Litli Bergþór - 01.03.2004, Blaðsíða 4
Formannspistill
Ágæti lesandi.
Það var nú á haustdögum, sem við heyrðum fréttir af slysi
sem orðið hafði í sundlaug í Breiðholti, þar sem drengur
fannst meðvitundarlaus á sundlaugarbotni. Strax var ljóst að
um alvarlegt tilfelli var að ræða. Já, það er einmitt alltof oft
sem við heyrum í féttatímum fjölmiðlanna um óhöpp og slys
sem snerta okkur öll en þó eðlilega mest þá sem næstir
standa þeim slasaða. Það fréttist fljótt að þessi ungi drengur
ætti ættir að rekja hingað í Tungurnar og var búinn að eiga
heima hér og vera í Reykholtsskóla. Ég er ekki að rekja þann
erfiða óvissutíma sem í hönd fór um það hvort drengurinn
kæmi heill frá þessu en af fréttum mátti draga þá ályktun að
þar hafi skipt sköpum frábært starfsfólk heilbrigðisstéttar-
innar sem björguðu drengnum með sinni faglegu þekkingu.
Drengurinn, Þengill Otri Óskarsson frá Helgastöðum, var
heppinn að komast heill frá þessu slysi og hefur gott líkam-
legt ástand ef til vill skipt miklu máli. Við í stjóm
Ungmennafélagsins ræddum um þetta á fundi hjá okkur og
ákváðum að senda honum lítilræði, hvatningu og hlýjar
kveðjur með óskum um góðann bata fyrir hönd félagsins. Já
hversu oft erum við ekki á það minnt að það er ekkert
sjálfgefið í lífinu, hvorki heilsa né hamingja og spurning um
það hvort sporin sem við tökum séu til gæfu gengin. Ég held
að okkur sé hollt í önn dagsins að horfa til þess og þakka
hvern góðan dag sem skilar okkur hverju og einu sáttu fram
á veginn.
Hinn 28. feb. síðastliðinn var haldið 82. héraðsþing
H.S.K. í hinu glæsilega íþróttahúsi í Þykkvabæ. Fórum við
tvö frá félaginu, ég ásamt gjaldkera Ungmennafélagsins
Dagnýju Grétarsdóttur. Þingið var með hefðbundnum hætti
og var ágætlega sótt. Það kom fram í skýrslu gjaldkera sam-
bandsins að fjárhagsstaða er góð og er það alltaf góðs viti
þegar þannig tekst til í rekstri. Meðal stórviðburða í sumar
eru landsmót hestamanna sem haldið verður á Gaddstað-
aflötum við Hellu og fengu þinggestir nokkra kynningu á
þeim framkvæmdum sem þar er búið að gera og ýmsu öðru
sem að þessu stórmóti lýtur. Hinn stórviðburðurinn er
landsmót Umf. Islands sem haldið verður á Sauðárkróki
dagana 8,- 11. júlí og hafa þar einnig staðið yfir miklar
framkvæmdir við undirbúning þannig að standa megi sem
best að öllu. Vafalítið verður þar margt glæstra ungmenna
sem leggja sig fram um að ná góðum árangri. Hvet ég sem
flesta til þess að fara á landsmótin og taka þátt í þeim.
Eitt er það sem veldur umræðu og deilum í öllum félögum
og er Héraðssambandið engin undantekning frá því, en það
er sá þáttur sem lýtur að því að deila tekjum til félaganna. í
þessu sambandi er ég að tala um lottótekjur. Fram kom til-
laga um verulegar breytingar á úthlutun teknanna. Hefði
þessi tillaga verið samþykkt óbreytt hefði það þýtt að sum
félög hefðu trúlega misst alveg sínar tekjur og önnur borið
verulega skertan hluta af sínum tekjum. Tillögunni var vísað
frá og verður því útdeiling lottótekna óbreytt um sinn. Tvö
ný félög voru tekin inn og samþykkt í sambandið þ. e.
Golfklúbbur Þverár og Hnefaleikafélag Suðurlands. Fjölda
íþróttamanna voru veitt verðlaun fyrir sín afrek og einnig
íþróttamanni ársins sem var öðru sinni valin Vigdís Guðjóns-
dóttir frá Húsatóftum, kröftug og dugleg íþróttakona.
Af fréttum úr félaginu má nefna að síðbúinn aðalfundur
var haldinn í desember og varð breyting í stjórn. I stað
Ásborgar Amþórsdóttur kom inn nýr gjaldkeri, Dagný
Grétarsdóttir, og er hún boðin velkomin til starfa. Ásborgu
eru þökkuð góð störf og samstarf fyrir hönd félagsins. Nú
styttist í aðalfundi deilda Ungmennafélagsins og hvet ég fólk
til að mæta og taka þátt í starfinu. Að lokum, vil ég þakka
Leikdeild sérstaklega fyrir uppfærslu á leikritinu „Góðverkin
kalla“ og það mikla vinnuframlag sem liggur á bak við það
að koma heilli leiksýningu á fjalirnar. Einnig þeirri skemmti-
legu umgjörð sem er í kringum sýningarnar um helgar með
því að bjóða upp á mat á undan sýningu. Sem sagt krydd í
mannlífið frá Leikdeildinni.
Með kveðju,
Guttormur Bjarnason.
Kosningar á aðalfundi Umf. Bisk. 2003
Stjórn:
Guttormur Bjamason form.
Sveinn Kristinsson ritari
Dagný Grétarsdóttir gjaldkeri.
Varamenn: Jórunn Svavarsdóttir
og Ásborg Arnþórsdóttir.
Útgáfunefnd:
Arnór karlsson formaður
Geirþrúður Sighvatsdóttir
Pétur Skarphéðinsson
Margrét Annie Guðbergsdóttir
Sigurður Guðmundsson
Fulltrúi í rekstrarnefnd:
Guttormur Bjarnason.
Varamaður: Dagný Grétarsdóttir.
Endurskoðandi:
Gylfi Haraldsson.
Varamaður: Arnór Karlsson.
íþróttavaliarnefnd:
Helgi Guðmundsson
Þórarinn Þorfinnsson
Rúnar Bjamason.
Skógræktardeild:
Sigurjón Sæland formaður
Eríkur Georgsson ritari
Jens Pétur Jóhannsson gjaldk.
Hólmfríður Geirsdóttir.
Fulltrúi í þjóðhátíðarnefnd:
Skipaður af stjórn.
Skennntinefnd unglinga:
Harpa Gunnarsdóttir
Alexandra Guttormsdóttir
Rúnar Björn Guðmundsson
Smári Þorsteinsson
Oddur Bjarni Bjarnason
Atli Þór Svavarsson Frafarandi og viðtakandi gjaldkeri Umf Bisk.
Litli Bergþór 4