Litli Bergþór - 01.07.1998, Side 7
Hreppsnefndarfréttir
um lið 8 í greinargerð þar sem enginn kaldavatnsgeymir
er á Torfastaðaheiði.
Bréf Skálholtskórs dags. 18. mars 1998 þar sem
óskað er eftir styrk til Þýskalandsfarar. Samþykkt að
leggja fram 100.000 kr.
Kaupsamningur Lambabrúnar. Lagður fram
kaupsamningur vegna Lambabrúnar í Biskupstungum.
Loftur Jónasson og Vilborg Guðmundsdóttir selja Boga
Pálssyni og Þóru Birgisdóttur lóðina ásamt íbúðarhúsi og
leigulóðarréttindum. Hreppsnefnd samþykkir að falla frá
forkaupsrétti.
Bréf Geysis hf dags. 15. apríl 1998 þar sem Geysir-
Vélsleðaferðir ehf og Jöklarútan ehf óska eftir starfsleyfi
til jöklaferða. Einnig er óskað eftir stöðuleyfi fyrir
færanlegt þjónustuhús við Skálpanes. Hreppsnefnd samþ.
starfsleyfið og vísar umsókn um stöðuleyfi til
byggingarnefndar.
Bréf menntamálaráðuneytis 14. apríl 1998 þar sem
fram kemur að ekki hafa allir nemendur fengið
lögbundinn fjölda skóladaga 1996-1997. Bréfinu vísað til
skólanefndar.
Hreppsnefnd ítrekar að eigandi hesthúss og
girðingar í Launrétt fjarlægi það fyrir 15. júní 1998.
Hreppsnefndarfundur 12. maí 1998.
Mættir voru allir hreppsnefndarmenn nema Páll en í
hans stað var Margrét Baldursdóttir.
Bréf frá útvarpstöinni Glundri þar sem farið er
fram á styrk til útvarpsreksturs í maí. Samþykkt að
leggja fram kr. 10.000,- enda sé tryggt að fullorðinn
ábyrðarmaður sé fyrir stöðinni.
Ályktun kennarafundar frá 28. aprfl 1998 þar sem
lýst er áhyggjum vegna undirskriftalista sem í gangi em.
Kosning formanns þjóðhátíðarnefndar. Samþykkt
að fela Kristjáni Vali Ingólfssyni formennsku í
þjóðhátíðamefnd í ár.
Hreppsráðsfundur 28. maí 1998.
Fundargerð Leikskólanefndar dags. 5.maí 1998.
Varðandi punkta um viðhald innandyra, þá er ákveðin
fjárveiting á fjárhagsáætlun ætluð til þeirra framkvæmda.
Varðandi leiksvæðið þá varpar hreppsráð fram þeirri
hugmynd að komið verði upp nýju bflastæði við
brekkuræturnar, ofan spennuvirkis Rarik og brekkunni og
efri bflastæðunum síðan lokað þannig að hægt sé að
útvfkka leiksvæðið að hluta í þá áttina. Ákveðið að láta
Pétur H.Jónsson útfæra hugmyndina þannig að hægt
verði að fjalla nánar um hana.
Fundargerðir skólanefndar dags. 20.maí 1998.
Varðandi launalaust leyfi hjá Helga Kjartanssyni, þá
leggur hreppsráð til að það gildi einungis í eitt ár.
Erindi Gunnlaugs Skúlasonar Launrétt /
Brekkugerði. Varðarmálnr. 12. frá hreppsnefndarfundi
þann 21. aprfl 1998. Þar fer hreppsnefnd fram á að
Gunnlaugur fjarlægi hesthús og girðingar við Launrétt
fyrir 15. júní 1998. Gunnlaugur óskar eftir fresti til 15.
sept. 1998 til þessara aðgerða og leggur hreppsráð til að
orðið verði við því.
Bréf Snæbjarnar Magnússonar og Hlífar Pálsdóttur
Laugarási dags. 24. maí 1998. Þau óska annarsvegar eftir
leyfi til að fá nafnið Iðufell, skráð á gömlu eignir
Sláturfélagsins, sem þau hafa fest kaup á. Hreppsráð
leggur til að það verði samþykkt. Hinsvegar óska þau
eftir viðbót við lóð sína alls 4500 m2.
Hreppsráð fellst á, að þau megi loka skurði sem er á
viðkomandi lóð og planta út gróðri í landið. Um frekari
leigu eða kaup er ekki að ræða að sinni og vísast til
komandi aðal og deiliskipulags.
Skipulagsmál. Pétur H.Jónsson mætti og kynnti m.a.
skipulagshugmyndir að „Sigurðarstöðum“. Samningur
um lóðina gildir til ársins 2002. Þau óska eftir
áframhaldandi lóðasamningi. Hreppsráð er tilbúið til að
koma á móts við lóðahafa og leggur til að skipulagðar
verði fjórar lóðir þar sem byggð yrðu heilsárshús, en ca.
helmingur lóðarinnar yrði til almennrar útivistar. Pétri
H.Jónssyni falið að kanna hug íbúa í Austurbyggð til
þessara hugmynda.
Starfslokasamningur við Kristinn Bárðarson
dagsettur 5.maí 1998. Kynntur og staðfestur.
Bréf Sorpstöðvar Suðurlands dags. 15. maí. Kynnt
skilti sem setja á upp á gámasvæðum í sveitinni og einnig
drög að bæklingi sem dreift yrði á svæðinu. Hreppsráð
lýsir ánægju sinni með þetta framtak, en athuga þarf
betur með móttökustað fyrir brotajárn, þar sem núverandi
staður er ekki til frambúðar af hálfu landeigenda.
Bréf Heilbrigðiseftirlits Suðurlands. Kynnt átakið
Vorhreinsun 1998. Ákveðið að senda út kynningarefnið
án samráðs við umhverfisnefndina, þar sem einungis er
vika eftir af starfstíma hennar.
Kynnt svar Félagsmálaráðuneytisins við umsókn
Ferðamálafulltrúans um styrk til námskeiðahalds. Veittar
voru 200.000.-kr. til verkefnisins „Stofnun og rekstur
smáfyrirtækja".
Hreppsnefndarfundur 3. júní 1998
Hreppsnefnd leggur áherslu á að gamla
Tungufljótsbrúin verði til staðarfyrir létta umferð.
Mikilvœgt er að friða brúna vegna aldurs, legu og útlits.
Leitað verði eftir samstarfi milli Vegagerðarinnar og
Húsfriðunarnefndar um viðhald hennar og varðveislu.
Halldór Jónsson Stekkholti óskar eftir að fá kalt
vatn frá Vatnsveitunni úr Bjamafelli. Samþykkt að
athuga með hagkvæmustu kosti við að koma vatni að
Stekkholti.
Bréf Byggingafulltrúa 25. maí. 1998 þar sem hann
telur að ein Bygginganefnd eigi að vera á öllu starfssvæði
hans. Hreppsnefnd tekur jákvætt í erindið.
Borist hefur gjöf frá Helga Kr. Einarssyni, sem er
mynd af búendum í Biskupstungum 7. júní 1936. Myndir
er tekin við samkomuhúsið á Vatnsleysu á 50 ára afmæli
Búnaðarfélags Biskupstungna. Gefendum eru færðar
kærar þakkir fyrir.
Á þessum síðasta fundi hreppsnefndarinnar
þakkaði oddviti mönnum samstarfið og óskaði mönnum
góðs gengis. Skiptust menn á þakkarorðum og góðum
óskum.
Litli - Bergþór 7