Litli Bergþór - 01.12.1996, Blaðsíða 26
Frá Landgræðslufélagi
Biskupstungna
Mánudagskvöldið 28. okt. var haldinn þriðji aðalfundur
félagsins í Bergholti. Um 14 félagar mættu á fundinn
auk gesta.
Á fundinum
var sagt frá
stafsemi
félagsins á
þessu ári.
Sauðfjárbændur
fóru 21. júní
og báru á
Róbert á Brún kominn með
áburðinn í Fremstaver.
uppgræðslusvæðið við Sandá
og við Fremstaver. Farið
inn í Árbúðir með fræ og
áburð og því dreift á svæðið
þar í kring. Þar er farinn að
sjást verulegur árangur af
uppgræðslustarfi
undanfarinna ára. Farið var
með áburð og borið á í
Skálholtstungu. Þar er allt að
gróa sem hægt er að gæða
upp. Unnið var að landgræðslu í Rótarmannagili, en þar
voru aðallega unglingavinnan og Landgræðslan að
störfum. Síðasta haust var gerð tilraun með að ryðja
niður rofabörðum með beltagröfu í Rótarmannagili og
var það gert við um helming rofabarðanna. Síðan var sáð
Beðið eftir áburði innan við Sandá.
F.v. Arnheiður í Gýgjarhólskoti, Sigurður
á Vatnsleysu, Sœvar í Gýgjarhólskoti og
Valur á Gýgjarhóli.
í raskið. Ákveðið var að bíða með frekari slíkar
framkvæmdir þangað til að áhrif þessara aðgerða koma
betur í ljós. Stefnt var að því að girða nokkur rofabörð
við Sandvatnshlíðarhomið og hefja þar
björgunaraðgerðir. Það komst ekki í verk á þessu ári.
Einnig var verið að ræða um hvort menn úr sveitinni
gerðust verktakar hjá Landgræðslunni við
áburðardreifingu á Flaukadalsheiði. Ekki komst það í
verk á þessu ári, að hluta til vegna þess hve heyskapur
byrjaði snemma. Einnig er á dagskrá hjá félaginu að
merkja reiðleiðir yfir Kjöl til að dreifa þeirri gífurlegu
hestaumferð sem fer um þetta svæði.
Einn stjórnarmaður og varamaður áttu
að ganga úr stjóm og voru þeir
endurkjörnir. Stjórnina skipa
Þorfinnur á Spóastöðum, Gísli í
Kjarnholtum og Amheiður í
Gýgjarhólskoti.
Á fundinn komu tveir fyrirlesarar auk
landgræðslustjóra. Þetta voru Sigurðar
tveir. Sigurður Greipsson sagði fá
starfsemi Landgræðslunnar á
Flaukadalsheiði. Sigurður Magnússon
fræddi fundarmenn um uppgræðslu,
sagði frá tilraunaniðurstöðum og
kostum og göllum þess að flytja inn
útlendar plöntutegundir. Sveinn
Runólfsson, landgræðslustjóri, ræddi um landgræðslu og
gróðurvemd.
Eftir fyrirlestrana sköpuðst nokkrar umræður yfir kaffinu
og var fundi slitið upp úr miðnættinu.
Amheiður Þórðardóttir
TDttMsniRTI
J v STOFfl rri ^ II
LEIF & ÆVAR
sími 482-1455
fax 482-2898
Hársnyrtistofa
Leifs og Ævars
Austurvegi 21 Selfossi,
Opið:
Opið:
Opið:
mán.-miðv. 9-18,
fimmtud. 9-20,
föstud.9-19,
og Iaugard. 9-14.
sími 482-1455
fax 482-2898
Litli - Bergþór 26