Litli Bergþór - 01.07.1998, Side 6
Hreppsnefndarfréttir
Hreppsnefndarfundur 24. mars 1998.
Samþykktir viðræðunefndar um sameiningu
sveitarfélaga. Lögð var fram lokaútgáfa samþykkta
viðræðunefndar um sameiningu átta sveitarfélaga í
uppsveitum Árnessýslu til kynningar og afgreiðslu. Páll
og Svavar fóru yfir samþykktimar lið fyrir lið og skýrðu
umræðuna sem að baki þeim liggja. Nokkrar
athugasemdir komu fram.
Sameiginlegur fundur hreppsnefndanna átta verður í
Aratungu 27. mars kl. 14.00.
Hreppsráðsfundur 16. apríl 1998.
Bréf frá áhugahópi um Eyvind og Höllu. Oskað
eftir framlagi til að reisa þeim bautastein á Hveravöllum í
sumar. Hreppsráð leggur til að kr. 150.000,- verði lagðar
til verksins frá Biskupstungnahreppi. Gísli og Ásborg em
í nefnd sem annast skal hátíðahöld á Hveravöllum þann
15. ágúst í sumar. Þar verður minnisvarðinn afhjúpaður
sem unninn er af Magnúsi Tómassyni listamanni.
Bréf Sigurðar Sigurðarsonar dýralæknis dags. 22.
mars. Hann óskar eftir að forðagæslumönnum verði falið
að safna upplýsingum urn heilbrigði sauðfjár í sveitinni.
Málið er þegar komið til forðagæslumannanna og er í
vinnslu.
Bréf Sorpstöðvar Suðurlands dags. 14. mars 1998.
Kynntar hugmyndir um samræmdar merkingar á gámum
og gámasvæðum og spurt eftir áhuga sveitarfélaga að
taka þátt í verkinu. Hreppsráð lýsir áhuga sínum á málinu
enda löngu tímabært að koma betri skikkan á þessi mál.
Bréf Dagsbrúnar og Framsóknar dags. 6. apríl
1998. Þeir hafna tillögum hreppsnefndar um makaskipti
á landi til byggingar sumarhúsa. Sveini falið að gera drög
að svarbréfi fyrir næsta hreppsnefndarfund, þar sem þeim
yrði gert formlegt tilboð og tilteknir ennfrekar þeir
annmarkar sem eru á fyrirhuguðum byggingum þeirra.
Fundargerð byggingarnefndar dags. 30. mars 1998.
Byggingamefnd óskar eftir formlegu samþykki
hreppsnefndar á deiliskipulagi við Koðralæk í landi
Holtakota, áður en þeir leyfa byggingu sumarhúss þar.
Hreppsráð telur að þar sem fyrir liggja samþykktir
landeigenda á svæðinu um skipulagið og að þeir lofi að
umferð verði óhindruð um vatnsbakkann sbr. bréf dags.
28. okt. 1997 og 14. jan. 1998 þá sé réttlætanlegt að víkja
frá lögum og reglugerðum í þessu máli og samþykkja
deiliskipulagið sem fyrir liggur.
Varðandi bókun nr. 2 frá hreppsnefndarfundi þann
10. mars 1998 þá er ljóst að auglýsa þarf breytta
landnotkun í Birkilundi ef tjaldsvæði yrði leyft.
Hreppsráð leggur því til að Þóri verði boðið að byggja
umrætt snyrtihús á tjaldsvæði hreppsins handan
Skólavegar, gegnt Birkilundi. Oddvita falið að ganga frá
málinu.
Bréf Samb. ísl. sveitarf. dags. 1. aprfl 1998. Efni:
Sameiginlegur lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga.
Hreppsráð telur þetta eðlilega þróun og vísar málinu til
afgreiðslu á næsta hreppsnefndarfundi.
Hreppsnefndarfundur 21. apríl 1998.
Hreppsreikningur Biskupstungnahrepps 1997.
Ársreikningur Biskupstungnahrepps fyrir árið 1997 lá
fyrir til síðari umræðu. Engar athugasemdir voru gerðar
og var reikningurinn undirritaður af
hreppsnefndarmönnum.
Þriggja ára áætlun. Lögð var fram fjárhagsáætlun
fyrir tímabilið 1998-2001. Gert er ráð fyrir lækkun
skulda úr 108,2 millj. 1997 í 80,3 millj. 2001. Áætlunin
var samþykkt og undirrituð af hreppsnefndarmönnum.
Opnunartími sundlaugar verði óbreyttur frá fyrra
sumri, frá kl. 10 - 22 alla daga.
Lögð voru fram drög að svarbréfi þar sem
Dagsbrún og Framsókn er gert formlegt tilboð um
makaskipti á landi.
Lögð fram umræðutillaga að aðalskipulagi
Laugaráss í Biskupstungum 1998-2010 ásamt
greinargerð til kynningar.
Bréf Skipulagsstofnunar 16. apríl 1998 þar sem
veitt er heimild til að auglýsa deiliskipulag fyrir
þjónustuhús við Gullfoss. Samþykkt að auglýsa
deiliskipulagið.
Deiliskipulag á Tjörn. Lagt fram deiliskipulag
sumarhúsasvæðis í landi Tjarnar í Biskupstungum ásamt
greinargerð. Samþ. að auglýsa skipulagið með fyrirvara
Hársnyrtistofa
Leifs
Austurvegi 21 Selfossi,
^ mán.-miðv. 9-18,N
Optð: fímmtud. 9-20,
Opið: föstud.9-19,
og laugard. 9-14.
V______________ _____________J
sími 482-1455
fax 482-2898
j
Litli - Bergþór 6