Litli Bergþór - 01.03.1995, Page 20
Barnakór Biskupstungna
Það hefur sannarlega verið mikil sveifla í
starfi Barnakórsins frá síðastliðnu vori. Þá var
send spóla með söng kórsins til Kalundborgar
Barnakór Biskupstungna ásamt stjórnanda
sínum Hilmari Erni í Skálholtskirkju.
svo mótshaldar í árlegri kórakeppni gætu tekið
afstöðu til þess hvort kórinn ætti yfir höfuð
nokkurt erindi á kórahátíðina.
Ýmsir stórviðburðir áttu sér stað hjá
þjóðinni svo sem 50 ára lýðveldishátíðin á
Þingvöllum og Landsmót Ungmennafélaganna á
Laugarvatni og söng kórinn á báðum þessum
hátíðum.
I september barst jákvætt svar frá
Kalundborg.
Börnin og foreldrar höfðu í sumar haft þá
fyrirhyggju að byrja að safna peningum til
fararinnar, ef af henni yrði, og seldu þau vörur,
sem þau gerðu eða þeim voru gefnar, í
sölutjaldinu í sumar. Þar söfnuðust rúmar
kr. 100.000,- og voru allir hreyknir af því
framtaki ekki síst börnin.
Þann 18. nóvember var farið í Kringluna
með vörur og allan kórinn og söng hann þar
allan eftirmiðdaginn á klukkutíma fresti og seldi
brodd, rúgbrauð kökur, penna, þurrkaðar rósir,
jólakort o.fl. Þarna söfnuðust aðrar 100.000,-
og stolt barnanna var mikið eftir daginn. Svo
var gert söluátak í pennum og jólakortum.
Börnin gerðu tillögur að jólakortum en Toril
Malmö teiknaði fyrir kórinn mjög táknræna
jólamynd af Skálholtskirkju og börnum að
syngja. Sala á kortunum og pennum gaf í aðra
hönd um kr. 110.000,-. Kórinn naut jafnframt
styrkja frá velunnurum og þannig átti hann til
fararinnar um kr. 400.000,- um áramótin.
Vonir okkar stóðu til að hægt væri að
sækja í hina ýmsu menningarsjóði til styrktar á
ferð til Kalundborgar en reyndin hefur verið sú
að sjóðirnir setja sér þannig reglur að ekkert
fjármagn hefur fengist úr þeim til fararinnar.
Leitað var til safnaðarnefnda og hrepps og
hefur hvor aðili veitt í fararstyrk kr. 200.000,-
og þakkar kórinn innilega fyrir þann stuðning
sem í þessu felst. Leitað var til fleiri aðila og
hefur prófasturinn sr. Tómas Guðmundsson
gefið loforð fyrir styrk allt að ki\ 100.000,-
þegar þetta er skrifað. Ekki hafa fleiri svarað
jákvætt beiðnum okkar, enn sem komið er, en
ljóst er að ferðin verður farin með öll börnin og
mun sameiginlegur sjóður standa straum af
ferðinni fyrir börnin.
Eins og alltaf vill verða í samfélögum eins
og okkar þá heyrast úrtöluraddir þar sem fólk
býsnast yfir kostnaði og velta fyrir sér hvaða
aðilar muni nú græða á þessu öllu saman en við
foreldrar erum mjög þakklát fyrir þann stuðning
sem samfélagið og aðrir hafa veitt börnunum
okkar og þökkum einlæglega fyrir það. Við
erum líka viss um að samfélagið og
áframhaldandi söngstarf mun eflast þegar tekist
er á við eins skemmtilega hluti og nú eru
framundan.
Við höfum lagt inikla áherslu á að safna
fyrir þeim kostnaði sem hlýst af ferð barnanna
út, enda eru heimili barnanna misjafnlega í
stakk búin til að geta staðið straum af slíkum
kostnaði, og það má ekki verða til þess að
einhver fær ekki tækifæri til að koma með. Að
gefnu tilefni vil ég taka fram að þeir foreldrar
sem ætla að styðja við kórinn með því að fara
með honum munu greiða eigin ferðakostnað
sjálfir.
Mikill áhugi var á að fá eins peysur á öll
börnin sem einkenndi þau og var leitað til
Landsbankans eftir styrk til þess að prenta á
peysur. Landsbankinn veitti kr. 25.000,- í styrk
til þessa en í staðinn var Landsbankamerkið sett
á aðra ermi peysanna. Sigrún á Engi gerði mjög
skemmtilega mynd sem skreytir peysurnar að
framan.
Litli - Bergþór 20