínu sem
hundahreinsunarmaður.
Oddvita falið að vinna að lausn málsins.
8. Uppsögn skrifstofumanns.
Lesið bréf dags. 1. des. '93, undirritað af Hólmfríði
Ingólfsdóttur, þar sem hún segir starfi sínu lausu á
skrifstofu Biskupstungnahrepps. Oddviti skýrði frá
því að ráðin hefði verið í hennar stað Guðrún
Sveinsdóttir frá Bræðratungu.
9. Erindi K.Á.
Lesið bréf dags. 30. okt. '93, undirritað af Sigurði
Kirstjánssyni. Meðfylgjandi eru reikningar og
rekstraryfirlit, ásamt reglugerð fyrir B-deildar
stofnsjóð. Boðin eru til kaups samvinnuhlutabréf í
B-deild stofnsjóðs Kaupfélags Árnesinga.
Samþykkt var að kaupa hlutabréf að nafnverði kr.
100.000,-.
12. Frá ferðamálanefnd.
Sveinn Sæland ræddi um skiltamál og
bæjarmerkingar. Einnig fyrirhugaðar merkingar í
þéttbýli.
13. Fundargerð rekstrarnefndar.
Lesnar voru fundargerðir rekstrarnefndar, dags 23.
ágúst '93 og 17. nóvember '93.
Lagt var fram yfirlit yfir rekstur Aratungu og
sundlaugar fyrir árið 1993. Rætt var um rekstur
Aratungu og leiðir til að auka hann og bæta. Einnig
var rætt um mannahald og að á næsta fundi verði
tekin ákvörðun um hvort breytingar verði gerðar í
þeim efnum.
14. Undirbúningur að byggingu íþróttahúss.
Gísli skýrði frá því að hann hefði fengið boð frá
Valdimari Harðarsyni, arkitekt, þar sem hann býðst
til að teikna tengibyggingu milli sundlaugar og
væntanlegs íþróttahúss.
Ákveðið að efna til fundar með undirbúningsnefnd
og arkitekt.
15. Rætt var um sameiningu sveitarfélaga og
niðurstöður úr skoðanakönnun í Grímsnesi og
Laugardal um þau mál.
Ákveðið að bíða eftir viðbrögðum frá málsaðilum.
Fundur 11. janúar 1994.
1. Ákvörðun um álagningu gjalda 1994.
a) Tekin fyrir álagning útsvars og er nú búið að
hækka útsvarsprósentuna í hámark 9,2 %.
Samþykkt að leggja 9% útsvar á gjaldendur.
b) Álagning fasteignagjalda.
Samþykkt að leggja 0,5% á A-flokk og 1% á B-flokk,
og fella niður fasteignagjöld af íbúum 67 ára og
eldri, sem búa í eigin húsnæði.
2. Atvinnuleysisskráning.
Nú eru 11 manns á atvinnuleysisskrá. Rætt var um
að sækja um framlög úr atvinnuleysistryggingasjóði
til verkefna hér í sveitarfélaginu, sem yrðu betur
útfærð síðar.
Litli - Bergþór 6