Litli Bergþór - 01.03.1995, Qupperneq 5
Þorragæla
I söngbók á þorrablóti 1995 er Ijóð um þorrann. Þar er greintfrá því að
Þórður Kárason hafi ort það fyrir fyrsta þorrablótið hér í sveit á síðari tímum
að beiðni þeirra Lilju Júlíusdóttur og Fríðar Pétursdóttur árið 1955. Þær
höfðu forgöngu um að blótið var haldið, og er sagt að þœr hafi sótt
fyrirmyndina til Siglufjarðar.
Sumirmuna enn þegar þetta varflutt, og er Halldór á Litla-Fljóti, sonur
Þórðar, einn þeirra. Hann segir svo frá að Lilja og Fríður hafi beðið föður
sinn að yrkja eitthvað til að syngja á blótinu og helst eitthvert glens um
sveitungana. Þórður hafði stundum gert þaðfyrr á árum.
Einkum er þekktur piparsveinabragurinn, sem hann mun hafa ort árið 1932. Sagt hefur verið
að sumum, sem ort var um íþeim brag, hafi sárnað og Þórður ekki viljað verða til þess aftur. Þetta
Ijóðfengu þær, og var Þorsteinn á Vatnsleysu fenginn til að syngja það. Hann hafði þann formála
aðflutningi sínum að nú væru þeirþrír í sóknarnefnd Torfastaðakirkju, Sveinn í Miklaholti, Þórður
á Litla-FIjóti og hann sjálfur. Þeir vœru nú orðnir nokkuð gamlir og vœri samanlagður aldur þeirra
200 ár. A árum áðar hefðu þeir stundum lagt nokkuð afmörkum við skemmtanahald. „Þórður orti,
ég söng en Sveinn rýmdi bæinn og bauð öllum heim til sín á skemmtunina. “
Þorsteinn söng síðan braginn undir laginu, sem notað er við sönginn alkunna „Þegar hnígur
húm að Þorra “.
A K
Þorragæla hin minni.
Þórður Kárason.
Myndina tók Grétar
Eiríksson ífjallferð.
Oft má lýðsins sakna siðar
sem að lagður var til hliðar.
Aukum blót til árs og friðar
hér eina stund í kvöld.
Karl á stundum kaldan anda,
kólgur fram úr vitum standa.
Brúar vötn til beggja handa
þó brúki ei smíðatól.
En stundum eru hans brúnir blíðar
bitrar hvergi nærri hríðar.
Sauðfé unir upp til hlíðar
og ekki af Þorra veit.
Hér er kominn karlinn Þorri
kynslóð til að heilsa vorri.
Er með gnægðir hönd í hvorri
sem henta vorri þjóð.
Mætavel hann rósir ristir
rúður á og sýnir listir.
Þegar gráan hausinn hristir
fer heljarkuldi um storð.
Þorra fagna ætíð eigum
öruggum og karli seigum.
Þó að hér sé þurrt við megum
samt Þorra drekka skál.
Ei skal kvíða komu Þorra
komi hann sæll til húsa vorra.
Sýnum dæmi séra Snorra
er sigur ætíð vann.
Fjöllin hvítum kufli klæðast
klakabrynju undir væðast.
Skepnur þessar hreður hræðast
og húsa flýja til.
Þórður Kárason
Litla-Fljóti.
HJÓLBARÐA VIÐGERÐIR
HJÓLBARÐASALA
OPIÐ:
Mánudaga — föstudaga kl. 08.00 - 18.00
laugardaga kl. 10.00 - 15.00
sunnudaga frá 15. júní til 15. ágúst
kl. 13.00 - 17.00
AUSTURVEGI 58 - SELFOSSI - SÍMI 98-22722
HEIMASÍMAR 98-22371 - 22289 - 22346 - 22881
Litli - Bergþór 5