Litli Bergþór - 01.03.1995, Qupperneq 23
að vera í 11. bekk en var ennþá í 6. bekk. (Þó
held ég að þetta sé hálfgert einsdæmi og komi
ekki oft fyrir). Einnig voru allar reglur
strangari. Við minniháttar brot svo sem læti í
tíma var refsingin að sitja inni á skrifstofu og
læra þar undir umsjón skólastjórans og ritarans.
Við stæiTÍ brotum, svo sem að reykja eða að
vera ölvaður í skólanum, var vísað úr
skólanum. Einu sinni voru um 15-20 manns úr
8.-10. bekk rekin úr skólanum í 6 vikur vegna
þess að þau mættu ölvuð á skólaball. Þau máttu
koma í skólann til að þreyta próf og ná í
námsefnið. Flest þeirra voru síðan í banni
heima hjá sér í allt frá 4 mánuðum til 1 ár.
Mikið var gert úr því að maður bæri virðingu
fyrir kennurunum. Maður átti að nota Mr.,
Mrs., Mr., plús eftirnafn.
Það var margt annað sem var ólíkt með
Kanada og Islandi, eins og matarvenjur og
landslagið. Það kom mér á óvart hvað
munurinn er í raun mikill. Jónína R. Kristjánsdóttir.
Skiptinemaferðalag.
Montreal í baksýn.
Þessi dvöl mín í Kanada var mjög skemmtileg
og var einnig mikil lffsreynsla. Eg hvet því
alla, sem hafa áhuga á að gerast skiptinemar, að
láta verða af því.
NAVAL KÚLULOKAR
fyrir hitaveitur
Set hf. hefur selt hitaveitum landsins
kúluloka fyrir heitt vatn í áraraðir.
Reynsla fyrirtækisins í þjónustu vió
veiturnar og fullvissa um gæái
NAVAL lokanna tryggir
kaupendum endingargóða
og hagkvæma vöru.
Eyravegi 43 - 800 SELFOSS
Pósthólf 83 Sími 98-22700
Fax 98-22099
Litli - Bergþór 23