Litli Bergþór - 01.06.2005, Blaðsíða 8
slitnað hafði. En þeir fundu hvergi reiðann af klyf-
söðlinum. Þeir þreifuðu um fenið og lýstu með
eldspýtum ef einhversstaðar skyldi standa sproti
uppúr drullunni, en allt kom fyrir ekki, svo þeir
máttu halda áfram reiðalausir. En þegar þeir fóru að
spretta af inn við kofa þá kom í ljós að klyfsöðullinn
snéri öfugt og reiðinn var fammi í faxi á hestinum.
I annnað skipti við svipaðar aðstæður týndist hetta
ofanaf prímuhaus. Prímusinn var ofaní milli á klyf-
söðli og bundinn við bogann og laus hetta ofaná
prímushausnum. Þeir reyndu að búa til hettu úr
tóbaksdós, þá var neftóbakið í pjátursdósum. Þeir
stungu dósina út í götum og settu hana yfir prímus-
hausinn, en hann reykti mikið með þessum búnaði.
Þeir voru með tvo hvíta hunda, „Við þekktum þá
ekki um morguninn, þeir voru svarbláir“ sagði Ingi.
Einu sinni tók Ingi að halda því fram að það fylgdi
sér alltaf hrafn þegar hann væri einn að leita, því
hann væri búinn að eigna sér ístruna og ætlaði sér
að komast í hana ef Ingi yrði úti á fjöllunum. Aldrei
sáum við nú þennan hrafn hans hinir leitarmennirnir.
„Hann vill ekki þessa horuðu djöfla“ sagði Ingi.
Þangað til einu sinni að við Loftur vorum að koma
Inn við greni 1. júní 2005.
vestan með Hrútfelli, það var aðeins að byrja að
rökkva. Þá var hrafn að flögra gargandi þar uppí
skriðu framaní fjallinu. Þá datt upp úr mér:
Hrafninn flýgur um aftaninn
haldinn sulti og þreytu.
Ekki fær hann enn um sinn
ýstruna stóru og feitu.
Það var einhver smá gleðistund um kvöldið og þá
fórum við að segja hinum frá þessum atburði undir
Hrútfelli. Gísli í Kjamholtum vildi allt syngja og
lagaði þetta strax að laginu „Sofðu unga ástin mín“:
Hrafninn flýgur um aftaninn,
haldinn sulti og þreytu.
Ekki fær hann enn um sinn
- ekki fær hann enn um sinn
ýstruna stóru - ýstruna stóru og feitu.
Einar Páll leitaði Fögruhlíð einu sinni sem oftar, en
atvikin höguðu því svo að hann fór hringinn öfugt
við það sem við vorum vanir.
Hann var að segja okkur frá því um kvöldið að þó
fjallið Fagrahlíð bæri með sóma réttnefnið þá fannst
honum hann koma öfugt að henni. Eg hagræddi
umsögn hans örlítið svo hún varð á þessa leið:
Fögruhlíð var fegurst á
fjalli blómaríku.
Á hana fór ég aftanfrá
aldrei vanur slíku.
Inni í Svartárbotnum var náttstaður eftirsafnsmanna
á meðan trússin vom flutt á hestum. Það þótti
hlýlegur tjaldstaður og var kallað Inn við Gren.
Það var gaman að fara að gista þar aftur:
Gefur að líta græna tó,
grátt er hraunið bera.
Inn hjá greni enn er þó
yndislegt að vera.
Einhvem tímann hef ég skrifað þar í gestabókina.
Gyllir sólin gróðurlönd
gott er hér að una.
Blærinn strýkur blíðri hönd
bætir geðheilsuna.
Nú að ljúka meir en mál
er mínu gríni.
Klingja glösum, kneifa skál
í klára víni.
J. K.
Raflagnir - Viðgerðir
Tek að mér nýlagnir, hönnun raflagna og alla
almenna rafvirkjavinnu ásamt tækjaviðgerðum.
Efnissala og varahlutaþjónusta.
Fljót og góð vinna.
Sumarbústaðaeigendur athugið að ég sæki
um öll leyfi fyrir heimtaug að
sumarhúsum og lagningu raflagna.
Jens Pétur Jóhannsson
LÖGGILTUR RAFVERKTAKI
HEIMASIMI 486 8845
Verkstæði sími 486 8984
GSM 893 7101
Litli Bergþór 8