Litli Bergþór - 01.03.1995, Page 9
íþróttamaður og frjálsíþróttamaður ársins
Tómas Grétar Gunnarsson í Asparlundi skipaði sér á rmeðal
bestu hástökkvara og stangarstökkvara landsins á árinu 1994.
Innanhúss stökk hann 1,95 m. Á íþróttahátið HSK sigraði Tómas
bæði í stangarstökki og hástökki og tryggði sér sæti í landsmótsliði
HSK. Á Landsmótinu sýndi hann mikla keppnishörku við sérlega
erfiðar aðstæður í hástökkskeppninni og sigraði með glæsibrag og
stökk 1,91 m og varð fjórði í stangarstökki með 4,00 m. Sigur
Tómasar í hástökkinu á Landsmótinu var annar tveggja hápunkta á
keppnistímabili hans. Hinn hápunkturinn kom þegar hann bætti með
eftirminnilegum hætti íslenska unglingametið (20 ára og yngri) í
stangarstökki og stökk 4,31 m.
Með þessum árangri náði Tómas lágmarki til keppni í
Norðurlandalandskeppni unglinga sem fram fór í Huddinge í Svíþjóð.
Þar hafnaði hann í sjöunda sæti. Með árangri sínum í sumar hefur
Tómas sannað rækilega að hann er efnilegasti stangarstökkvari
landsins og að hann er mikill keppnismaður þegar mikið liggur við.
Framkoma Tómasar utan vallar sem innan er ávallt til fyrirmyndar og
hann hefur náð að tvinna saman æfingar, keppni og nám svo að til
eftirbreytni hlýtur að teljast.
Þráinn Hafsteinsson,
landsliðaþjálfari
Tómas Grétar Gunnarsson.
Borðtennismaður ársins
Ég hef verið þeirrar blessunar aðnjótandi að hafa verið þjálfari
leikmanna Umf. Bisk. frá því að reglulegar æfingar hófust. Margir
leikmenn eiga skilið að vera valdir sem borðtennismenn ársins hjá
félaginu. Einn verður þó að taka það að sér að vera fulltrúi þessa
gjörvilega hóps.
Fremstan meðal jafningja tel ég vera Þorvald Skúla Pálsson. Hann
hóf reglulegar æfingar haustið 1993 og hefur því æft borðtennis í um eitt
og hálft ár. Hann varð fyrstur leikmanna Umf. Bisk. til að vinna sig upp
um flokk og er nú í toppbaráttunni í I. flokki karla. Þorvaldur hefur allt
það til brunns að bera, sem einkennir góðan íþróttamann. Hann tekur
íþrótt sína alvarlega og leggur sig allan fram við æfingar og keppni.
Hann er góðurfélagi og framkoma hans til sóma bæði innan og utan
vallar og því prýðis fyrirmynd yngri leikmanna.
Til hamingju Þorvaldur, þú ert á réttri leið.
Kristján Viðar Haraldsson, þjálfari.
Hver er syndari
ársins ?
Sundmaður ársins
I ár varð fyrir valinu Sigrún Guðjónsdóttir. Sigrún
mætir mjög vel á æfingar og er bæði samviskusöm og
dugleg. Einnig hefur hún náð bestu tímum af
sundkrökkunum í Biskupstungum í hinum ýmsu
sundgreinum.
Guðbjörg H. Bjarnadóttir, þjálfari.
Þorvaldur Skúli Pálsson.
Sigrún Guðjónsdóttir.
Litli - Bergþór 9