Litli Bergþór - 01.04.1999, Side 15

Litli Bergþór - 01.04.1999, Side 15
Guðjón R. Guðjónsson sá um ýmis verk áflestum stigum byggingarinnar. Einn er sá maður ótalinn sem hefur unnið að verkinu frá byrjun. Loftur Jónasson hefur verið eftirlitsmaður okkar gagnvart verktökum og einig unnið fjölmörg verk önnur. Ekki hefur staðið á því að leysa úr þeim fjölmörgu vandamálum sem upp koma við framkvœmdir sem þessar. Vil ég þakka honum sérstaklega fyrir hans hlut í verkinu. Húsið er hannað á teiknisstofunni Arkitektar Hjördís og Dennis, afþeim Hjördísi Sigurgísladóttur og Dennis Jóhannssyni, og hafa þau lagt mikla alúð í verkið. Síðustu vikur byggingar tímans þegar þurft hefur að hnýta marga lausa enda og mikið hefur gengið á hefur Sveinn A. Sœland verið starfsmaður nefndarinnar og hefur hann létt miklu álagi aföðrum nefndarmönnum. Keyptur hefur verið ríkulegur búnaður í húsið til að það megi nýtast eins og efni standa til. Þar hafa sveitungar og aðrir velunnarar svo sannarlega stutt vel við bakið á okkur með fjárframlögum. Safnast hafa rúmlega 2 milljónir krónafrá einstaklingum, félagasamtökum ogfyrirtœkjum. Vil ég þakka öllum sem hafa lagt okkur lið með þessum hœtti kœrlegafyrir. Kostnaður við framkvœmdirnar er í dag kominn í um 63 miljónir kr. og er það mjög nálœgt því sem við gerðum ráðfyrir í upphafi. Verkinu er í öllum aðalatriðum lokið, þannig að ekki verður um mikinn viðbótarkostnað að rœða. Framlag úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga erl8 milljónir króna. Mikill fjöldi manna hefur komið að þessum framkvœmdum með beinum eða óbeinum hœtti. Ekki verða þeir allir nefndir á nafn en þeim fœrðar þakkir fyrir. Eg vilfyrir hönd byggingarnefndar þakka verktökum og starfsmönnum þeirra, iðnaðarmönnum, arkitektum, hönnuðum, forráðamönnum Límtrés og öllum þeim sem hjálpuðu okkur að láta drauminn rœtast, fyrir þeirra þátt í verkinu. Ég hefnú staðið íþessu á níunda ár,fyrst í undirbúningsnefnd og síðan í byggingarnefnd. Ég vil þakka bœðifyrn’erandi og núverandi nefndarmönnum fyrir ánœgjulegt samstaif. Nú eru liðnir u.þ.b. 13 mánuðir síðan framkvœmdir hófust og á stundum gengu hlutirnir hrattfyrir sig, enda eins gott því að margir hafa beðið í ofvœni eftir þeirri stund að húsið verði tekið í notkun. Nú er komið að því Barnakór Biskupstungna söng. og þá er bara aðfara að nota það. Ég veit að það þarf ekki að biýna krakkana, það sést bara á þeim þau brenna í skinninu eftir aðfara að stunda þœr íþróttir sem aðstaða sem þessi gerir kleift. En þó þetta séfyrst og fremst byggt sem skólamannvirki er það byggt aföllum Tungnamönnum fyrir alla Tungnamenn. Þess vegna vil ég ekki síst hvetja þá eldri sem komnir eru upp úr skólum til að nýta sér þessa aðstöðu. Að lokum vil ég óska þess að þetta íþróttahús ásamt þeim búnaði sem í því er verði til heilsubótar og heilla fyrir Tungnamenn um ókomna tíð. r T>ótel iÍGEYSm Sími 486 8915 fax 486 8715 Söluskálinn við Geysi Sími 486 8935 Smáréttir minjagripir Bensín og olíuvörur Tjaldstæði - hjólhýsasvæði Bláfellsbar Góðar veitingar gisting, svefnpokapláss Bergþórsbar, ný bjórstofa. Ný glæsileg sundaðstaða. Hestaleiga á staðnum. Qóð pjónusta Litli - Bergþór 15

x

Litli Bergþór

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.