Litli Bergþór - 01.03.1994, Side 25
Umhverfis jörðina..frh.
Mér tókst aö skrapa saman uppí rútufargjaldið til
Reykjavíkur meö því aö safna saman klinki í ýmsum
gjaldeyri - viö litla hrifningu bílstjórans, - og þar meö
var þessarri heimsreisu lokiö og ég komin heim
gjörsamlega staurblönk!
EFTIRMÁLI
Ég var svo heppin aö fá stax afleysingavinnu í
apóteki eftir áramótin, svo það var fljótt ráöin bót á
blankheitunum. En fyrst fór ég heim í Miöhús og
uppgötvaði aö heima er best og fallegast! Jörö var
snævi þakin og þaö voru froststillur fram aö jólum.
Himininn eldrauöur allan daginn meöan sólin skreið
rétt yfir sjóndeildarhringnum. Fallegri sólroöa haföi
ég ekki séö á öllum mínum feröum! Og síöan komu
blessuð jólin í faömi fjölskyldunnar.
Aö hálfu ári liönu var ég svo komin á kaf í
„íslenska drauminn", búin aö kaupa mér íbúö, komin
í sambúö, í framtíðarvinnu og á leið upp
metoröastigann í faginu. - Já, hvaö væri lífið án
tilbreytinga?! -
Hvaö sem annars má segja um ferðalög sem
þessi, held ég aö flestir hafi gott af því aö skoöa sig
um í veröldinni og víkka sjóndeildarhringinn.
„Hætturnar" eru ekki til að hafa áhyggjur af, því ef
Heima er best.
menn hafa venjulegan skammt af almennri
skynsemi fara þeir sér ekkert frekar aö voöa í
Ástralíu en á íslandi, nema síöur sé. Fyrir mitt leiti
vildi ég ekki hafa misst af einum degi og ég vona aö
ég eigi eftir aö sjá meira af veröldinni - seinna.-
Köttur úti í mýri, setti upp á sig stýri, úti er
ævintýri.
Undirrituð þakkar lesendum Litla-Begga
þolinmæöina þessi fjögur ár sem ferðasagan hefur
veriö fastur liður í blaöinu.
Ferðakort yfir síðasta hluta ferðarinrar frá N.Z. og heim.
Litli - Bergþór 25