Litli Bergþór - 01.07.1998, Blaðsíða 4
Frá Ungmennafélaginu
Afmæli Ungmennafélags Biskupstungna.
Ingólfsdóttir Engi, Fríða Helgadóttir Hrosshaga,
Droplaug Guttormsdóttir Skálholti, Ragnheiður
Kjartansdóttir Gilbrún, og Arnbjörg Jóhannsdóttir
Reykholti.
Heiðraðir voru 5 félagar fyrir vel unnin störf í
þágu félagsins fyrr og nú. Það voru þau Halla
Bjamadóttir á Vatnsleysu, Sigurður Þorsteinsson á
Heiði, Þórir Sigurðsson í Haukadal, Sigurður
Erlendsson á Vatnsleysu og Arnór Karlsson í
Amarholti.
Allir núlifandi heiðursfélagar og fyrrverandi
formenn voru mættir að Birni Bjamdal Jónssyni
undanskildum en hann var staddur í Noregi og sendi
félaginu afmæliskveðju þaðan.
Hluti gesta á afmcelishátíðinni.
var æft sérstaklega fyrir þetta kvöld og sá Hólmfríður
Bjarnadóttir í Skálholti um að æfa og semja dansinn
ásamt dönsurunum sem voru, Ósk Gunnarsdóttir
Hrosshaga, Elín Magnúsdóttir Hveratúni, Svanhvít
Heiðursfélagar fyrr og nú.
Ungmennafélagið varð 90 ára sumardaginn fyrsta
1998 og hélt upp á það þann dag með tilheyrandi
veizlu.
Undirbúningur fyrir hátíðina var aðallega í
höndum stjórnar Umf. Bisk og yngri fyrrverandi
formanna félagsins.
Fagnaðurinn hófst kl. 2100 í Aratungu. Margrét
Bóasdóttir tók að sér veizlustjóm og átti auðvelt með
að skapa létta og líflega stemmingu. Sýnd voru atriði
úr þremur leikritum sem Ungmennafélagið hefur sett
upp. Það var úr Gísl sem sett var upp fyrir 20 ámm í
tilefni 70 ára afmæli félagsins, Fermingabarnamótið
sem sett var upp 1996 og Síldin kemur og síldin fer
sem var sett upp í vetur í tilefni 90 ára afmælisins.
Skálholtskórinn söng nokkur lög undir stjóm Hilmars
Amar Agnarssonar, þar á meðal lag eftir Stefán
Sigurðsson sem hann gaf félaginu sl. haust. Dansatriði
Ný stjórn U.M.F.Bisk.
Ungmennafélaginu bárust góðar gjafir og hlýjar
kveðjur frá hinum ýmsum aðilum, m.a. frá Kvenfélagi
Biskupstungna, Umf. Skeiðamanna, Umf. Gnúpverja,
Umf. Laugdæla , Umf. Hvöt,
Héraðssambandinu Skarphéðni og
Ungmennafélagi íslands. Amór
Karlsson afhenti félaginu borðfána
félagsins að gjöf frá öllum
fyrrverandi formönnum félagsins.
Boðið var upp á veglegt
kaffihlaðborð og átti Kristín á
Kjóastöðum allan heiður af vel
skreyttum brauð- og rjómatertum.
Sveitungar komu með kökur með
sér eins og alltaf var gert í gamla
daga þegar samkomur voru. Um
200 manns á öllum aldri heiðruðu
félagið með nærveru sinni.
Afmælisnefndin þakkar öllum
þeim sem lögðu félaginu lið svo
hægt væri að gera þennan afmælisdag sem bestan.
Bestu þakkir,
Margrét Sverrisdóttir.
Litli - Bergþór 4