Litli Bergþór - 01.03.1994, Blaðsíða 14
Frá íþróttadeild U.M.F.B.
ÚR ÁRSSKÝRSLU.
✓
Iþróttamaður og frjálsíþróttam. ársins.
Róbert Einar Jensson sýndi miklar framfarir í öllum
sínum helstu keppnisgreinum á fyrri hluta ársins
1993. Innanhússtímabil hans var sérlega glæsilegt
og hápunkturinn, íslandsmeistaratitill hans í hástökki
karla í febrúar. Á innanhússtímabilinu uppskar
Róbert laun erfiðisins viö æfingar mánuðina þar á
íþróttamaðurársins,
Robert Einar Jensson.
undan og stefndi í að sumarið yrði mjög gott einnig.
Svo varð þó ekki vegna meiðsla sem ágerðust svo
að uppskurður varð óumflýjanlegur í lok sumars.
Róbert hefur þegar sýnt með árangri sínum og
eljusemi við æfingar að hann hefur bæði hæfileika og
viljastyrk til að verða framúrskarandi
frjálsíþróttamaður. Utan vallar sem innan er Róbert
fyrirmyndar félagi vinsæll og hvetjandi. Sá árangur
sem hann náði á árinu 1993 er vonandi aðeins
byrjunin á glæstum ferli í harðri samkeppni við bestu
frjálsíþróttamenn landsins.
Þráinn Hafsteinsson
Borðtennismaður ársins
Þorvaldur Skúli Pálsson varð silfurverðlaunahafi á
unglingameistaramóti íslands, hann og Ingimar unnu
gull í tvíliðaleik á sama móti.
Á H.S.K. mótinu vann hann gull í sínum flokki og
svona mætti halda áfram að telja. Þorvaldur hefur
stundað íþróttina af eljusemi og verið félaginu til
sóma jafnt innan vallar sem utan.
Gústaf Sæland
Iþróttakona ársins
Þórey Helgadóttir er valin íþróttakona ársins 1993.
Þórey byrjaði að æfa og keppa fyrir Umf.Bisk um leið
og hún hafði aldur til. Hún hefur sótt æfingar í flest
öllum íþróttagreinum sem boðið hefur verið upp á.
Þóey er bæði fjölhæf og jákvæð íþróttakona sem
ekki skorast undan sé til hennar leitað.
Iþróttakona ársins,
Þórey Helgadóttir.
Á síðasta ári keppti Þórey í frjálsum íþróttum,
sundi borðtennis og einnig körfubolta fyrir hönd
félagsins. Hún vann til verðlauna bæði í frjálsum og
sundinu.
Þórey hefur verið félagi sínu til sóma bæði innan
vallar sem utan. Um leið og ég vil óska henni gæfu
og gengis, vona ég að hún leggi rækt við íþróttirnar
og farnist vel í framtíðinni.
Áslaug Sveinbjörnsdóttir
Sundmaður ársins
Guðjón Smári Guðjónsson er kröftugur strákur og
smýgur vatnið vel. Á aldursflokkamótinu lenti hann í
2. sæti í 50 m bringusundi synti þá á 59,3 sek. Hann
varð í 1. sæti í 50 m skriðsundi, synti á 38,8 sek. Á
unglingamótinu lenti hann í 2. sæti í 50 m skriðsundi,
synti þá á 39,9 sek. Vonandi heldur hann áfram sínu
striki og heldur áfram á sömu braut.
Elísabet Kristjánsdóttir
Litli - Bergþór 14