Litli Bergþór - 01.03.2004, Page 23
Samband íslenskra sveitarfélaga að það beiti sér fyrir því
að sveitarfélög hætti þátttöku í þessum málaflokki þar til
ríkisvaldið hafi staðfest að það greiði a.m.k. sín 50%, en
eðlilegast væri að þessi málaflokkur væri alfarið á hendi
ríkisins.
Gatnagerðargjaldskrá vegna Háholts, Laugarvatni. í
ljósi þess að húsbyggendur við Háholt hafa orðið fyrir
töluverðum ófyrirséðum kostnaði vegna þess hversu
blautt byggingarlandið er þá leggur byggðaráð til að
gefm verði 15% afsláttur af gatnagerðargjaldskrá
Bláskógabyggðar af lóðum við Háholt.
Sveitarstjóri hefur náð samningum um tryggingar
fyrir sveitarfélagið við VIS, Vátryggingarfélag Islands,
um 20% lækkun á vátryggingum sveitarfélagsins.
Byggðaráð leggur til að samningurinn verði staðfestur.
Byggðaráð leggur til að mótuð verði sameiginleg
vímuvamaráætlun fyrir uppsveitir Arnessýslu og verði
félagsmálanefnd falið að vinna að þessu máli og koma
með tillögur um framkvæmd og umfang áætlunarinnar.
Lagt er til að oddviti taki málið upp í oddvitanefnd
uppsveitanna.
Bréf frá Vegagerðinni dags. 8.des. 2003 varðandi
vegtengingar. Rétt er að vekja athygli á að skv. 30 gr.
vegalaga nr. 45/1994 er óheimilt að tengja vegi og götur
þjóðvegum nema í samræmi við skipulag og að fenginni
heimild Vegagerðarinnar.
24. fundur sveitarstjórnar 13. janúar 2004
Mætt voru allir sveitarstjómarmenn.auk Ragnars S.
Ragnarssonar, sem ritðai fundargerð.
Gestir á fundinum voru: Pétur H. Jónsson, Oddur
Hermannsson, Haraldur Sigurðsson, Ragnar Jónsson,
Halldór Kristjánsson, Sigurður Oddsson og Arinbjöm
Vilhjálmsson. Kynningarfundur á gerð aðalskipulags fyrir
Þingvallasveit 2004 - 2016. Skipulagsfræðingar sveitar-
félagsins Pétur H. Jónsson, Oddur Hermannsson og
Haraldur Sigurðsson kynntu gagnaskýrslu drög 2 sem
liggja fyrir. Undirbúningshópur að gerð aðalskipulagsins
var einnig boðaður en í honum sitja Halldór Kristjánsson,
Ragnar Jónssson fv. oddviti Þingvallasveitar, Sigurlaug
Angantýsdóttur sem jafnframt situr í sveitarstjóm auk
Sigurðar Oddssonar framkvæmdastjóra Þingvallanefndar
og Arinbjamar Vilhjálmssonar skipulagsfulltrúa uppsveita
Árnessýslu.
Skipulagsfræðingarnir fóru yfir drög að tillögum sem
munu verða kynntar íbúum fljótlega. Farið var yfir málið
á fundinum í eftirfarandi röð:
a) Staða verkefnisins - gagnaskýrsla og þemakort.
b) Hugmyndir að megin markmiðum.
c) Afmörkun landnotkunar - hugmyndir og óskir.
d) Stefnumörkun í helstu málaflokkum - hugmyndir:
• Landbúnaðarsvæði
• Svæði fyrir frístundabyggð
• Skilgreining vemdarsvæða
• Samgöngur - Gjábakkavegur
Utdráttur úr tillögunum (drögunum) eru eftirfarandi
hugmyndir:
Meginmarkmið:
Vernda náttúrulega ásýnd svæðisins.
Vernda ríkjandi gróðurfar (frá náttúmnnar hendi).
Vemda jarðmyndanir - einstæðar jarðsögulegar
myndanir.
Vemda lífríki Þingvallavatns.
Viðhalda tærleika vatnsins.
Vemda vatnsauðlindir - vemdun vatnasviðs.
Vemdun annarra vistkerfa á svæðinu.
Vemda menningarminjar - halda sögunni á lofti.
Auka útivistargildi svæðisins - auka aðgengi
almennings.
Skapa skilyrði til að taka á móti auknum
ferðamannastraumi.
Tryggja áframhaldandi hefðbundna búsetu.
Draga úr áhrifum sumarhúsabyggðar á
umhverfið - aðlögun.
Að tryggja góðar samgöngur.
Samræmi í stefnumörkun sveitarstjórnar, Þingvalla-
nefndar og rfkisvaldsins.
I umræðum um aðalskipulagið var sérstaklega fjallað
um Gjábakkaveg, legu hans og aðkomu að Þjóðgarðinum
svo og uppbyggingu frístundahúsa. Farið var inná vatns-
vernd, rétt landeiganda til að fá að skipuleggja einkalönd
og fleira.
Stefnt er að því að halda opinn fund um skipulagsmál í
Þingvallasveit þar sem tillögur skipulagsfræðinganna
verða kynntar.
28. fundur byggðaráðs 20. janúar 2004
Mættir voru bggðaráðsmenn auk Ragnars S.
Ragnarssonar, sem ritaði fundargerð.
Landskiptagjörð fyrir jarðirnar LJthlfð I og LJthlið II
Biskupstungum. Byggðaráð leggur til að landskipta-
gjörðin verð staðfest af sveitarstjórn.
Bréf frá Atvinnuþróunarsjóði Suðurlands dags. 29.
desember 2003 þar sem fram koma upplýsingar um fram-
lög sveitarfélaga á Suðurlandi til Atvinnuþróunarsjóðsins
á árinu 2004, en samkvæmt því er hlutur Bláskóga-
byggðarkr. 1.638.982.
Bréf frá Lánasjóði sveitarfélaga dags. 7. janúar 2004
þar sem fjallað er um lánsumsóknir 2004, en umsókna-
frestur er til 31. janúar 2004. Sveitarstjóra er falið að
sækja um lán að upphæð kr. 25.000.000 vegna skuld-
breytinga þ.e. að breyta skammtímaláni í langtímalán hjá
sveitarsjóði. Einnig samþykkt ábyrgð vegna skuldbreyt-
inga hjá Hitaveitu Laugarvatns að fjárhæð kr. 18.000.000.
25. fundur sveitarstjórnar 27. janúar 2004
Mættir voru allir sveitarstjómarmenn auk Ragnars Sæs
Ragnarssonar sveitarstjóra, sem ritaði fundargerð.
Upplýsingar frá Hagstofu um breytt lögheimili
sveitarstjómarmanns, Bjama Þorkelssonar, sem hefur
flutt úr sveitarfélaginu. Afhent kjörbréf fyrir 1. varamann
Margréti Baldursdóttur sem aðalmanns í sveitarstjóm
Bláskógabyggðar. Oddviti bauð Margréti velkomna til
starfa.
Fjárhagsáætlun Bláskógabyggðar 2004, síðari
umræða. Bókun vegna fjárhagsáætlunar: Heildartekjur
samstæðu Bláskógabyggðar þ.e. sveitarsjóðs og félaga á
vegum sveitarfélagsins eru áætlaðar kr. 426.566.000.
Rekstrargjöld ásamt afskriftum eru kr. 383.437.000. Til
afborgunar langtímaskulda fara kr. 32.123.000. Gert er
ráð fyrir að fjárfestingar verði kr. 6.100.000, auk kr.
11.026.000, til framkvæmda á vegum eignasjóðs. Þá er
gert ráð fyrir enduríjármögnun óhagstæðra og styttri lána
að fjárhæð kr. 43.000.000. Heildarskuldir sveitarfélagsins
eru kr. 370.000, á íbúa og hafa lækkað um tæplega kr.
100.000, á tveimur árum eða 21%. Fjárhagsáætlunin ber
með sér aðhald sem ætlunin er að sýna í rekstri á árinu
2004. Helstu áhersluatriði við gerð fjárhagsáætlunar er
öflugt skólastarf. Til þess málaflokks er varið kr.
196.011.000, en sveitarfélagið er með nemendur í
tveimur grunnskólum, Ljósafossskóla, og Grunnskóla
Bláskógabyggðar. Þá rekur sveitarfélagið Leikskólann
Álfaborg, Reykholti og Leikskólann Lind á Laugarvatni.
í drögum að greinargerð sem fylgir fjárhagsáætlun eru
tíunduð helstu markmið sveitarstjórnar og skýringar á
fjárhagsáætlun. Fjárhagsáætlunin gerir ráð fyrir aukinni
ábyrgð á stjómendur sveitarfélagsins við forgangsröðun
fjármuna sem þeim er úthlutað. Sveitarstjóm þakkar
byggðaráði og sveitarstjóra fyrir ítarlega vinnu sem unnin
Litli Bergþór 23