Litli Bergþór - 01.06.2005, Side 23
fað eftir. Sveitarstjóm Bláskógabyggðar lýsir verulegum
áhyggjum vegna niðurstöðu dómsins og undrast að ekki
skuli tekið tillit til annarra laga s.s. bygginga- og skipu-
lagslaga í niðurstöðu hans. Fyrirséð er að verulega erfitt
verður að bjóða upp á lögbundna þjónustu við íbúa á mör-
gum frístundasvæðum og þá sérstaklega að vetrarlagi.
Frístundahúsin eru dreifð um allt sveitarfélagið og aðgengi
að þeim er í mörgum dlfellum erfitt. Einnig ber að virða
rétt þeirra íjölmörgu sem hafa reist sér frístundahús á skip-
ulögðum frístundasvæðum og hafa réttmætar væntingar til
þess að þar yrði til framtíðar sumarhúsabyggð með
takmarkaðri búsetu en ekki heilsársbúseta margra manna.
Sveitarstjóm Bláskógabyggðar vill ítreka áskorum sína frá
16. nóvember 2004, en þar skoraði hún á
félagsmálaráðherra „að beita sér fyrir því að lög nr.
21/1990 um lögheimili verði endurskoðuð með það í huga
að á skipulögðum frístundasvæðum verði ekki heimil
lögheimilisskráning.“ Þessa breytingu verður að gera nú
þegar, þ.e. nú á vorþinginu 2005.
Skólamál. Beiðni frá sveitarstjóm Grímsnes- og
Grafningshrepps frá 8. apríl 2005 um samstarf í
skólamálum. Sveitarstjóm Bláskógabyggðar fagnar auknu
samstarfi og samvinnu í skólamálum en ljóst er að það
mun auka námsleg gæði og koma öllum nemendum til
góða. Samstarfið mun auka möguleika á ráðningu starfs-
manna sem hafa meiri sérþekkingu og draga úr áhrifum
þess að kennarar og annað starfsfólk skólanna einangrist.
Sveitarstjóm samþykkir að ganga til samninga við
Grímsnes- og Grafningshrepp á gmndvelli erindisins.
Samþykkt með 5 atkvæðum en Drífa og Kjartan sátu hjá
við atkvæðagreiðsluna. Kjartan gerði grein fyrir atkvæði
sínu á eftirfarandi hátt: „Eg sit hjá þar sem ég tel að búið
sé að ganga frá þessu máli.“
Breyting á samþykktum Bláskógabyggðar, fyrri
umræða.
Tillaga að breytingu á samþykktum sveitarfélagsins um
skipan fræðslunefndar í kjölfar samvinnu við Grímsnes -
og Grafningshrepp, fyrri umræða.
Var: Fræðslunefnd: Þrír aðalmenn og þrír til vara.
Fræðslunefnd fer með málefni gmnnskóla skv. 13. gr. laga
nr. 66/1995 um gmnnskóla og leikskóla skv. 9. gr. laga um
leikskóla nr. 78/1994.
Verður: Fræðslunefnd: Þrír aðalmenn og þrír til vara.
Tveir kjömir af Bláskógabyggð og einn af Grímsnes - og
Grafningshreppi. Fræðslunefnd fer með málefni
gmnnskóla skv. 13. gr. laga nr. 66/1995 um gmnnskóla og
leikskóla skv. 9. gr. laga um leikskóla nr. 78/1994.
T-listinn lagði fram eftirfarandi breytingartillögu:
Samþykkt verði að fimm fulltrúar verði kosnir í sameigin-
legra fræðslunefnd sveitarfélaganna Bláskógabyggðar og
Grímsnes- og Grafningshrepps.
Samþykkt að vísa tillögunum til síðari umræðu á næsta
fundi sveitarstjómar.
Úthlutun lóða í Bláskógabyggð.
Oddviti lagði fram minnisblað um lóðaúthlutanir á yfir-
standandi kjörtímabili.
Fram kom að úthlutað hefur verið 16 einbýlishúsalóðum,
11 parhúsalóðum, 3 raðhúsalóðum, 1 iðnaðarlóð, 4
garðyrkjulóðum og 2 hesthúsalóðum.
Fyrir Uggja umsóknir um 15 einbýlishúsalóðir og 2
iðnaðarlóðir á svæðum sem ekki til fullbúið skipulag af.
Einnig hafa borist nokkrar fyrirspumir um einbýlishúsa- og
atvinnulóðir ásamt svæði undir þjónustubyggð.
42. fundur sveitarstjórnar 10. maí 2005.
Mættir vom allir aðalmenn nema Snæbjöm Sigurðsson, en
fyrir hana var Sigríður Jónsdóttir, og Ragnar Sær
Ragnarsson sveitarstjóri, sem ritaði fundargerð.
Skipulagsmál: Arinbjöm Vilhjálmsson, skipulagsfulltrúi,
sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
a) Rimi, aðalskipulag. Tillaga að breytingu aðalskipulags
Biskupstungnahrepps 2000-2012. Tillagan gerir ráð fyrir
að um 5 ha sem tilheyra lögbýlinu Rima breytist úr frís-
tundabyggð í landbúnaðarsvæði. Aðkoma verður frá
Reykjavöllum. Umræða í framhaldi af samþykkt
sveitarstjómar frá 9. mars 2005, 2. tölul., þar sem
sveitarstjórn vísaði málinu frá, þar til samkomulag lægi
fyrir milli aðila. Nú hafa aðilar náð saman um málið og
liggur fyrir skriflegt samkomulag auk þess sem þeir aðilar
sem gerðu athugasemdir hafa fallið frá þeim. Sveitarstjórn
samþykkir aðalskipulagsbreytinguna í samræmi við 18.
grein skipulags- og byggingalaga.
b) Gufubaðsreitur Laugarvatni. Lögð fram tillaga að
deiliskipulagi baðstaðar Hollvinasamtaka gufubað og
smíðahúss á Laugarvatni og aðliggjandi lóða frá Landformi
ehf.
Tillagan var í kynningu frá 24. desember 2004 til 21.
janúar 2005. Frestur til að skila inn athugasemdum var til
4,febrúar 2005.
Tvö athugasemdabréf bárust.
1. frá Reyni Karlssyni hrl. fyrir hönd Baldurs Öxdal
dags.2. 2. '05.
2. frá Sævari Ástráðssyni, Hrafnhildi Eyþórsdóttur,
Sigurbimi Amgrímssyni og Gunnhildi Hinriksdóttur
Tillaga að svömm dags. 6. maí 2005, við athugasemdum
lögð fram. Einnig tillaga að breytingu á deiliskipulagstillö-
gunni. Sveitarstjóm samþykkir að þær breytingar sem
lagðar em til í tillögunni verði gerðar. Málinu vísað til
skipulagsnefndar til fullnaðarafgreiðslu.
c) Beiðni um breytíngu á aðalskipulagi við Iðufell,
Laugarási. Kynnt og vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.
d) Aðalskipulagsbreyting vegna reiðstígs við Geysi,
Haukadal. Samþykkt að heimila auglýsingu í samræmi við
18.grein Skipulags-og byggingarlaga.
Fundargerð byggðaráðs frá 3. maí 2005. Bókun Kjartans
við 2. Tölulið: Þann 18. júní 2003 var samþykkt tillaga T-
listans um að sveitarstjóm léti gera úttekt á gatnakerfmu í
þéttbýli og safnvegum í Bláskógabyggð og að gerð yrði
framkvæmda áætlun um endumýjun og viðhald vega.
Tillagan var ítrekuð og bókuð rúmu ári síðar. Þrátt fyrir
samþykktir sveitarstjómar hafa engar framkvæmdaáætlanir
verið gerðar. Að öðm leyti kynnt og staðfest.
Samþykktir Bláskógabyggðar. Breyting á samþykktum
Bláskógabyggðar vegna fræðslunefndar. Áður sent og
kynnt á síðasta fundi sveitarstjómar. Síðari umræða um
breytingartillögu á samþykkt um stjóm og fundarsköp
Bláskógabyggðar. Tillagan tekur til 34. gr. b- liðar nr. 3 og
er svohljóðandi:
Var: Fræðslunefnd: Þrír aðalmenn og jafnmargir til vara.
Fræðslunefnd fer með málefni gmnnskóla skv. 13. gr. laga
nr. 66/1995 um gmnnskóla og leikskóla skv. 9. gr. laga um
leikskóla nr. 78/1994.
Tillaga Þ-listans: Fræðslunefnd verði: Þrír aðalmenn og
23 Litli Bergþór