Litli Bergþór - 01.12.1999, Page 7
Hreppsnefndarfréttir
Skipulag hálendissvæðis verður unnið um leið og
skipulag láglendis. A hálendinu liggur fyrir
svæðisskipulag um grófa landnotkun. Borgarafundur
verður haldinn í nóvember n.k. Þar verður vinna við
framtíðarskipulag sveitarfélagsins kynnt og óskað eftir
hugmyndum íbúa Biskupstungnahrepps. I lok fundar
var undirritaður samningur um 2. og 3. áfanga
aðalskipulags fyrir Biskupstungnahrepp 1999-2011.
Lögð fram tillaga um þriggja manna nefnd sem
ynni áfram að framgangi framkvæmda við Svartárbotna.
Samþykkt að eftirfarandi skipi nefndina: Margeir
Ingólfsson formaður, Þorfinnur Þórarinsson, Loftur
Jónasson.
Lagt fram erindi frá Sigurði G. Asgeirssyni um að
garðyrkjustöðin Furubrún verði lögbýli. Samþykkt.
Hreppsráðsfundur 5. október 1999.
Skipan nefndar til að endurskoða tekjustofna
sveitarfélaga. Félagsmálaráðherra hefur skipað nefndina.
Formaður nefndarinnar er Jón Kristjánsson
alþingismaður. Formanni hreppsráðs og sveitarstjóra
falið að koma með athugasemdir og tillögur til
nefndarinnar.
Tillaga um opnunartíma skrifstofu
Biskupstungnahrepps, veturinn 1999-2000. Lagt er til að
skrifstofan verði opin mánudaga-fimmtudaga frá klukkan
9:00 - 16:00 en lokað á föstudögum. Hreppsráð
samþykkir tillöguna.
Tilboð í uppþvottavél og innréttingar í eldhús
félagsheimilisins Aratungu. Tilboðið hljóðar upp á
krónur 626.691 en auk þess er annar kostnaður og
uppsetning krónur 300.000.- Hreppsráð leggur til að
tilboðið verði samþykkt. Framkvæmdin er utan ramma
fjárhagsáætlunar en gert var ráð fyrir krónum 900.000 í
endurbætur í Aratungu og hefur þegar verið framkvæmt
fyrir það fé, í viðhaldi á hitakerfi hússins.
Lögð fram til kynningar bréf sem farið var með til
fjárlaganefndar Alþingis, 27. september s.l. Þar komu
fulltrúar Biskupstungnahrepps á framfæri þeim
skoðunum sínum að það væri ríkisvaldsins að greiða
allan kostnað sem fellur á sveitarfélög og einstaklinga
vegna málareksturs Óbyggðanefndar. Einnig var farið
fram á fjárframlag til að ljúka rannsóknum á
Geysissvæðinu og uppbyggingu Geysisstofu.
Bréf Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytis um
sameiningu heilsugæslustöðva og heilbrigðisstofnanna á
Suðurlandi. Sveitarstjóra falið að afla frekari gagna um
málið fyrir næsta fund hreppsnefndar.
Kynntir tveir styrkir frá Samgönguráðuneyti
vegna markaðssetningar „Bjartra daga“ árið 2000, krónur
100.000.- og skráning og útgáfa Þjóðfræði kirkjustaða í
Uppsveitum Arnessýslu að upphæð krónur 200.000,-.
Bréf frá sveitarstjóra Grímsnes- og
Grafningshrepps um endurskoðun á niðurgreiðslu
leikskólagjalda fyrir börn á aldrinum eins til tveggja ára.
Hafnað á þeim forsendum að Biskupstungnahreppur
bjóði ekki bömum yngri en tveggja ára leikskóladvöl hjá
sveitarfélaginu.
Tvö bréf frá Byggðastofnun, um ráðningu
menningarráðgjafa sem er staðsettur á Sauðárkróki og
stofnun umræðuhóps framkvæmdastjóra sveitarfélaga um
svokallaða „byggðabrú“ eða fjarfundarbúnað sem finna
má í hverjum landshluta.
Vinnubrögð við gerð fjárhagsáátlunar fyrir árið
2000. Fyrri umræða verði á nóvember fundi
hreppsnefndar og þar verði ákvarðað um álagningu
gjalda vegna næsta árs. Síðari umræða fjárhagsáátlunar
verði í janúar árið 2000.
Hreppsnefndarfundur 12. október 1999.
Skipulagsmál, undirbúningur að borgarafundi í
nóvember. Hverjar eru helstu áherslur sveitarstjómar
Biskupstungna? Almennar umræður urðu um
skipulagsmál og áhersla lögð á að rætt yrði við sem flesta
jarðeigendur og ábúendur sem stefna að breytingum á
jörðum sínum áður en fundurinn er haldinn.
Samgöngumál. Steingrímur Ingvarsson,
umdæmisstjóri Vegagerðarinnar kynnti framtíðaráform í
vegamálum uppsveita Ámessýslu til ársins 2004, og
svaraði fyrirspumum um vegamál almennt. Steingrímur
sagði að Biskupstungnabraut yrði öll byggð upp árið
2000 og bundið slitlag árið 2001. Einnig á að ganga frá
veginum frá Geysi að Gullfossi 2001-2002 jafnframt
verður brú yfir Laugá tvöfölduð. Árið 2003 verður hafist
handa við veglagningu að Hvítárbrú og brúarsmíði lokið
fyrir árið 2006. Nýlokið er við uppbyggingu á 15 km
kafla á Kjalvegi. Settar voru 10 milljónir í bílastæði og
aðgengi að Skálholti af fjárveitingu vegna
ferðamannaleiða á Suðurlandi.
Upplýsingar um áform heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytis í sameiningu heilsugæslu og
heilbrigðisstofnanna á Suðurlandi.
Hreppsnefnd Biskupstungnahrepps leggst gegn öllum
hugmyndum sem skerða heilbrigðisþjónustu í
uppsveitum Ámessýslu. Einnig er öllum hugmyndum,
sem færa ákvarðanatöku í málefnum Heilsugæslunnar í
Laugarási burt af svæðinu tekið með fyrirvara. Það er
augljóst að uppsveitir Ámessýslu eru vaxandi svæði er
varðar íbúafjölda, auk þess sem að á annan tug þúsunda
sumarhúsagesta dvelja á svæðinu stóran hluta ársins.
Öllum tillögum sem geta leitt til bættrar þjónustu við
íbúana er vel tekið og er það von hreppsnefndar að það
sé jafnframt vilji heilbrigðisráðherra.
Bréf sveitarfélaga sem stefna að sameiningu við
Árborg og víðar ef áhugi reynist fyrir hendi. Vegna
þessa bréfs vill hreppsnefnd Biskupstunga leggja fram
eftirfarandi bókun: Hreppsnefnd ítrekar fyrri afstöðu
sína um vilja til þess að til sameiningar uppsveita
Arnessýslu komi í lok þessa kjörtímabils. Þar sem ekki
virðist vilji til að sameina öll sveitarfélögin í
uppsveitunum þá verði látið reyna á vilja
sveitarfélaganna vestan Hvítár til að sameinast þ.e.
Grímsnes- og Grafningshrepps, Laugardalshrepps,
Þingvallahrepps og Biskupstungahrepps. Enda var
stefnumótun vegna þeirrar sameiningar ákveðin á
Litli - Bergþór 7