Litli Bergþór - 01.03.1994, Síða 17
aö nú væri ég búinn aö gera hann uppgefinn. Viö
héldum áfram suður í Kjalfellsver. Þar spretti ég af
Brún og tók hann hraustlega í aö kroppa, og varö
ég því feginn. „Hér megum viö ekki stansa nema
stutt, Brúnn minn“, segi ég og halla mér svo aftur
bak hjá hnakknum og steinsofna, því mig var farið
aö syfja svo síðasta spölinn, þó ég ætlaöi alls ekki
aö láta þaö eftir mér aö sofna tímans vegna. Ég
haföi þúfu fyrir kodda og aöra höndina undir
hnakkanum. Svo hrekk ég upp viö þaö aö ýtt er
dálítið harkalega viö olnboganum, sem stóð út af
þúfunni. Ég hrekk upp og stendur þá Brúnn yfir
mér. Gat ég ekki annað álitiö en hann heföi komið til
aö vekja mig. Eg áttaði mig fljótt, klappaði Brún,
þakkaöi honum fyrir og lagði á hann í snatri. Leit ég
á klukkuna og haföi þá sofið í 20 mínútur.
Brúnn brokkaöi léttilega suður lága hrauniö, og
þegar hann kom moldargöturnar noröan viö
sæluhúsið í Hvítárnesi tók hann á sprett og hljóp
góöan spöl heim aö húsinu. Klukkuna vantaði þá 5
mínútur í 8, er ég kom í húsiö, svo skeytið komst í
tæka tíö í talstöðina. Fannst mér ég eiga þaö Brún
eingöngu aö þakka.
Fyrirmælin sem viö fengum frá Teiti voru þau aö
viö skyldum lóga ánum en reka lömbin saman viö
norðanféð.
Skrifaö í mars 1969.
Varðmannabragur.
Höfundar: Helgi Geirsson, Sveinn Kristjánsson og fleiri veröir á Kili sumariö 1937.
(Lag: Heyrið morgunsöng á sænum.)
Hvergi sem á Hveravöllum
hrauns viö gróinn reit
innilukt af fögrum fjöllum
friösælla ég veit.
Blanda þar á flúðum fellur
forn og jökulgrá.
Spóinn hátt í hlíðum vellur,
heiöavötnin blá.
Spóinn hátt í hlíðum vellur,
heiöavötnin fagurblá.
Drengir þar viö eld og ísa
afl sitt þreyta og dug.
Snemma þeir úr rekkju rísa
röskvum meður hug.
Hérna eru aö verki verðir
vökumanna störf.
Fjallaloftiö hugann heröir
á hreysti er alltaf þörf.
Fjallaloftið hugann heröir
á hreysti vorri er alltaf þörf.
Eltum kindur, eltum kindur
upp á Djöflasand.
Svalur þýtur sunnanvindur,
sólin gyllir land.
Liprir kyssa fákafætur
fróns á rjóöa kinn.
Hugsum oss ef heimasætur
hjá oss dveldu um sinn.
Hugsum oss ef heimasætur
hjá oss dveldu í þetta sinn.
Arangur Iþróttamanns ársins, Róberts Einars Jenssonar 1993.
Héraðsmót 15-18 ára. 6. feb. Hveragerði
Hástökk 1.80 m 1. sæti
Hástökk án atr. 1.45 m 1. sæti
Langst. án atr. 2.89 m 1. sæti
Þrístökk án atr. 8.87 m 1. sæti
Stigahæstur í flokki drengja með 24 stig.
MÍ. 15-18 ára 6.-7.mars Reykjavík
50 m gr. 7,1 sek 1 .sæti
Hástökk 1.85 m 1. "
50 m hl. 6,1 sek 2. sæti
Langstökk 6.29 m 2. sæti
Hástökk án atr. 1.49 m 2. sæti
Þrístökk án atr. 9.02 m 2. sæti
Ml. aðalhluti 13-14 febrúar Reykjavík
Hástökk 1.90 m 1 .sæti
MÍ. fjölþraut 13-14 mars Reykjvík
4082 stig 2.sæti
Íþróttahátíö HSK 10-11 júlí Hvolsvelli
Langstökk 6.21 m 1. sæti
Kringlukast 29.08 m 3. sæti
100 m hl. 11,4 sek 1. sæti
400 m hl. 57,8 sek 2. sæti
110 m gr. hl. 15,8 sek 1. sæti
Sveit Bisk. 4x100 m Karlar 49,7 sek2. sæti
MÍ15-18 ára 24-25 júlí Dalvík
110 m gr. hl. 16,1 sek 1. sæti
300 m gr. hl. 43,6 sek 1. sæti
Sveit HSK 4x100 m 49,3 sek 1. sæti
Langstökk 6,17 m. 3. sæti
110 m gr.hl. 16,1 sek 1. sæti
100 m hl. 43,6 sek. 1. sæti
400 m gr. hl. 62,6 sek. 3. sæti
Oska-Kaffi Oska-Kaffi
Opið á verslunartíma frá 9 - 18.
Laugardaga 10 - 13.
Heitir réttir í hádeginu. Alltaf óvænt tilboð í gangi.
Verið velkomin!!
Litli - Bergþór 17