Litli Bergþór - 01.03.1995, Blaðsíða 7
Svipmyndir úr
Biskupstungum
Gísli Bjarnason frá Lambhúskoti tók á árunum upp
úr 1950 kvikmyndir í fæðingarsveit sinni, Biskupstungum.
Þær eru allar í lit og sýna vel mannlíf á þessum tíma.
Hann gaf Biskupstungnahreppi þessar myndir. Nú hefur
verið settur kynningartexti við þær og þær gefnar út á
myndbandi.
Þetta eru fjórir þættir:
I upphafi er staldrað við á hlaðinu í Asakoti, þar sem
Halldór Magnússon er við bæjardymar hátt á níræðisaldri.
Fylgst er með þegar trippi úr Bræðratunguhverfinu
eru búin undir að vera rekin til afréttar í grjótrétt í
Grænaskarði.
Hófur er snyrtur á hryssu, folald markað og rakað af
ótemju. Trypparekstrinum er síðan fylgt áleiðis upp
sveitina. Þetta mun vera 1952 og sjást flestir
Tunguhverfingar þess tíma.
Næst er komið í Tungnaréttir bæði árið 1954 og
1951. Fólk kemur flest ríðandi í réttirnar, prúðbúið í tilefni
dagsins. Þarna ber fyrir flesta bændur í sveitinni á þessum
tíma, nokkrar húsfreyjur, ungt heimafólk og marga, sem
gera sér ferð úr fjarlægð til að koma í réttirnar. Flestir eru
þeir að vitja æskustöðva. Nær 100 manns er þarna kynnt
með nafni. Einnig eru nafngreindir nokkrir hestar, hundar
og kindur. Sjá má fatatísku unga fólksins á þessum tíma,
lagðprúðar ær og vaninhyrnda sauði. Myndin er annars
vegar tekin síðasta árið fyrir niðurskurð alls fjár í sveitinni
vegna mæðiveiki og hins vegar síðasta árið, sem réttað var
í gömlu réttunum í landi Holtakota.
Þriðji þátturinn er frá útreiðartúr Ungmenna-
félagsins inn að Högnhöfða. Kvikmyndatöku-maðurinn
fylgist með þegar lagt er af stað frá Efri-Reykjum, hittst
við Hrauntún, riðið inn Úthlíðarhraun, lagið tekið við
Miðfell, sprett úr spori á Miðfellsflötum, áð við Litlhöfða
og loks riðið niður með Brúará og yfir Hrútá á vaði
skammt frá þar sem býlið í Hrúthaganum var um síðustu
aldamót. Þátttakendur í ferðinni voru 73, flest ungt fólk
úr sveitinni, með 123 hesta. Ingvar Eirrksson á Efri-
Reykjum var aldursforseti og leiðsögumaður.
Myndatökumaðurinn reiddi kvikmyndavélina alla leið og
lagði stundum lykkju á leið sína til að mynda fallegt
landslag, svo sem hrikaleg Brúarárskörð og straumþunga,
tæra Brúará.
Síðast er fylgst með þegar hey er hirt á
baggahestum úr Tungueyju. Lestir reiðingshesta koma í
teiginn, þar sem verið er að drepa undir sátur og binda í
reipi. Sýnt er þegar sett er upp á eina lestina, hún teymd
yfir alldjúpa kvísl úr Hvítá og heim í heygarð í
Bræðratungu, þar sem tekið er ofan og Skúli
Gunnlaugsson hleður úr heyinu úti.
Myndin var hljóðsett og settur á hana
kynningartexti hjá Saga-Film, en myndbönd gerði
Bergvík h. f. Kynnir er Arnór Karlsson í Arnarholti, og
samdi hann einnig texta í samvinnu við ýmsa sem þekktu
fólkið og annað, sem fyrir ber í myndinni. Lögð var
áhersla á að nafngreina sem flesta svo þeir sem sjá
myndina viti hvaða fólk þetta er.
Myndbandið er til sölu hjá Þorfinni á Spóastöðum
og Arnóri í Arnarholti og kostar kr. 3000,-. í upphafi
voru gefin út 50 eintök, en ef þau seljast öll er auðvelt að
fá fleiri.
A. K.
Hvað verður um Yleiningu?
Á síðastliðnu ári varð verulegur samdráttur í sölu á
framleiðsluvörum Yleiningar. Þar sem fjárhagsstaða
fyrirtækisins var mjög slæm fyrir, sýndist okkur
stjórnarmönnum það ljóst að stefndi í þrot, ef ekkert yrði
að gert. Vegna versnandi fjárhagsstöðu var vonlítið að
nýir hluthafar kæmu að fyrirtækinu, nema að
undangengnum einhverjum aðgerðum.
Eins og flestum er eflaust kunnugt tók Límtré h.f.
við rekstri verksmiðjunnar um s.l. áramót í a.m.k. 9
mánuði.
Þetta varð að ráði til þess að forða rekstrarstöðvun.
Stærstu lánadrottnar og kröfuhafar samþykktu þessa
ráðstöfun til þess að svigrúm ynnist til að
endurskipuleggja rekstur og fjárhag fyrirtækisins.
Síðan hefur verið unnið að því að fá veðhafa til að
fallast á nauðasamning, því að við flestir sem að þessu
máli höfum komið, teljum afar mikilvægt að komast hjá
gjaldþroti, með hugsanlegri rekstrarstöðvun í langan tíma.
Því þá væri einnig óvíst hvort einhver keypti
verksmiðjuna til áframhaldandi reksturs.
Eins og málum er nú háttað er Ijós að allt hlutafé
Yleiningar er glatað og meira til, og því eru það eingöngu
þeir hagsmunir sem felast í þeim atvinnutækifærum sem
þarna eru og munu vonandi skapast fleiri, sem við erum
að verja.
Þegar þetta er skrifað er ekki enn ljóst hvort tekst að
ná nauðasamningi. Alltof margir munu tapa fé þó svo
færi. En ekki þó eins miklu og í gjaldþroti.
En að lokum: Sala á einingum er lítil þessa
mánuðina. Helmingur starfsmanna missti vinnuna um s.l.
áramót. Því aðeins að við höfum trú á því að framtíð sé í
rekstri þessarar verksmiðju, ef rétt er á málum haldið, eru
þessar aðgerðir réttlætanlegar.
Vonandi skapast þarna fleiri störf í framtíðinni.
Gunnar Sverrisson.
Litli - Bergþór 7