Litli Bergþór - 01.03.1994, Qupperneq 21
Yleining
HVAÐ ERAÐ FRÉTm AF YLEININGU?
Nú þegar 4. rekstrarár verksmiöju Yleiningar er
aö hefjast, er ekki úr vegi aö reyna aö svara þeirri
spurningu sem sett er fram í fyrirsögn.
Svarið veröur sjálfsagt eins og hjá flestum sem
spuröir eru á þennan veg; bæöi slæmt og gott.
Reksturinn hefur verið mjög erfiöur þessi fyrstu ár
og hefur verulegt tap verið fram til þessa. Ástæður
þess eru margar, og skulu hér nefndar þær helstu
án þess aö fara í smáatriði.
Skáldið sagöi: „Þótt þú tapir þá gerir þaö ekkert til,
því þaö er hvort sem er vitlaust gefið
Þær forsendur sem menn gefa sér geta verið
fljótar aö breytast. Þessari verksmiöju var fyrst og
fremst ætlað aö framleiöa þakeiningar (húseiningar)
úr timbri, en vegna samdráttar í byggingariönaöi
sem leiddi til mikilla niöurboöa á allri trésmíði,
brugöust forsendur fljótt. Því á sama tíma þurfti aö
þjálfa starfsmenn og hagræöa ýmsu, og jafnframt aö
leggja fram mikla þróunar og hönnunarvinnu. Svo aö
í stuttu máli sagt, þegar allt þetta fór saman ásamt
meö því aö verið var aö koma meö vissa nýjung á
markaðinn sem þurfti oftar en ekki aö þola
ósanngjarnar kröfur, þá gekk þetta dæmi ekki upp.
Því varö þaö úr á síðastliðnu ári aö ákveðið var aö
leggja aö mestu til hliðar timbureiningarnar, í bili
a.m.k.
Á s.l. ári var framleiðslan aö mestu í
úreþaneiningunum. Þær eru aö mestu stálsamlokur
sem eru nú orðnar nokkuö þekktar, m.a. í þökum
gripahúsa, og nokkur svínahús hafa verið byggö aö
öllu leyti úr þessum einingum. Þessar
úreþaneinangruðu einingar eru af ýmsu tagi, og
hefur vinna veriö lögö í aö leysa hin og þessi
vandamál, svo hægt sé aö höföa til fleiri notenda.
Þetta á t.d. viö meö kæliklefa og kæliklefahuröir, en
einnig var þróuö upp alveg ný gerö húseininga. Þaö
er svokölluð SP-100 samlokueining sem er mestu
afurð starfsmanna Yleiningar. Þessi framleiðsla
fékk mjög góöar viötökur og var búiö aö selja mörg
þúsund fermetra áður en eiginleg framleiösla hófst. í
samvinnu viö Límtré var byggt sýningarhús ( sjá
mynd ) til sýna aö þessar einingar henti einnig í lítil
hús, en aö langmestu leyti hafa þær verið notaöar í
stærri hús.
Ég ætla nú aö láta þetta nægja um framleiðslu-
vörurnar þó aö sjálfsögöu mætti skrifa langt mál um
þær, en snúa mér heldur aö framtíðarhorfum og
samkeppnisstöðu Yleiningar.
Eins og hefur komiö fram í fjölmiölum þá kæröi
Yleining til samkeppnisráös þá mismunun sem
fyrirtækiö hefur þurft aö þola vegna mismunandi
túlkunar byggingaryfirvalda á byggingarreglugerö.
Meö öörum orðum þá hefur Yleining ( og aðrir
innlendir húshlutaframleiöendur) þurft aö uppfylla
þær kröfur sem reglugerðin setur og
Rannsóknarstofnun byggingariönaöarins staöfestir,
t.d. buröarþol og brunaþol.Þetta er aö sjálfsögöu
eðlilegt ef sömu kröfur væru gerðar til innfluttra
húshluta. Samkvæmt lögum þá hafa
byggingarfulltrúaembættin á hverjum staö eftirlit meö
því aö reglugerð sé fylgt, en þar virðist stundum sem
aö ekki séu gerðar sömu kröfur til innfluttra húsa og
þeirra innlendu. Þarna er semsagt vitlaust gefið.
Auövitaö er lífsspursmál fyrir þennan iönaö sem
og aöra innlenda framleiöslu aö innflutningurinn fái
ekki slíka forgjöf (íslenskt, já takk!)
Sýningarhús Yleiningar og Límtrés.
Af öörum ytri aðstæðum sem okkur eru
óhagstæðar má nefna alltof stutt lán. Langstærstu
lánveitendur eru lönlánasjóöur og Iðnþróunarsjóður
en þeirra lán eru til 6-8 ára og segir sig sjálft aö þaö
er afskaplega erfitt aö greiða þau niöur þessi fyrstu
ár. En nú er vinna í gangi í iðnaðarráðuneytinu til
endurskoðunar þessum lánareglum.
En svo viö lítum aöeins fram á viö og reynum aö
vera bjartsýn, þá er þetta helst aö nefna.
Nú höfum viö góöan og þjálfaðan mannskap bæöi
í framleiðslustörfum og í hönnun og tæknivinnu, sem
eru mikil verömæti. Vörur verksmiöjunar mæta ekki
lengur sömu tortryggni og í upphafi. Viö veröum aö
trúa því aö meira veröi byggt á næstunni, og aö
Yleining fái sinn skerf af því. Þótt svo aö tekist hafi
aö ná upp æ meiri framleiðni í verksmiöjunni, þá er
nauðsynlegt aö auka framleiösluna.
Ég læt hér lokið þessum sundurlausu punktum frá
Yleiningu en viö vonum aö þetta nýbyrjaöa ár veröi
betra en þau fyrri svo takast megi aö tryggja stööu
þessa stærsta vinnustaðar hér í sveit.
Gunnar Sverrisson,
form. stjórnar Yleiningar.
Litli - Bergþór 21