Litli Bergþór - 01.03.1995, Page 6
Formannsspjall
Heilir og sælir Ungmennafélagar og aðrir lesendur.
Þegar þetta er skrifað er Þoná að kveðja og Góa tekin við.
Þegar sest er niður við svona skriftir hugsar maður ósjálfrátt liðnar stundir. Hvað höfum við
verið að gera? Margt hefur verið gert en margt er enn ógert. Það er auðvelt að setjast niður á
stjórnarfund og skipuleggja starfið og ákveða eitt og annað, en þegar kemur að framkvæmd mála er
auðvelt að velta þeim yfir á næsta dag, næstu viku eða bara næsta ár. Ætli þetta sé ekki algengt
víða, allavega bíðum við eftir að fá íþróttahús hér í sveit og börnin spyrja af hverju fáum við ekki
íþróttahús? Sum þessara barna eru ekki börn lengur, heldur vaxin upp og farin að heiman, en önnur
eru börn í dag en hvað verða þau, loksins þegar hið langþráða íþróttahús kemur? (vonandi ekki
gamalmenni). Auðvitað vantar peninga en vantar ekki eitthvað meira? Börnin okkar fljúga úr
hreiðrinu alltof fljótt. Þegar skólagöngu lýkur hér í Reykholtsskóla eru þau mörg hver farin að
heiman nema þau sem fá vinnu hér að sumarlagi. Þann stutta tíma sem þau eru hér þá þurfum við
að sinna þeim betur. Er ekki of algengt að við ætlum einhverjum öðrum að sinna þessum málum en
ekki okkur sjálfum. Fylgjumst við með því sem börnin okkar eru að gera? Vitum við hvað þau eru
að gera í skólanum,? Vitum við hvað þau eru að gera á íþróttaæfingu eða hvernig þeim gengur?
Við sem eigum börn hér í sveit og ætlumst til að þau hafi eitthvað fyrir stafni í sínum frítíma, getum
ekki bara ætlast til þess að hinir sinni þeim, við verðum að gera
eitthvað sjálf. Þetta er spurning um öflugt foreldrastarf og tími til
kominn að hressa upp á foreldrastarf innan Ungmennafélagsins.
Þetta á nú ekki að vera nein skamman'æða heldur bara svona til
umhugsunar.
Bingó var haldið hér í október síðastliðnum og tókst mjög vel.
Vinningar voru flestir gefnir af fyrirtækjum, félögum og
einstaklingum og færum við þeim öllum bestu þakkir fyrir frábærar
undirtektir. Vinningar voru margir og má t.d. nefna, geislaspilara,
vasadiskó, fpróttatöskur, blóm, reiðhjálma, umfelgun,
sumarbústaðardvöl, sigling niður Hvítá, matur fyrir tvo á Hótel
Geysi, heill svínsskrokkur og margt fleira. Aðal vinningurinn var
farseðlar fyrir tvo til Newcastle. Yfir hundrað manns á öllum aldri
spiluðu með og sá sem hlaut aðalvinninginn var Kristinn Fannar
Sveinsson í Laugarási aðeins 8 ára og flaug hann út með foreldrum
sínum í nóvember.
Félagsvist hefur verið spiluð hér þrisvar og þokkalega mætt.
Eitt skifti var eingöngu fyrir börnin og var frekar léleg mæting en
þau sem komu höfðu gaman af. Við höfum ekki verið með nein
stórkostleg verðlaun heldur viljum við reyna að fá fólk saman og hafa gaman af. Jólafundur
leikdeildar var í desember. Á þeim fundi var ákveðið að hafa leiklistarnámskeið fyrir unglinga og
fullorðna sem var helgina 18. og 19. feb. s.l. undir stjórn Ólafar Svemsdóttir. Tókst það mjög vel.
Einnig stendur til að bjóða heim leikfélögum úr Gnúpverjahreppi og Hrunamannahreppi og er búið
að ákveða 1. apríl (vonandi ekki aprílgabb). Er ætlunin að leikfélagar komi grímuklæddir sem sagt
grímudansleikur.
Hin ýmsu íþróttamót eru þessa dagana, í borðtennis, frjálsum og körfubolta. Formaður
íþróttadeildar segir nánar frá því öllu.
Það er ánægjulegt að vita til þess að Litli Bergþór skuli vera lesin vítt og breitt um landið og að
burtfluttir Tungnamenn fylgist með því sem gerist hér í sveit. Við höfum verið mjög heppin að hafa
fengið áhugasamt fólk í ritnefnd gegnum árin sem hefur unnið vel og hefur mikinn metnað. Við
Ungmennafélagar erum ákaflega stolt af þessu blaði og við vonum einnig að þið lesendur góðir
séuð ánægð með okkar framlag.
Margrét Sverrisdóttir form. Umf. Bisk.
Litli - Bergþór 6 --------------------------------------------------------
Kristinn Fannar Sveinsson.