Litli Bergþór - 01.03.1995, Síða 11
Skráning örnefna
Einn þeirra sem á sumarhús í Faxabúðum í landi
Heiðar er Sigurgeir Skúlason, landfræðingur.
Síðastliðið sumar tók hann sér fyrir hendur að skrá
örnefni í nágrenni bústaðar síns Vatnleysujarðanna
og Arnarholt, en Kjaransstaði og Ból að hluta.
Nú hefur Sigurgeir tekið að sér á vegum
Biskupstungnahrepps að skrá örnefni á öllum
jörðum í sveitinni á loftmyndir, sem áformað er að
gefa út og selja þeim er kaupa vilja. Talið er að 13
myndir þurfi til að ná yfir alla byggðina, og mun hver
mynd ná yfir svæði sem er um 8 km á hvorn veg, en
hún verður um 55 sentimetrar á kant. Hverja mynd
á að selja á kr. 17.000.- frágengna til að hengja upp
með hlífðarfilmu og í álramma.
Sigurgeir fær myndir hjá Landmælingum og
örnenfnaskrár hjá Örnefnastofnun. Hann leitar
síðan aðstoðar heimafólks við að færa nöfnin inn á
myndirnar, bæta við og leiðrétta.
Verkefni þetta var kynnt með heimsóknum á ein
40 heimili í sveitinni á þorra. Kom fram mikill áhugi
á því og virtist fólk telja aðkallandi að skrá örnefnin
á þann hátt að þau glötuðust ekki og væru tiltæk
þeim er vildu kynna sér þau.
Rúmlega 30 myndir voru pantaðar strax.
Þetta verkefni leiðir hugann að breytileika örnefna.
Ýmsir staðir eru kallaðir mismundandi nöfnum og
þau breytast frá einum tima til annars. Stundum er
verulegur munur á ritmáli og talmáli í þessu efni.
Eitt Ijósasta dæmið um þetta er nafnið á bænum
hér í sveit sem opinberlega er nefndur
Kjaransstaðir. Ýmsir heimamenn tala um
Kervastaði, Kjervastaði, Kjarvastaði eða
Kervatnsstaði og velta fyrir sér hvert sé hið
upprunalega.
Ég hef flett upp í tiltækum bókum frá fyrri tímum til
að athuga hvaða nöfn eru notuð þar.
Niðurstaðan er þessi.
1. Manntal 1703; Kjaransstaðir.
2. Jarðabók 1709; Kjaransstaðir (skrifað
kianansstaðer).
3. Manntal 1729; Kervatnsstaðir.
4. Manntal 1802; Kjervatnsstaðir (skrifað
Kiervatnsstader).
5. Manntal 1816; Kervatnsstaðir.
6. Jarðatal Johnsen frá 1847; Kervatnsstaðir,
(Kjaranstaðir). (í fyrra skiptið sem það kemur fyrir,
er síðara nafnið í sviga en í sðar skipti aðeins það
fyrra.)
7. Manntal 1845; Kervatnsstaðir.
í manntölum í Inn til fjalla 1850, 1901 og 1950 og
alltaf notað Kjaransstaðir. Það virðist einnig
eingöngu notað í bókum Ungmennafélagsins frá
fyrri hluta aldarinnar og í skrá hreppstjóra yfir
verkfæra karlmenn frá sama tíma.
A.K
Raflagnir - Viðgerðir
Tek að mér nýlagnir, hönnun raflagna og alla
almenna rafvirkjavinnu ásamt tækjaviðgerðum.
Efnissala og varahlutaþjónusta.
Fljót og góð vinna.
Jens Pétur Jóhannsson
Sumarbústaðaeigendur athugið að ég sæki
um öll leyfi fyrir heimtaug að
sumarhúsum og lagningu raflagna.
LÖGGILTUR RAFVERKTAKI
Heimasími 98-68845
Verkstæði sími 98-68984
Bílasími 985-37101
Héraðsmót í borðtennis
11 ára og yngri hnokkar
3. Jón Ágúst Gunnarsson
5. Eldur Olafsson
6. Jóhann Pétur Jensson
11 ára og yngri hnátur
6. Ragnheiður Kjartansdóttir
12-13 ára strákar
1. Georg Kári Hilmarsson
2. Hilmar Ragnarsson
3. Gunnar Örn Þórðarson
4. Bóas Kristjánsson
14-15 ára piltar
1. Guðni Páll Sæland
3. Dagur Kristoffersen
14-15 ára stúlkur
Elma Rut Þórðardóttir
16-17 ára drengir
2. Axel Sæland
3. EinarPáll Mímisson
18-39 ára karlar
1. Þorvaldur Skúli Pálsson
2. Ingimar Ari Jensson
18-39 ára konur
2. Margrét Sverrisdóttir
3. Áslaug Sveinbjömsdóttir
40 ára og eldri
2. Gunnar Sverrisson
4. Sveinn Sæland
þetta er sex efstu sætin en það
voru fleiri þátttakendur frá
okkur.
1. sæti UMF. Bisk. 78 stig
2. sæti UMF Garpur 47 stig
3. sæti UMF. Hrun. 41 stig
Ungt og efnilegt borðtennisfólk.
Ragnheiður, Fríða, Jón Agúst og Andri.
X
Litli - Bergþór 11