Litli Bergþór - 01.03.1995, Page 8
Frá íþróttadeild U.M.F.B.
Nú er vetrarstarfið í fullum gangi hjá deildinni,
en þar er um að ræða körfubolta og borðtennis.
Borðtennisinn gengur mjög vel og það eru
alltaf að bætast fleiri og fleiri krakkar í hópinn og þá
sérstaklega á æfingarnar hjá þeim yngri. Við fórum
og kepptum á jólamóti þeirra Hrunamanna og
unnum það annað árið í röð. Við fórum síðan aftur
út að Flúðum þann 11. febrúar og kepptum á
Héraðsmótinu í borðtennis og sigruðum þar
glæsilega. Eldri strákarnir kepptu í flokkum fyrir ofan
sig og voru samt í efstu sætunum. í flokki stráka 12-
13 ára áttum við fjóra efstu menn og svo mætti
áfram telja, en þetta sýnir hvað við eigum sterka
Sigurlið Umf.Bisk. á Héraðsmóti í
borðtennis 1995.
krakka í þessari grein. Þegar þetta er skrifað er
íslandsmótið framundan, en það verður gaman að
sjá hvernig þau koma út úr því.
Drengja og stúlknaliðin í körfuboltanum eru nú
í harðri baráttu í Héraðsmótinu. Þeim hefur gengið
Drengjalið U.M.F.Bisk. í körfu 1994.
Olafur Bjarni, Olafur Lýðitr, Ingvar, Dagur, Atli.
Fremri röð : Ketill, Axel, Kristján Gunnar, Ingimar og
Freyr fremstur.
svona upp og niður. Þegar þetta er skrifað er hvort
liðið búið að vinna einn leik, en aðrir hafa tapast
misjafnlega stórt.
Yngri hópurinn í körfubolta hefur einnig verið
að æfa einu sinni í viku. Fyrir áramót var Gunnar
Sverrisson með þá og fóru þeir einu sinni út að
Ljósafossi og kepptu þarvið heimamenn. Okkar
menn gerðu sér lítið fyrir og sigruðu þar glæsilega
og voru heldur en ekki ánægðir. Og vil ég fyrir hönd
íþróttadeildarinnar þakka Gunnari fyrir samstarfið.
Eftir áramótin hefur Gylfi Gíslason verið með
æfingarnar, en framundan er fjögurrafélagamótið
sem að þessu sinni verður að Flúðum.
Ég vil að lokum þakka þeim samstarfið sem
hafa verið með okkur og stutt í starfinu í vetur með
von um gott áframhaldandi samstarf við
íþróttadeildina.
Iþróttakona ársins
íþróttakona ársins að þessu sinni er Elma Rut Þórðardóttir á Akri.
Hún hefur staðið sig með sóma í íþróttunum. Hún er mjög fjölhæf
íþróttakona. Hún hefur æft borðtennis, körfubolta, fótbolta og frjálsar. Á
árinu 1994 keppti Elma á Landsmótinu að Laugarvatni í borðtennis, en það
er öllu íþróttafólki mikið keppikefli að komast á Landsmót. Hún varð í öðru
sæti í sínum flokki á Héraðsmótinu í borðtennis og hún hefur stundað
æfingarnar vel. Hún hefur verið hörð af sér í fótboltanum og ekki gefið
strákunum neitt eftir, en þar æfum við og keppum í blönduðum liðum. Hún
var mjög dugleg að hala inn stig fyrir sitt félag á þriggjafélagamótinu í
frjálsum nú í sumar og einnig stóð hún sig mjög vel á innanfélagsmótinu. í
körfuboltanum er hún ein af aðal máttarstólpum liðsin og gefur ekkert eftir.
Elma Rut er mjög samviskusöm á æfingum og til fyrirmyndar í keppni og
óskum við henni til hamingju með árangurinn og vonum að hún eigi bjarta
framtíð í íþróttunum sem og öðru.
Áslaug Sveinbjörnsdóttir
F.h. íþróttadeildar
Áslaug Sveinbjörnsdóttir
Elma Rut Þórðardóttir.
Litli - Bergþór 8