Litli Bergþór - 01.03.1995, Síða 18
SANDVATN A
HAUKADALSHEIÐI frh.
Ásbrandsárinnar til þess að veita vatninu aftur niður
Sandárfarveginn.
Við þessar framkvœmdir lœkkaði vatnsyfirborð
Sandvatnsins sem leiddi til þess að svokallaður
Syðri-Flói við Sandvatn þornaði aftur upp og þaðan
hafa nú síðastliðin ár gengið gífurlegir sandbyljir
suður Haukadalsheiðina sem hafa eyðilagt gróður á
stórum svœðum á heiðinni. Þetta hefur aukið
erfiðleikana við frekari landgrœðsluframkvœmdir á
svœðinu og enn hefur ekki tekist að hefta sandfok
við Sandvatn þótt vissulega hafi mikið áunnist í
uppgrœðslumálum á heiðinni.
FYRIRHUGAÐAR FRAMKVÆMDIR
Landgrœðslan hefur um allnokkurt skeið
áformað að stöðva uppblástur á
Sandvatnssvœðinu. Til að svo megi verða þarf
vatnsyfirborð Sandvatns að verða stöðugra og
virðist eðlilegast að endurgera stíflu í Sandárfarvegi
og nýja stíflu með yfirfalli í Syðri-Ásbrandsá en þar
er landið hvað hœst af þessum þrem útföllum. En
eftir að jökulvatn hvarf að mestu úr Ásbrandsá og
þá Tungufljóti hafa menn vanist fljótinu tœru og
óska Biskupstungnamenn eftir því að svo verði
áfram sé þess nokkur kostur. Því þyrfti að gera
aðrennslisskurð úr Syðri-Flóa í Sandá og afrennslið
yrði þá niður í Hvítá.
Haustið 1992 voru aðstœður á svœðinu
skoðaðar af Helga Bjarnasyni og Páli Bjarnasyni og
gerðu þeir frummœlingar á aurasvœðinu og helstu
stíflustöðum sem til greina komu.
Við þœr athuganir kom fram að land er mjög
flatt á aurasvœðinu og afrennsli af svœðinu hefur
flœmst þar allvíða fyrrum, sérstaklega í stórflóðum í
Farinu eftir jökulhlaup Hagavatnsjökuls, síðast árið
1980.
Af loftmyndum og landakortum að dœma sést
að rennsli hefur verið frá aurasvœðinu sunnan
vatnsins, áleiðis til Sandár í flóðum og því er Ijóst að
möguleiki er á að gera afrennslisfarveg á svipuðum
slóðum af aurasvœði til Sandár. Við þœr aðstœður
þarf vatnsborð við afrennsli að vera 1- 1,5 m hœrra
en landhœð og því þarf að reisa lágar stíflur í fyrri
útrennsli Ásbrandsár frá aurasvœðinu. Þessi
veituleið var lauslega hœðarmœld 23. júní 1993 og
kom í Ijós að tiltölulega auðvelt vœri að stífla fyrri
útrennsli til Ásbrandsár þannig að rennsli fengist til
norðausturs yfir í farveg Sandár.
Þœr aðgerðir sem ráðst þarf í við Sandvatn til
að hœkka vatnsborð þar og koma vatni á
aurasvœðið neðan vatnsins eru eftirfarandi:
1. Hœkka grjótklœðningu á stíflu í Sandá um
0,5-0,8 m og gera flóðyfirfall við stífluna.
2. Hœkka þarf nyrðri stíflu við vatnið um 0,5
m og bœta við grjótvörn á stífluna.
3. Gera þarf útrennsli úr Sandvatni með því að
hafa grjótyfirfall á núverandi syðri stíflu yfir á
aurasvœðið. Þarf þá að lœkka stífluna á þeim hluta
um 1,3 m og klœða stíflufláa beggja megin með
grjóti til ölduvarnar.
4. Reisa þarf stíflur í fyrri útrennsli af
aurasvœði, við nyrðri og syðri kvíslar Ásbrandsár.
Hœð á stíflum rœðst annars vegar af þeirri
vatnsborðshœð sem þarf til að þekja aurasvœðið
og hins vegar af þeirri hœð vatnsborðs, sem þarf til
að rennsli fáist af svœðinu til Sandár.
5. Lagfœra þarf og hugsanlega tryggja rof í
afrennsli hins nýja farvegar til Sandár af aurasvœði.
Ekki er gert ráð fyrir að grafa þurfi fyrir afrennsli svo
nokkru nemi nema þar sem hœtta er á jarðvegsrofi,
þar þarf að klœða farveg.
TÆKNILEGAR FORSENDUR
Til að vatn nái yfir allt aurasvœðið og geti
runnið til Sandár þarf hœð vatnsborðs að vera
a.m.k. 273,5-274,0 m.y.s. að jafnaði. Með þeirri
hœð yrði vatnsdýpi í útrásarfarvegum um 1,8-2,0 m.
Ef vatnsborð Sandvatns verður hœkkað um 0,5 m
frá núverandi hœð yrði hœðarmunur á vatninu og
vatnsborði á aurasvœði um 1,7 m.
Stíflugarðar í útrásum neðan aurasvœðisins
verða því að vera um 4 m á hœð og með fláum 1:2
og 1:2,5. Ekki er gert ráð fyrir yfirfalli eða
framhjárennsli við þœr en verði óvenjuhátt
vatnsborð á svœðinu af einhverjum sökum eru
skörð á milli stíflanna, þar sem vatn mun geta
runnið um við vatnsborð sem er 0,5-1,0 m hœrra en
við eðlilegt rennsli. Ennfremur mun útrás vatnsins
til Sandár verða gerð þannig að stíflugörðum verði
ekki hœtta búin.
Við hlaup í Hagafellsjökli er viðbúið að rennsli
stóraukist í Farinu. Gert er ráð fyrir að það rennsli
geti runnið um stífluyfirfall Sandár en hœkkun í
Sandvatni getur við þœr aðstœður orðið veruleg.
Þurfa stíflumannvirki við vatnið að þola a.m.k. 1 m
hœkkun vatnsborðs án þess að þeim sé hœtta búin.
FRAMKVÆMDAÁÆTLUN
Byrjað yrði á verkinu með byggingu
varnargarða við aurasvœði sbr. lið 4 hér að ofan, þá
yrði syðri stífla Sandvatns hœkkuð og gert yfirfall
þar, síðan yrði nyrðri stífla hœkkuð og loks stíflan í
Sandá og þar gert yfirfall við hlið stíflu. Síðan yrði
farvegur af aurasvœði til Sandár lagaður samhliða
því að vatn tœki að renna af svœðinu.
Gert er ráð fyrir því að verkið taki 10-12 daga.
Er þá miðað við að notaðar verði 1-2 ýtur, 1-2 gröfur
og 2 vörubílar auk valtara.
Ekki er talið að gera þurfi sérstaka efnisleit á
svœðinu fyrir byggingarefni. Nœgjanlegt efni virðist
vera fyrir hendi í nœrliggjandi hólum og hœðum til
stíflugerðar og reynsla er komin á það efni í þeim
stíflum sem byggðar voru við Sandvatnið. Notast
þarf við síudúk undir grjótklœðningu í fláa
stíflananna vatnsmegin og í yfirföll.
Litli - Bergþór 18