Litli Bergþór - 01.03.2004, Page 15
Söngtextar frá þorrablóti
Höfundur: Margrét Baldursdóttir
Ástarjátning oddvitans Bvggingasaea úr Kistuholtinu.
Lag: Þú eina hjartans yndið mitt. Lag: Hæ dúllía ...
Lokasöngur
Lag: Herleg brúðkaupsveislan var.
Einu sinni í einni sæng
þú undir með mér glöðum.
Og undir mínum verndarvæng
var Drífa á Torfastöðum.
í kosningum svo kepptum við
þá hvort í sínurn röðum,
í dag þó enn ég dái þig,
ó, Drífa á Torfastöðum
Ég sigraði og sit nú hér
í sigurvímu baða,
í huga dátt þó daðra ég
við Drífu Torfastaða,
Með tárvot augu og tilþrif nóg
þér tjáði ástareldinn,
ég ánægður verð aldrei þó
án þín Drífa á kveldin.
M.B.
Af hverju er ég ekki oddviti?
Lag:... að ég enn skuli ógefin vera.
Ég er kurteisasti kall
kátur mjög og afar snjall.
Allt sem þessi garmur getur
geri ég sjálfur miklu betur.
Ekkert skil ég því, þeim ósköpum í
að ég ei skuli oddviti vera.
Og er Svenni fór í frí
fékk ég mikið út úr því,
á kontornum ég kátur var
og kunni á alla stóla þar.
Ekkert skil ég því, þeim ósköpum í
að ég ei skuli oddviti vera.
Ég hef skorið af mitt skott,
ég er skollans ári flott
alltaf frjálslega til fara
í fínum töfflum sjáðu bara.
Ekkert skil ég því, þeim ósköpum í
að ég ei skuli oddviti vera.
M.B.
Nú byggingar rniklar í Bláskógum rísa
og býsnin af fólki þær eiga að hýsa.
Svo nú getur fjölgað hér fólki að vild
mér finnst þetta allt vera hreinasta snilld.
Hreinasta, hreinasta, hreinasta snilld_.
Hann Gunnar um þökin á Guðs vegum gekk
en gáði ekki að sér svo biltu hann fékk.
Því Guð leiddi hann upp, - og hans göfugu sál
en gangan til baka var allt annað mál.
Og píparagreyin oft pældu í því
er pípumar lögðu þeir veggina í
og smiðirnir jafnharðan hengdu upp þil,
hvort innan í veggjunum yrðu þeir til.
í iðnskólum læra menn ýmislegt fag
á öllu svo næstum því hafa þeir lag.
En Kistuholtssmiðanna kunnátta er slök,
þeir kunna ekki alveg á tuskunni tök.
Þó hefst þetta allt saman endanum á
og allir sem vilja, hér verelsi fá.
Og fólkið nú flytur hér þversum og krus
en hvar á hver heima og hvað er nú hvurs?
M.B.
Þjóðlegt þorrablótið bjó
Brœðratungusókuin þó,
ýmsir ekkert hœ og hó
héldu að yrði gaman.
Þegar viltu gera grín
gakktu bara inn til mín.
Skemmtun af því skapast fín,
við sköpum hana saman.
Þjóðlegt þorrablótið bjó...
Tökum nú við trogið til
tæmum svona hér um bil,
guðaveigum gerum skil
og glettumst eitthvað saman.
Þjóðlegt þorrablótið bjó...
Þökkum þeim sem þakka ber
þökkum ykkur öllum hér,
borðhalds til er buðum vér,
svo brosleit öll í framan.
Þjóðlegt þorrablótið bjó...
(tvítekið)
M.B.
Raflagnir - Viðgerðir
Tek að mér nýlagnir, hönnun raflagna og alla
almenna rafvirkjavinnu ásamt tækjaviðgerðum.
Efnissala og varahlutaþjónusta.
Fljót og góð vinna.
Sumarbústaðaeigendur athugið að ég sæki
um öll leyfi fyrir heimtaug að
sumarhúsum og lagningu raflagna.
Jens Pétur Jóhannsson
LÖGGILTUR RAFVERKTAKI
HEIMASIMI 486 8845
Verkstæði sími 486 8984
GSM 893 7101
Litli Bergþór 15