Litli Bergþór - 01.03.1995, Blaðsíða 4
Hvað segirðu til?
Skemmtikraftar á Þorrablóti.
Hér verður skýrt frá því helsta sem
fréttnæmt má telja hér í sveit frá byrjun
nóvember 1994 til febrúarloka 1995.
Veturinn hefur verið fremur mildur, snjór
ekki mikill en stundum nokkuð snarpir byljir og
skafrenningur. Þetta hefur lítið hamlað
samgöngum, enda eru helstu vegir nú mokaðir
nokkrum sinnum í viku, ef þörf er á. Frost
hefur stundum orðið mikið, en oftast hefur hiti
verið rétt undir núllinu.
Heilsufar hefur verið fremur gott þó
einhverjar pestir hafi verið að hrjá fólk öðru
hvoru.
I menningarlífi ber hæst fjölbreytta
tónlistardagski'á á nokkrum samkomum í
Skálholtskirkju á aðventu. Þar sungu kór
Menntaskólans að Laugarvatni, Karlakórinn
Fóstbræður, Skálholtskórinn og Barnakór
Biskupstungna og
hljóðfæraleikara spiluðu á ýmis hljóðfæri.
Ungmennafélag Hrunamanna sýndi
gamanleikinn Glímuskjálfta í Aratungu í
desember.
Á kvöldvöku Búnaðarfélagsins, sem haldinn
var í Réttinni í Úthlíð í janúar, var Magnúsi í
Kjarnholtum afhent afrekshorn fyrir góðan
árangur í hrossarækt, og Ólafur Örn Haraldsson
greindi í máli og myndum frá ferð yfir
Grænlandsjökul.
Um áramótin var tveimur Skálhyltingum
veittur riddarakross íslensku Fálkaorðunnar.
Þeir eru Björn Erlendsson, fyn'um bóndi í
Skálholti, og Sigurður Sigurðarson,
vígslubiskup í Skálholtsbiskupsdæmi.
Þoirablót var haldið með hefðbundnum hætti
annan dag þorra. Það var að þessu sinni í umsjá
Skálholtssóknar. Skemmtidagskrá var vönduð,
þar sem um 20 manns sungu, lásu, léku og
dönsuðu af hjartans list. Lögregla fylgdist með
að enginn æki heim án þess að vera til þess
hæfur að skemmtun lokinni.
Um síðustu helgina í febrúar kenndu þau Jón
Stefánsson, organisti og Margrét Bóasdóttir,
söngkona, um 50 manns söng í Aratungu.
Námskeiðið var kennt við „Fjárlögin", sem er
safn gamalla ættjarðarlaga. Á síðasta degi þess
sungu þátttakendur við messu í Skálholti og
söngsamkoma var í Aratungu.
Ættfræðinámskeið var haldið í Skálhotsskóla
í lok janúar og byrjun febrúar.
I febrúar var undimtaður samningur milli
ríkis og sveitarfélaganna í
Laugarásslæknishéraði um ______________
byggingu nýrrar
heilsugæslustöðvar í f Sefur
Laugarási. Gert er ráð V. hreppsnefndin ?
fyrir að hún kosti um 74
milljónir króna og taki tvö ár að byggja
hana.
í janúar létust fjórir Tungnamenn. Þeir vpru^
Gísli Oddsson, bóndi í Ljósalandi og var hanri
jarðaður íHveragerði. Helgi Indriðason
fyiTum bóndi í Laugarási, sem dvalið
hefur á Kumbaravogi síðustu ár.
Hann var jarðsettur í Skálholti.
Sigurjón Guðmundsson frá
Holtakotum, sem dvalið hefur á
Elliheimilinu Grund síðustu áratugi.
Hann var jarðaður í Bræðratungu.
Smári Guðmundsson á Reyn í Ölfusi
bóndi í Hólum og síðar í Arnarholti. Hann var
jarðsettur á Selfossi.
A. K.
fyrrum
Litli - Bergþór 4