Litli Bergþór - 01.07.2011, Qupperneq 4
Formarmspistill
Aðalfundur Umf. Bisk. var haldinn í Bergholti 17. mars 2011.
Fundarsókn var með ágætum og áttu sér stað góðar og gagnlegar
umræður um starf félagsins. Öllu því fólki sem hlaut kosningu í
hinar ýmsu nefndir óska ég til hamingju og vonast eftir góðu
samstarfi við það. Asborg Arnþórsdóttir gekk úr varastjórn eftir
sjö ára stjórnarsetu og eru henni þökkuð góð störf í þágu félagsins
en við vonumst eftir að getað notið krafta hennar áfram fyrir
Ungmennafélagið. Oddur Bjarni Bjarnason var kosinn í varastjórn
í stað Ásborgar og óska ég honum til hamingju með kjörið.
I vetur hefur verið unnið við endurnýjun á heimasíðu
Ungmennafélagsins. Fyrsta heimasíða félagsins var gjöf Kristínar
Guðbjörnsdóttur til félagsins á 100 ára afmælinu árið 2008. Agla
Snorradóttir var fengin til að sjá um uppsetningu á nýju síðunni.
Mikið af efni var tekið af eldri síðunni ásamt því að nýtt efni
hefur verið sett inn. Stefnt er að því að síðan verði virk og
uppfærð reglulega með fréttum og myndum af starfi félagsins.
Öglu Snorradóttur þakka ég kærlega fyrir góða vinnu og
ánægjulegt samstarf. Ef einhver vill koma efni inná síðuna, t.d.
fréttum, tilkynningum eða myndum er hægt að hafa samband við
undirritaðan eða senda tölvupóst á Ungmennafélagið en netfangið er: umfbisk.blaskogabyggd@gmail.com.
Slóðin á síðuna er: http://umfbisk.blaskogabyggd.is og hvet ég lesendur Litla-Bergþórs til að fylgjast með
starfi félagsins í gegnum heimasíðuna.
Aukið samstarf í íþrótta- og æskulýðsmálum hefur verið í umræðunni í uppsveitum Árnessýslu uppá
síðkastið. Hugmyndir eru, m.a., um að vera með sameiginlegar æfingar í íþróttum til að getað skapað
grundvöll fyrir keppnislið í hinum ýmsu íþróttagreinum. Þá hafa aðrir verið með þær hugmyndir að stofna
nýtt íþróttafélag sem myndi standa fyrir íþróttastarfi í öllum sveitarfélögunum.Allt eru þetta hugmyndir sem
vert er að skoða en mikilvægt er að gefa sér tíma í að skoða þessa hluti vel áður en einhver niðurstaða fæst.
Ungmennafélag Biskupstungna er rótgróið ungmennafélag með mikla sögu á bak við sig sem við þurfum að
hlúa að. Ég hvet ungmennafélaga til að ræða þessi mál af opnum huga og velta fyrir sér hvað er íþrótta- og
æskulýðsstarfsemi í Tungunum fyrir bestu.
Nú er sumarið komið og vonast ég til þess að lesendur Litla-Bergþórs njóti sumarsins í leik og starfi.
Með sumarkveðju,
Helgi Kjartansson,
formaður Ungmennafélags Biskupstungna
r
Raflagnir - Viðgerðir
Tek að mér nýlagnir, hönnun raflagna og alla Sumarbústaðaeigendur athugið að ég sæki
almenna rafvirkjavinnu ásamt tækjaviðgerðum. um öll leyfi fyrir heimtaug að sumarhúsum
Efnissala og varahlutaþjónusta. og lagningu raflagna.
Fljótog góð vinna.
JensPéturJóhannsson
LÖGGILTUR RAFVERKTAKI
GSM 899 9544
Heimasími 486 8845
Verkstæði sími 486 8984
GSM 893 7101
j
Litli-Bergþór 4