Litli Bergþór - 01.07.1998, Page 26
Prestur í Biskupstungum frh
Sr Guðmundur við sembalinn sem hann keypti til
nota við sumartónleikana.
Ein hugmyndin var að gefa þjóðkirkjunni húsið.
Hana vantar bókasafn og menningarmiðstöð.
Einhverskonar endurhæfingarmiðstöð kæmi lrka til
greina. En eitt er víst, við hyggjum ekki á hótelrekstur.
Viljum ekki of mikinn eril í kring um húsið.
En til að byrja með býst ég við að gera mér hesthús á
neðstu hæðinni, þar sem ég
hef ekki efni á að ráðast í
hesthúsbyggingu samhliða
íbúðarhúsinu. Þarhafa
hross áður leitað skjóls. En
það þarf að leiða þangað
vatn og rafmagn.
I sambandi við
hestamennskuna get ég sagt
þér af öðru uppátæki, sem
ég veit ekki hvort nokkur
Tungnamaður trúir. Ég
keypti í fyrra hlut í hesti,
nokkuð dýrum hesti. Svo
vildi til að ég rakst á mann,
sem ég vissi að var til, en ég
hafði ekki séð. Hann heitir
Bragi Andrésson,
Mýramaður, en býr nú á
Eyrarbakka. Hann sagðist
eiga hest, sem væri gersemi. Ég fór að skoða hestana hjá
honum og þar var ungur hestur, fríður og tilþrifamikill,
sem heitir EMMI. Ég hváði við og spurði hvaðan nafnið
væri komið og hann sagði hestinn heita eftir karli
nokkrum í Ólafsvík, Emanúel að nafni. Þá rifjaðist upp
fyrir mér að þegar Anna var að alast upp í Ólafsvík, var
bara einn maður þar, sem kallaður var hestamaður. Hann
var nokkur slarkari og gefinn fyrir brask, kallaður Emmi.
Krakkamir fengu stundum að sækja hesta fyrir hann og
einhverju sinni, þegar Anna var komin á bak, hafði
klárinn tekið á rás, og stokkið í einum spretti heim.
Hafði hún orðið ansi hrædd. -
En þessi hestur er semsagt fæddur hjá Emma í
Ólafsvík. Hann er undan Pilti frá Sperðli og Flugu
(3986), sem var undan Herði yngri (591) frá Kolkuósi.
Móðurkynið er annars frá Jóni Pálssyni, dýralækni á
Selfossi.
Sr. Guðmundur sýnir blaðamanni ættartölu hestsins
og myndband frá síðasta fjórðungsmóti, afPilti og
afkomendum hans. Það er greinilega mikill kraftur í
Emma þessum og ógnar vilji, þar sem hann geisist um
völlinn. Bragi tamdi Ófeig frá Hvanneyri, sem kallaður
hefur verið viljugasti stóðhestur á íslandi. Lítil jörp
hryssa undan honum, Perla 4889, fékk 10 fyrir vilja, en
hún átti 13. folaldið í sumar með Emma, sonarsyni
sínum.
Bragi þurfti liðsinnis við og mér fannst sjálfsagt að
hjálpa honum að koma þessum hesti upp. Við erum
báðir sannfærðir um að dagar hans muni koma.
Ég gerði að gamni mínu vísur um Emma til Braga
Andréssonar og eru þær á þessa leið:
Varla sá ég frárri fót
fara um svörð á jörðu,
berja fastar grund og grjót,
geisa um börðin hörðu.
Brúnin skörp og bráin fríð,
blikar á móðursjóðinn.
Æðir fram sem öskuhríð,
æsir glóðum móðinn.
Emmi slyngur slær um sig
Sleipnisfótum skjótum.
Fer þá súgur sæll urn þig,
sindur hrjóta af grjótum.
L.-B: Það er nú komið að
lokum þessa spjalls, en er það
eitthvað, sem þú vildir segja að
lokum ?
Sr. Guðmundur: Hér er
nú sjálfsagt margt ofsagt af sjálfum mér, og vansagt um
vini og velgjörðir. En ég er og verð Tungnamaður héðan
af, og hér mun ég síðast nema land, ef Guð vill, í
jurtagarði Herrans.
Að svo mœltu kveðar Litli-Bergþór séra Guðmund
Ola með kœru þakklœti fyrir ánægjulegar spjallstundir á
liðnu vori og óskar honum alls velfarnaðar á komandi
árum í byggingarstússi sem öðrum áhugamálum. Það er
Ijóst, að hann þaifekki að kvíða aðgerðarleysi á efri
árum.
GS
Bragi Andrésson á Emma.
Litli - Bergþór 26