Litli Bergþór - 01.07.1998, Blaðsíða 12
Sveitarstjómar- og sameiningarkosningar frh
aleflifyrir því að þeir miklu umferðarvegir sem hér eru
verði byggðir upp með bundnu slitlagi á kjörtímabilinu
svo og aðrir vegir sveitarfélagsins verði gerðir
varanlegir. “ Einnig „að hún þrýsti ennfrekar á
snjómokstur“ og „að brú yfir Hvítá verði að veruleika
K-listi vill að þrýst sé „áframhaldandi uppbyggingu
vegakerfisins í sveitinni og þá sérstaklega að Ijúka við
Biskupstungnabraut upp að Múla og að framkvœmdir
verði hafnar við Hvítárbrú. “ Þess skuli krefjast „að
Vegagerðin leggi reiðvegi eins og lög gera ráðfyrir. “
H-listinn telur að tryggja skuli „nauðsynlegar
vegabœtur innan sveitar" og telur Hvítábrú og
heilsársveg milli Laugarvatns og Þingvalla „mikilvœgar
samgöngubœtur til hagsbóta fyrir uppsveitirnar. “
f. Skipulags- og umhverfismál:
H-listi vill að stofnað verði byggðasamlag
uppsveitanna og að vinna að skipulagi. Þörf er talin á
átaki í fráveitumálum og „að auka meðvitund íbúanna
um umhverfi sitt, sorphirðu ogfrágang mannvirkja. “
„Afram verði unnið að lokun hœttulegra skurða við
alfaraleiðir og stefnt að auknu umferðaröryggi í
þéttbýliskjörnum. “
K-listinn greinir frá því að fyrir dyrum standi úttekt á
að- og fráveitum í sveitinni, og að í framhaldi af því sé
„gert ráðfyrir að menn geri hreintfyrir sínum dyrum. “
„Aukið verði aðgengi að sorpgámum og þeimfjölgað
eins og þörf krefur, “ og „leitað nýrra leiða viðförgun
sorps, svo sem með nýtingu á lífrœnum úrgangi o. fl. “
Skýrt er frá því að vinnu við aðalskipulag hreppsins verði
lokið árið 1999, og talið mikilvægt að við þá vinnu verði
haft náið samráð við íbúana.
L-listi telur frárennslismál „víða íólestri og er úrbóta
þörf, við viljum ýta betur við þeim þætti. “
S-listinn heitir að stuðla að því „aðfegra umhverfið,
fiokkun sporps og förgun þess sem ekki er hœgt að
endurvinna. “ Varðandi náttúruvemd hefur hann þetta til
málanna að leggja: „ Við viljum ekki að hróflað verði við
viðkvœmum svœðum, t. d. að hœtt verði að þurrka upp
mýrar þar sem er mikið fuglalíf. Við viljum samt engar
öfgar í náttúruvernd eins og við sjáum hjá
Náttúruverndarráði á Geysissvœðinu. “ Þá vilja þeir
„markvisst átaktil að stöðva uppblástur lands.“ Hann
berst gegn mengun.
g. Afréttarmál:
L-listinn „telur afréttarmál best komin íhöndum
hreppsins. “ Hann lýsir ánægju með hvemig staðið hefur
verið að þjónustu við ferðamenn og „framtak þeirra sem
sinnt hafa landgrœðslumálum á hálendinu. “
H-listinn vill tryggja „ umráðarétt heimamanna yfir
afréttinum á öllum stigum. “ Einnig að áfram verði unnið
„að uppbyggingu þjónustu á afréttinum “ og „kappkosta
að lialda sátt um nýtinu og uppgrœðslu hans. “
K-listi telur að standa skuli „ vörð um stjórnsýslu- og
eignarrétt okkar á afréttinum. “ Stefnt verði „að aukinni
uppbyggingu á þjónustu “ þar. Afram verði „ unnið að
uppgrœðslu afréttarins í samvinnu við Landgrœðsluna,
Landgrœðslufélagið og fjárbœndur. “ Hann vill ljúka
við að lagfæra réttimar sem fyrst.
h. Sameining sveitarfélaga:
K-listi „tekur hvorki afstöðu með eða á móti
sameiningu sveitarfélaga. “
H-listinn styður sameininguna, sem kosið er um.
L-listi vill „ ekki gefa út eina ákveðna stefnu í
sameiningarumræðunni. “
S-listinn „berst gegn sameiningu sveitarfélaga. “
i. Kosningaloforð:
K-listi er sá eini, sem notar þessa fyrirsögn í bæklingi
sínum. Þar er því heitið að haldi hann meirihluta verði
„farið með efsta mann listans í klippingu. “ Einnig er
heitið „andlegum stuðningi við Drauga- og
tröllaskoðunaifélag Evrópu. “ (Bandstrikið er viðbót L-
B.)
Framboðsfundur var í Aratungu 19. maí. Þar vom
nær 120 manns og um þriðjungur þeirra frambjóðendur.
Einir 17 þeirra gerðu grein fyrir stefnu framboðslistanna,
og síðan svömðu þeir spumingum fundarmanna.
Kosningar.
Kjörfundur var í Aratungu 23. maí og stóð frá kl. 12 -
22. Atkvæði voru talin þar í heyrenda hljóði að honum
loknum. A kjörskrá vora 346 og greiddu 310 atkvæði í
hreppsnefndarkosningum. Atkvæði féllu þannig að:
H-listi fékk 92 atkvæði og 3 menn kjöma, K-listi fékk
121 atkvæði og einnig 3 menn, L-listi fékk 58 atkvæði
og einn kjörinn og S-listi fékk 29 atkvæði og engan
kjörinn. Auðir seðlar voru 9 og einn ógildur.
Þriðji maður H-lista er með fæst atkvæði (30 2/3), og
hefði K-listi þurft að fá 2 atkvæðum meira til að fá það
sæti og þar með meirihluta.
S-listinn hefði fengið það með tveimur fleiri
atkvæðum en L-listinn hefði þurft fjögur atkvæði í viðbót
til að ná því.
Sameiningarkosningar.
Undirbúningur þessara kosninga var í höndum
nefndar, er skipuð var fulltrúum hreppanna 8, sem eiga
kost á að sameinast. Gefinn var út myndskreyttur
kynningarbæklingur með ýmsum upplýsingum varðandi
sameininuna og aðallega kostum hennar.
Kynningarfundur var haldinn í Aratungu að kvöldi 14.
aprfl. Þar skýrðu fulltrúar nefndarinnar ýmislegt og
svöruðu spurningum fundarmanna.
Kosið var um leið og til sveitarstjómar og lágu úrslit
fyrir um kvöldið. Alls skiluðu 298 kjósendur gildum
atkvæðaseðlum og sögðu 196 já en 102 nei.
Sameiningin var samþykkt í Skeiðahreppi (75 : 70),
Hranamannahreppi (221 : 158), Laugardalshreppi (101 :
20), Þingvallahreppi (18 : 8) og Grímsneshreppi (73 :
53) en felld í Graningi (17 :12) og Gnúpverjahreppi (116
: 47). Þar sem búið var að ákveða sameiningu Grímsness
og Grafnings voru Grímsnesingar ekki með í síðari
umferð, sem fram fór 27. júní. Niðurstaðan varð að
sameiningin var samþykkt allsstaðar nema á Skeiðum.
Frh. á næstu blaðsíðu....
Litli - Bergþór 12