Litli Bergþór - 01.07.2011, Blaðsíða 28
I^að er líf og fjör
í Lionsklúbbnum Geysi
Lionsklúbburinn Geysir hefur starfað af þrótti í
vetur, eins og undanfarin ár. Ut á við lætur
klúbburinn, eins og Lionshreyfingin í heild, gott af
sér leiða, eftir því sem hann hefur bolmagn til. Til
dæmis var heilsugæslustöðinni í Laugarási gefið
fullkomið eyrnaskoðunartæki í vetur sem læknarnir
okkar segja að muni nýtast mjög vel í framtíðinni, í
eilífri baráttu við hina þrálátu eyrnabólgu í
blessuðum börnunum okkar.
Inn á við snýst þetta um að styrkja innviðina, efla
félagsandann, fjölga hóflega í klúbbnum og hafa
gaman saman. Klúbburinn fundar tvisvar í mánuði
og á fundum er blandað saman gamni og alvöru,
skemmtun og fróðleik.
Fyrirlestrar:
Guðni Ölversson, hinn geðþekki tíðindamaður
útvarpsþáttarins „Samfélagið í nærmynd“ í Noregi,
var einu sinni kennari hér í sveit og var þá félagi í
klúbbnum og formaður. Hann sagði okkur frá
störfum sínum sem kennari við grunnskóla skammt
frá Ósló, þar sem meirihluti nemenda eru
innflytjendur. Margir þeirra koma úr allt öðrum
menningarkimum og hafa mismunandi trúarskoðanir
og siði. Sýn þeirra á samfélagið er stundum erfitt að
aðlaga gömlum og rótgrónum venjum hinna nýju
heimkynna og leiðir oft til harkalegra árekstra, eins
og nærri má geta.
Gylfi okkar, læknir, fræddi okkur um sykursýki og
fleiri þætti heilbrigðismála. Hann sagði okkur, m.a.
hvað sykursýki væri skæður, erfiður og algengur
sjúkdómur, þótt í raun og veru sé auðvelt að forðast
hann, ekki síst fyrir okkur hér í Tungunum. Við erum
nefnilega svo heppin að búa við gnægtaborð hollrar
fæðuframleiðslu og unaðslegt umhverfi, sem
beinlínis hvetur til útiveru og hreyfingar. En þetta
tvennt: fæðuval og hreyfing eru áhrifamestu
forvarnirnar með tilliti til ofþyngdar, sykursýki og
margra annarra sjúkdóma.
Gunnar Marel Hinriksson, sagnfræðingur, hélt
fyrirlestur um kvikfjártalið 1703. Miklar umræður
urðu um erindi Gunnars, sem var afar áhugavert og
fróðlegt.
Frasðsluferðír:
Við fórum til Þingvalla í haust þar sem sveitungi
okkar, Einar Sæmundssen, fræðslustjóri þjóðgarðsins
tók á móti okkur. Hann fræddi okkur á líflegan og
skemmtilegan hátt um sögu og náttúru Þingvalla og
sýndi okkur náttúruundur sem þar má sjá á haustin,
þegar risaurriðinn öslar með boðaföllum upp Öxará
til að frjóvga hrogn og viðhalda stofninum. Þetta var
stórkostlegt sjónarspil.
Farið var í heimsókn í Sölufélag garðyrkjumanna,
Örn Erlendsson.
þar sem Ómar, félagi okkar, er stjórnarmaður og
margir Tungnamenn hafa átt aðild að gegnum árin.
Þarna er unnið við móttöku, flokkun, pökkun og
dreyfingu á alls konar afurðum garðyrkjubænda.
Einnig er þarna fjölbreytt ostagerð, sem kom okkur
mjög á óvart. Starfsfólk sölufélagsins er greinilega í
góðu sambandi við neytendur, jafnt sem framleið-
endur, þessara frábæru matvæla sem fara um hendur
þeirra.
Háaðall Össurar hf. tók á móti okkur í höfuð-
stöðvum fyrirtækisins er við heimsóttum það fyrir
skömmu; sjálfur húsbóndinn, Jón í Múla, Edda
Heiðrún, systurdóttir Svavars á Gilbrún og Grímur,
sonur Jóns í Gýgjarhólskoti. Þau fóru með okkur um
fyrirtækið, sem fyllir tvö stórhýsi við Grjótháls, og
sýndu okkur alla leyndardóma þess, allt frá
þróunardeild til sjálfvirkra framleiðsluþjarka sem
standa í röðum, eins löngum og augað eygir, og
ganga hvíldarlaust allan sólarhringinn alla daga. Við
vorum sem bergnumin af undrun og aðdáun yfir
tækninni, hugvitinu og stærðinni, þó sáum við ekki
nema örlítið brot af starfseminni, því Össur er ekki
bara þarna við Grjóthálsinn, heldur víða um lönd.
Starfsmenn Össurar eru um 1800, þar af „aðeins“
300 hér á landi.
Aðrir atburðir:
Sagna og kvæðamannakvöld var haldið í Aratungu í
haust er leið. Þar komu fram sagnamennirnir: Bjarni
Harðarson, Hilmar Einarsson, Hallgrímur Guðfinns-
son og Einar Sæmundssen og kvæðafólkið Sigurður
Sigurðarson og Ólöf Halldórsdóttir. Þau skemmtu
fólki með sögum og kveðskap af tærri snilld. Um 80
manns sóttu samkomuna.
Á þorraþræl var haldin vel heppnuð matarveisla.
Til hennar var boðið Lionsmönnum úr Laugardal,
Grímsnesi, Grafningi, Selfossi, Hveragerði og
Þorlákshöfn. Matseðillinn var einfaldur: hrossakét og
Litli-Bergþór 28