Litli Bergþór - 01.03.1995, Blaðsíða 22
í lok ágúst 1992 fór ég í ársdvöl til Kanada
sem skiptinemi. Þar bjó ég rétt fyrir utan bæinn
Roblin Manitoba hjá fjölskyldu af úkraínskum
ættum. Eg lærði því bæði kanadíska siði og
venjur og úkraínska.
Munurinn á Kanada og íslandi er þó nokkur
og var því miserfitt að aðlagast breyttum
aðstæðum.
Kanada er (eins og flestir vita) miklu stærra
land en Island. Tíminn færist áfram eða aftur
um klukkutíma eða meira þegar maður ferðast
milli fylkja. Vegalengdirnar eru einnig meiri.
Að keyra eitthvert í 1 -2 tíma bara til að kaupa
sér buxur þykir lítið mál. Eitt sinn komu vinir
Afmæli Russell's (á sunnudeginum
eftir að ég kom).
Eg, Russell og Tamie
mínir nokkuð snemma um morgun að sækja
mig, því þau voru á leiðinni í morgunmat á
Giro's café, sem er í Winnipeg, en það tekur
ekki nema 4-5 tíma að keyra þangað án þess að
stoppa.
Kanadabúar halda ýmsar amerískar hátíðir
eins og þakkargjörðarhátíð og hrekkjavöku.
Einnig halda Kanadabúar hátíðleg jólin á
ameríska vfsu auðvitað. Fyrir miðjan desember
eru allir búnir að skreyta húsin og garðinn.
Skiptinemi
í Kanada
Jónína R. Kristjánsdóttir.
Fólkið leggur mismikið á sig við skreytingar,
en þó voru þó nokkrir sem tóku þetta mjög
alvarlega. Það var ekkert sparað við
jólaseríurnar á þeim bæjum. Oft mátti sjá hús
sem voru ein ljósadýrð, (sást ekki í þakið)
snjókarla, jólasveina og hreindýr á stjái í
garðinum sem einnig ljómaði af ljósadýrð. Svo
byrja jólin eldsnemma um morgun þ. 25.
desember með opnun jólagjafa.
Börnin vakna oftast 6 eða 7 svo er restin af
fjölskyldunni að drattast á fætur til hádegis. í
hádeginu er síðan borðuð veislumáltíð. Jólin
eru síðan sögð búin 28. desember og þegar nýja
árið byrjar er allt jólaskraut komið ofan í kassa.
Gamlárskvöld er ekki fjölskylduskemmtun
eins og hér heima. Fullorðna fólkið fer út á
lífið oftast í partý hjá vinafólki en börnin sitja
heima hjá afa og ömmu eða hverjum sem getur
passað þau og eina flugeldasýningin sem þau fá
að sjá er sú sem er sjónvarpað frá einhverri
stórborginni.
Það er ekki fyrr en þau eru orðin 16-18 ára
sem þau fara eitthvert út á lífið og þá ekki með
mömmu og pabba. Þannig að áramótin eru lítið
spennandi fyrir yngri kynslóðina.
í Kanada býr fólk af allskyns ólíkum
þjóðernum og er mikið gert í því að halda í
gamla siði. T.d. í janúar hélt fólk af
úkraínskum ættum jólin hátíðleg. Einnig var í
gangi kennsla í úkraínskum dönsum og haldnar
voru keppnir um allt land í þessum dönsum.
Skólinn sem ég gekk í heitir Goose Lake
High. Það kom mér á óvart hvað skólakerfið
þarna úti er ólíkt kerfinu héma heima. Börnin
byrja í „kindergarden“ sem er hálfgerður 0-
bekkur 4-6 ára gömul. Til þess að komast í 1.
bekk verða þau að sýna ákveðinn þroska og
getu. Þannig er það síðan gegnum alla
skólagönguna. Ef þau ná ekki ákveðinni
einkunn þá eru þau fallin. Ég kynntist einni
stelpu, sem er jafngömul mér og hefði því átt
Litli - Bergþór 22