Litli Bergþór - 01.03.1994, Page 19
Lionsklúbburinn Geysir
Lionsklúbburinn Geysir hefur staðið fyrir
söfnunum og gjöfum til ýmissa líknarmála
undanfarin ár.
í dag eru klúbbfélagar 16. Klúbburinn var
stofnaður 1984 og verður hann því 10 ára í ár.
Meðal annars gáfum við hlut í eyrnaþrýstitæki
ásamt Kvenfélaginu og fleiri aðilum. Einnig gaf
klúbburinn brunavarnakerfi í félagsheimilið Aratungu
að upphæð 200.000.- með vinnu félagsmanna.
Síðastliðin tvö ár hefur klúbburinn gefið 90.000.- kr.
til styrktar einstaklingum. Aðal fjársöfnun klúbbsins
er með perusölunni í nóvember og hefur salan
gengið mjög vel og verið vel tekið. Nú er orðinn
árviss viðburður að Lionsklúbburinn fari inn á afrétt
með heybagga til að loka rofabörðum. Síðastliðið
vor fór klúbbburinn með einn vörubíl af rúlluböggum
til Árbúða og setti í börð og norðan megin við húsið.
Undanfarin ár hafa Lionsklúbbarnir staðið í söfnun í
tengslum við alþjóða Lionshreyfinguna sem nefnist
SightFirst, sem hefur það að markmiði að útrúma
80% af blindu í heiminum og er markmiðið að safna
9.900.- kr á hvern virkan félagsmann. Á einu árið
verða 1.6 millionir manns blindu að bráð sem hægt
er að lækna. 80% af öllum sjónskaða er af
ástæðum sem hægt hefði verið að koma í veg fyrir
eða vegna læknanlegra sjúkdóma, blindir að óþörfu.
32 milljónir manna eru dæmdirtil að lifa í myrkri allt
sitt líf, vegna þess að fjármagn vantar til að kaupa
ódýr lyf og einföld lækningatæki. Þessu starfi lýkur
árið 1994.
Lionsklúbburinn þakkar góðan stuðning sveitunga
sinna með von um gott samstarf í framtíðinni.
F.h. Lionsklúbbsins Geysis,
Jón Harrý Njarðarson.
r Járnsmíðavinna Jámsmíðavinna >
Tek aö mér ýmsa járnsmíðavinnu. Stálgrindur, hlið, hurðir og fleira.
Upplýsingar í símum: 98-611777 og 985-34362. Haraldur R. Haraldsson.
Réttu megin inð strikið með
Reglubundnum spamaði
Reglubundinn sparnaður - RS - er einfalt og sveigjanlegt
sparnadarkerfi sem hentar ollum þeim sem hafa áhuga á
að vera réttu megin við strikið i fjármálum. Ávinningurinn er
margfaldur: Þú eignast sparifé og ávaxtar það með öruggum og arðbærum hætti, átt greiðari
aðgang ad lánsfé, kemst í hóp bestu viðskiptavina bankans og nærð betri tökum á fjármálum
þínum en nokkru sinni fyrr. Allt sem til þarf er að semja við bankann um að millifæra ákveðna
upphæð reglulega inn á Grunn, Landsbók, Kjörbók eða Spariveltu sem saman mynda RS.
W*/ Rcgluljuiidiiui
M-/0 spamaður
Við inngöngu í RS
færðu þægilega
fjárhagsáætlunar-
möppu fyrir heimilið
og fjölskylduna.
Viltu stofna þinn eigin lífeyrissjóð, spara fyrir ákveðnum útgjöldum, leggja
grunn að þægilegri fjármögnun húsnædis, tryggja þér skattafslátt, ávinna
þér lánsrétt og tryggja þér örugga
afburða ávöxtun hvort sem þú vilt
spara í lengri eða skemmri tíma?
L
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna
Allar nánari upplýsingar fást í ítarlegum bæklingi sem liggur frammi í næstu afgreiðslu Landsbankans
Litli - Bergþór 19